Fréttablaðið - 11.07.2020, Síða 54
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Þökkum öllum sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
Guðjóns Ármanns
Eyjólfssonar
skólameistara
Stýrimannaskólans í Reykjavík,
sem andaðist 16. mars og var jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju 23. júní. Hann var jarðsettur í Sóllandi,
Fossvogskirkjugarði.
Anika Jóna Ragnarsdóttir
Ragnheiður Ármannsdóttir Leifur Björnsson
Ragnar Ármannsson Kristín Axelsdóttir
Eyjólfur Ármannsson
Kristín Rósa Ármannsdóttir Jón Heiðar Ólafsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona,
móðir okkar, dóttir og systir,
Unnur Lea Pálsdóttir
lést á Landspítalanum, 3. júlí sl.
Útförin fer fram í Víðistaðakirkju,
þriðjudaginn 14. júlí, klukkan 15.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Pétur Hörður Pétursson
Sara Rós Pétursdóttir
Rósa Björk Pétursdóttir
Rósa Helgadóttir
Páll Kristjánsson
Bjarnveig Pálsdóttir
Viktor Pálsson
Íris Björk Pálsdóttir
Það eru greinilega margir Íslendingar á ferð um Ísland og við fáum ótal vink frá bílstjórum. Þjóðin er með okkur í liði og veðrið líka. Við höfum fengið frábærar
móttökur alls staðar og fínan með-
vind, segir Guðrún Gísladóttir sem er
á áttunda og síðasta degi í hringferð
um landið í dag á hjóli, með liði sínu
Team Rynkeby á Íslandi. Tilgangurinn
er að safna fé til styrktar alvarlega veik-
um börnum.
„Ferðin hefur gengið eins og í sögu.
Við leiðarlok verða 850 kílómetrar að
baki,“ lýsir Guðrún. Þetta er í fjórða sinn
sem hún hjólar, hefur verið með í liðinu
frá upphafi, 2017, og þekkir aðstæður.
„Brekkur geta tekið í, en það erfiðasta
er þó að sitja svona lengi á hörðum
hnakk, fólk er komið með sár í nárann
og blöðrur hér og þar, þó við séum í
góðum buxum. Í undirbúningnum eru
þó hjólaðir að minnsta kosti 2.500 kíló-
metrar.“
Guðrún segir liðið vilja hjóla sem
minnst á þjóðvegi 1, því það geti skap-
að hættu. „Við veljum fallegar leiðir þar
sem minni umferð er. Hjóluðum nú til
dæmis Hvalfjörðinn, hring um Skaga-
fjörð og frá munna Strákaganga að
norðanverðu til Grenivíkur. Við fórum
kísilveginn frá Mývatni út á Húsavík og
til baka um Aðaldalinn. Hjóluðum um
Ásbyrgi, á Kópasker og Þórshöfn og frá
Neskaupstað um Austfirði.
Í gær var bara um eina leið að ræða,
sunnan jökla. Við hjóluðum frá Breið-
dalsvík til Djúpavogs, en keyrðum svo
til Víkur með stoppum á leiðinni.“
Í liðinu í ár eru 55 manns en 40 í hring-
ferðinni, 29 að hjóla og 11 í þjónustu. „Á
Kia silfurhringnum, sem við endum á í
dag, koma fyrri liðsfélagar inn í leið-
irnar, þannig var það líka fyrir norðan,“
segir Guðrún.
„Þetta er dálítil fjölskylda, við söfnum
styrkjum og féð sem safnast fer óskipt í
málefnið, því við greiðum allt sjálf sem
við eyðum, bæði búnað og uppihald.“
gun@frettabladid.is
Þjóðin með okkur í liði
Team Rynkeby á Íslandi er að ljúka átta daga hjólaferðalagi um landið, til ágóða fyrir
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Meðal þátttakenda er Guðrún Gísladóttir.
Guðrún er ein af fáum í túrnum sem hefur tekið þátt síðan í fyrstu ferð Team Rynkeby á Íslandi 2017. MYND/BRYNJA KRISTINSDÓTTIR
Um Team Rynkeby
Team Rynkeby hófst 2002 þegar
starfsmaður hjá dönsku safaverk-
smiðjunni Rynkeby fékk lungna-
þembu og var ráðlagt að hreyfa sig og
hætta að reykja. Hann skellti skolla-
eyrum við því síðarnefnda, en fór
fram á við tæknistjórann að fá safa
ef hann hjólaði til Parísar að fylgjast
með Tour de France. Tíu slógust í för
með honum. Þeir söfnuðu styrkjum,
en áttu afgang sem þeir gáfu til
krabbameinssjúkra barna. Nú er Team
Rynkeby orðið stærsta, norræna
góðgerðaverkefnið og fleiri lönd hafa
bæst við. Allt fé fer í góð málefni.
Ísland hóf þátttöku árið 2017.
Elskulegur sonur okkar, bróðir,
tengdabróðir, barnabarn og frændi,
Jónas Ingólfur Lövdal
listamaður og landslagsarkitekt,
lést að heimili sínu þann 1. júlí.
Útför fer fram frá Grafarvogskirkju,
fimmtudaginn 16. júlí, kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja styrkja
útförina er bent á reikning 552-14-414177, kt. 010485-2239.
Erla Hafdís Steingrímsdóttir Jóhannes Lúther Gíslason
Hulda Ólöf Einarsdóttir Sigfús Helgi Kristinsson
Gísli Trausti Jóhannesson
Daníel Guðni Jóhannesson Karlotta Rós Þorkelsdóttir
Eygló Fjóla Jóhannesdóttir Friðrik Páll Hjaltested
Sonný Norðfjörð Gunnarsdóttir Jón Karl Halldórsson
Sunna Lind Lövdal Róbert Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT