Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Síða 20
10. JÚLÍ 2020 DV20 EYJAN
ÝMIS NÝ ÞINGMANNSEFNI SJÁLF-
STÆÐISFLOKKS VERIÐ NEFND
Enginn núverandi þingmanna hefur gefið út að hann hyggist hætta. Á komandi
vikum verður fjallað um framboðsmál, þingmannsefni og stöðu einstakra flokka.
F réttablaðið sagði frá því fyrir viku að Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra hygðist boða for-
menn flokkanna á fund til að
ræða tímasetningu næstu al-
þingiskosninga. Meðal stjórn-
arandstöðuþingmanna er mun
meiri vilji til vorkosninga en
hjá stjórnarliðum. Kjörtíma-
bilinu lýkur 28. október 2021
og heimildarmönnum innan
ríkisstjórnar ber saman um
að haustkosningar séu miklu
líklegri kostur. Menn bera þá
fyrir sig farsóttina og segja
mörg mál hafa tafist vegna
hennar sem þeir vilji fyrir
alla muni klára. Flestir sækja
stíft að fá að sitja eins lengi
á ráðherrastóli og mögulegt
er, fimm mánuðir frá vori til
hausts eru langur tími í pól-
itík.
Vitaskuld er allt of snemmt
að velta fyrir sér úrslitum al-
þingiskosninga og líklegast
að ekki verði byrjað að raða á
framboðslista fyrr en í fyrsta
lagi næsta vor. Hvað sem því
líður er forvitnilegt að skoða
hvernig landið liggur hjá ein-
staka flokkum. Ég ætla því
hér í þessum pistli og á næstu
vikum að fjalla um framboðs-
mál, þingmannsefni og stöðu
einstakra flokka. Byrjum á
Sjálfstæðisflokknum.
Lítil hreyfing á fylginu
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut
sína næstverstu útreið frá
upphafi í síðustu alþingis-
kosningum, eða 25,3% fylgi
á landsvísu. Fylgi flokksins
hefur mælst undir því í nærri
öllum könnunum sem gerðar
hafa verið á kjörtímabilinu. Þó
er rétt að taka fram, svo allrar
sanngirni sé gætt, að fylgistap
hans samkvæmt könnunum er
ekki nærri eins mikið og hinna
stjórnarflokkanna, Framsókn-
arflokks og Vinstri grænna.
Ef við skoðum Reykjavík þá
var ekki haldið prófkjör hjá
flokknum í borginni fyrir al-
þingiskosningarnar 2017 enda
aðeins ár frá fyrra prófkjöri
þar sem Ólöf Nordal hafði
orðið hlutskörpust, Guðlaugur
Þór Þórðarson annar, Brynjar
Níelsson þriðji, Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir fjórða, Sig-
ríður Á. Andersen fimmta,
Birgir Ármannsson sjötti,
Hildur Sverrisdóttir sjöunda
og Albert Guðmundsson átt-
undi. Ólöf andaðist í febrúar
2017. Heimildarmenn full-
yrða að núverandi þingmenn,
þau Guðlaugur Þór, Brynjar,
Áslaug, Sigríður og Birgir,
sækist öll eftir sæti á listum
flokksins fyrir komandi al-
þingiskosningar. Hildur féll
út af þingi 2017 og undi því
illa. Afar líklegt má telja að
hún gefi kost á sér og sömu-
leiðis Albert Guðmundsson
sem þykir skörulegur ræðu-
maður. Ekki spillir nafnið
heldur fyrir.
Síminnkandi þátttaka
í prófkjörum
Aðeins 3.430 tóku þátt í próf-
kjörinu 2016. Guðmundur
Magnússon blaðamaður rifjaði
upp í kjölfar þess þegar hann
tók þátt í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins 1990 og hlaut sam-
tals 3.100 atkvæði sem dugði
honum í 13. sætið. Ólöf Nordal
fékk samtals 2.944 sem nægði
henni til að fá efsta sæti. Í
prófkjörinu 1990 kusu alls
8.480 og raunar þarf ekki að
fara svo langt aftur í tímann
til að finna mikla kjörsókn því
í prófkjöri fyrir alþingiskosn-
ingarnar 2007 greiddu 10.846
manns atkvæði. Þátttaka í
prófkjörum var enn meiri á
áttunda áratugnum. Í próf-
kjöri reykvískra Sjálfstæðis-
manna fyrir kosningarnar
1978 kusu 9.877 en ef tekið er
mið af íbúafjölgun í borginni
þá myndi það samsvara því að
um 15.500 greiddu atkvæði nú.
Einkum er það fólk sem
komið er yfir miðjan aldur
sem greiðir atkvæði í próf-
kjörum og vitaskuld hefur það
mikil áhrif á niðurstöðuna.
Guðlaugur Þór er því talinn
eiga mun meiri möguleika á
fyrsta sæti en Áslaug Arna.
Hinir þrír þingmenn flokksins
í kjördæminu, Brynjar, Sig-
ríður og Birgir, þykja öll hafa
vaxið í áliti meðal flokksfólks
en vekja að sama skapi ekki
jafnmikla aðdáun út á við.
Einn heimildarmanna sagði
flokkinn vanta fleiri öfluga
liðsmenn sem dragi fylgi að.
Meðal nýrra þingmannsefna
sem nefnd hafa verið eru
Borgar Þór Einarsson, að-
stoðarmaður Guðlaugs Þórs
utanríkisráðherra, og Vala
Pálsdóttir, formaður Lands-
sambands Sjálfstæðiskvenna.
Eyþór Arnalds, oddviti
flokksins í borgarstjórn, hefur
verið nefndur sem þingmanns-
efni. Sömuleiðis Hildur Björns-
dóttir, annar maður á lista
flokksins þar. Hún er þó talin
ólíklegri til þess en Eyþór þar
sem hún stefni ótrauð á borgar-
stjórastólinn og hafi meðal
annars viljað komast í betra
samband við vinstriflokkana
í borgarstjórn en meirihluti
borgarstjórnarflokks Sjálf-
stæðismanna kæri sig um.
Hún telji sig sjá fleiri sam-
starfskosti Sjálfstæðismanna
en menn komi auga á nú.
Röðun á listum ekki fylgt
„Til hvers er verið að halda
prófkjör þegar formaður
flokksins velur bara þá sem
honum þóknast af listunum?“
spurði einn óánægður áhrifa-
maður í Sjálfstæðisflokknum
og vísaði til þess þegar Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt-
ir, Sigríður Á. Andersen og Ás-
laug Arna voru teknar fram-
fyrir karlmenn sem voru ofar
á listum, þegar kom að vali á
ráðherrum. Sami viðmælandi
rifjaði upp að Bryndís Har-
aldsdóttir hefði verið hífð upp
um sæti í prófkjöri flokksins í
Suðvesturkjördæmi. Viðmæl-
endur hafa enn fremur nefnt
að þessar tilfæringar hafi ekki
orðið til að auka vinsældir
flokksins, nema síður sé.
Brynjar Níelsson var for-
maður Lögmannafélagsins
og er reyndur hæstaréttar-
lögmaður. Mörgum flokks-
mönnum finnst ítrekað hafa
verið gengið freklega fram hjá
honum við val á dómsmálaráð-
herra. Þá nefna sumir að mun
lýðræðislegra væri að taka
upp fyrra fyrirkomulag og
láta þingflokkinn kjósa hverju
sinni milli ráðherraefna – allt
of mikil völd séu færð í hend-
ur formanns flokksins við til-
nefningu ráðherra.
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is
Heimildarmenn telja Guðlaug Þór sigurstranglegri en Áslaugu Örnu komi til einvígis milli þeirra um efsta sætið. MYND/VALLI
Framhald á síðu 22 ➤