Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2020, Page 45
K ári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, talar gjarnan beint frá hjartanu, en hvað segja stjörnurnar
um hann?
Kári er Hrútur og stendur vel undir nafni. Hrúturinn
er afar klár, mikill leiðtogi, skipulagður og metnað-
arfullur. Hann er flókinn karakter sem er ekki alltaf
auðvelt að skilja því Hrútar eiga ekkert sérlega
auðvelt með að tjá sig á mannamáli. Þeir eru gjarnir
á að vera harðir við sjálfa sig því kröfur þeirra á allt
og alla spegla líka þá sjálfa. Það er svo mikill kostur
að hafa vit á því að staldra við og hlaða batteríin sín
af og til. Stress og kvíði er að drepa 21. öldina og við
verðum að taka á því máli. Við erum besta útgáfan af
okkur sjálfum þegar við hugum að bæði andlegri og
líkamlegri heilsu okkar.
Töframaðurinn
Lykilorð: Birtingarmynd, útsjónarsemi, kraftur, inn-
blástur í nýjum aðgerðum
Hér birtast tveir hrafnar og eitt auga í spilinu. Þetta er
kröftug galdraspil sem minnir þig á krafta alheims. Ef
þú ert að leita að svörum þá er góður tími til þess að
jarðtengja sig, hugleiða og spyrja upphátt út í vindinn
og vittu til, svarið mun birtast þér í einu formi eða
öðru, jafnvel í draumi.
Æðsti presturinn
Lykilorð: Viska, trúarskoðanir, samræmi, hefðir
Það er mikil andleg orka sem streymir inn í kortin þín.
Jafnvel skilaboð um að treysta innsæinu og gefa sér
tíma til þess að vera aðeins leitandi í sjálfum sér. Í
amstri dagsins týnum við oft okkur sjálfum og því sem
skiptir okkur máli. Ýmsar rútínur og hefðir, til dæmis
eins og hugleiðsla eða morgunrútína í einrúmi, getur
hjálpað til við að ná áttum þegar lífið er yfirþyrmandi.
Ef þú finnur að þráðurinn er stuttur þá er tímabært að
draga sig í hlé. Þannig heldur þú líka þínum nánustu
góðum, því þung orka smitar auðveldlega frá sér og
fælir fólk einnig frá.
Sverðriddari
Lykilorð: Fæddur leiðtogi, framtíðarsýn, frumkvöðull,
heiður, virðing
Þú kemur sannarlega hlutum í verk, en ekki láta
óþolinmæði eða pirring koma í veg fyrir það sem þú
ætlar þér. Það er oft eins og hindranir séu lagðar í
veg okkar til að kenna okkur eitthvað sem við sjáum
ekki eða skiljum fyrr en síðar. Nú er góður tími fyrir
þig sem leiðtoga til að ræða málin við aðra sem munu
styðja þig með lausn í máli. Þú ert ekki einn.
Skilaboð frá
spákonunni
Kæri Hrútur Kári. Gefðu þér tíma til að hlaða batt-
eríin. Þreyta fæðir streitu og óþolinmæði. Þú ert
umkringdur góðu fólki. Njóttu þess.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Kári Stefánsson
Svona eiga þau saman
Hrútur
21.03. – 19.04.
Guð sé lof að það er sumar því
það gerir óvissuna aðeins létt-
bærari. Það er ýmislegt í lausu
lofti en þú ert metnaðarfullt
merki og ert með mörg spil að
vinna úr. Njóttu þess að hafa
minna fyrir stafni. Hlutirnir falla
í réttan farveg innan skamms
og þá munt þú hafa í nógu að
snúast.
Naut
20.04. – 20.05.
Elsku sveimhuga Naut. Þú dvelur í
þögninni þessa vikuna og ert mjög
hugsi og gleymir þér gjörsamlega
í dagdraumunum. Við hvetjum þig
áfram í þessum draumaheimi því
það er upphafið að mörgum stór-
kostlegum ævintýrum.
Tvíburar
21.05. – 21.06.
Vó, nú er góður tími til að hringja í
Tvíbura því hann hefur skyndilega
efni á því að bjóða þér í drykk eða
tvo. Hnútar leysast og óvæntir
peningar streyma til þín og einnig
verkefni sem munu gefa vel af sér.
Nú er góður tími til þess að leggja
inn á sparireikninginn.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Ég er rangur maður á röngum
tíma… Þessa dagana er Krabbinn
að syngja í vitlausu brúðkaupi,
það er einhver athyglisbrestur í
gangi. Þú ert að gleyma þér og
rugla dögum. Það er líklega tími á
aðeins betra skipulag.
Ljón
23.07. – 22.08.
Ég myndi aldrei… eru orð sem
munu bara hefta þig. Ekki loka
dyrunum áður en þær opnast.
Þú þarft að vera með opnari hug
þessa dagana og brjóta þessar
reglur sem þú hefur sett sjálfum
þér. Vertu í flæðinu og taktu hlut-
unum eins og þeir koma.
Meyja
23.08. – 22.09.
Elsku skrítna Meyjan okkar. Þú
brýst út úr skelinni þessa dagana
og nýtur þín í góðum félagsskap.
Ný vinátta eða vinabönd, sem eru
nú þegar til staðar, verða sterkari.
Matarboð heima hjá þér í góðra
vina hópi er uppskrift að góðu
kvöldi.
Vog
23.09. – 22.10.
Þú ert kannski eitt af fáum
merkjum sem fagnar því smá að
sólin hvíli sig í 1-2 daga svo að
pressan um að gera allt og vera
alls staðar slakni aðeins. Sólar-
kvíðinn tekur þig alveg á taugum.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Þú gerir tilraun þess að vera extra
heiðarleg/ur og segja það sem
þér liggur á hjarta en það fer ekki
alveg að óskum. Í kjölfarið kemur
upp smá pirringur sem þú skilur
ekkert í, en þú ert í miklum and-
legum breytingum og stundum er
þetta ferlið sem kemur á undan
þegar losnar um gamla orku.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Þú ert undir álagi þessa dagana og
lífið virkar stundum yfirþyrmandi.
Stjörnurnar segja þér að reyna að
að greina milli vinnu og heimilis-
lífs. Lítil skref munu hjálpa hjarta
þínu að halda ró sinni og þá mun
allt ganga upp. Klukkutíma síma-
pása á dag kemur skapinu í lag.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Ástarmálin eru þér ofarlega í huga
í vikunni og þú ert óviss um í hvaða
átt þú átt að stíga með ákveðið
samband. Tími fyrir sjálfa/n þig
hjálpar þér að sjá hlutina í nýju
ljósi og maki þinn þarf að gefa þér
svigrúm. Ef hann getur það ekki er
svarið kannski augljóst.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Þú ert agaður þessa dagana og
ert í einhverju lífsgæðakapphlaupi
við sjálfa/n þig. Þú ætlar að vera
komin/n með sterkari maga-
vöða, nýjan rekstur og flottari
Insta gram-myndir og það allt í
fyrradag… Mögulega myndir þú
finna meiri ró með því að gefa
þér smá pásu í þessari keppni og
njóta sumarsins.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Fiskurinn okkar á það til að vera
mikill intróvert. Um þessar mundir
viltu halda þig til baka og vinir og
vandamenn eru farnir að undrast
um þig. Ekki láta það á þig fá. Þú
þarft þinn tíma og við sjáumst þá
bara í næstu viku.
Vikan 10.07. – 16.07.
Hrúturinn Kári þarf að hlaða
Tilfinningaríkt par
MYND/VALLI
stjörnurnarSPÁÐ Í
Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal hélt upp á fertugsafmælið á dögunum með heljarinnar veislu í Hörpu. Auðunn er
í sambúð með fyrirsætunni Rakel Þormars-
dóttur og í lok síðasta árs eignuðust þau
soninn Theódór Sverri Blöndal. Við ákváðum
að skoða hvernig parið á saman ef litið er til
stjörnumerkjanna.
Auðunn er Krabbi en Rakel er Vog. Krabb-
inn og Vogin eru bæði miklar tilfinningaverur
og ná að tengjast vel á því sviði. Einna helst
þurfa þau á betri jarðtengingu að halda. Vogin
er djörf og rómantísk, nýtur þess að fara á
listsýningar og vera meðal fólks. Krabbinn er
hins vegar heimakær, leggur áherslu á fjöl-
skyldulífið og almennan stöðugleika heima
við.
Krabbinn á það til að verða tortrygginn að
óþörfu og þannig er hann líka auðsærður.
Galsafull Vogin gæti því auðveldlega sært
Krabbann með útstáelsi sínu ef ekki er var-
lega farið. Mikilvægt er að Krabbi og Vog
tali vel saman til að fyrirbyggja misskilning.
Vogin er vís til að halda ástarlífinu alltaf
spennandi. n
Auðunn Blöndal
8. júlí 1980
Krabbi
n Tilfinningavera
n Auðsærður
n Tortrygginn
n Verndari
n Heimakær
n Áhyggjufullur
Rakel Þormarsdóttir
1. október 1983
Vog
n Rómantísk
n Sáttasemjari
n Listræn
n Félagsvera
n Óákveðin
n Djörf
MYND/SKJÁSKOT INSTAGRAM
STJÖRNUFRÉTTIR 45DV 10. JÚLÍ 2020