Morgunblaðið - 17.01.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.01.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2020 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga. 10–17 Laugardaga. 11–15 Tónlistarmaðurinn Floni átti vin- sælustu íslensku plötu ársins 2019, Floni 2, samkvæmt ársuppgjöri Tónlistans. Tónlistinn heldur utan um spilun á Spotify og sölu á geisla- diskum og vínylplötum í helstu verslunum. Floni hafði þó ekki roð við bandarísku tónlistarkonunni Billie Eilish sem átti vinsælustu plötu ársins, When We All Fall Asleep, Where Do We Go? Næstvinsælasta íslenska platan í fyrra var Afsakanir með Auði og Herra Hnetusmjör átti plöturnar í þriðja og fjórða sæti íslenska listans; Dögun og Hetjan úr hverf- inu. Plata Hafdísar Huldar, Vöggu- vísur, var sú fimmta vinsælasta. Ef aðeins er horft til sölu á geisladiskum og vínylplötum átti Bubbi Morthens vinsælustu plöt- una, Regnbogans stræti. Vinsælasta lag ársins var Enginn eins og þú með Auði. Það er niður- staða mælinga á útvarpsspilun og spilun á Spotify. hdm@mbl.is Auður og Floni á toppnum  Vinsælustu tónlist- armenn ársins 2019 Morgunblaðið/Eggert Vinsældir Tónlistarmaðurinn Auð- ur átti vinsælasta lag ársins í fyrra. „Við tökum fagnandi hverri sálu sem styður íslenska landsliðið,“ segir Kjartan Vídó Ólafsson, markaðsstjóri HSÍ. Keppni í milliriðli tvö á EM í handbolta í Malmö hefst í dag þegar Ísland mætir Slóveníu klukkan 15. Kjartan Vídó segir að búast megi við því að um 200 Íslendingar verði á fyrsta leiknum. „Icelandair er með hópferð hingað út á fyrri tvo leikina og svo er verið að selja í aðra hópferð á seinni tvo leikina. Auk þess kemur eitt- hvað af fólki sem er búsett hér í kring.“ Aðspurður segir Kjartan að HSÍ hafi yfir fjölda miða að ráða og áhugasamir ættu að senda póst á midar- @hsi.is með fyrirspurn. „Það verður góð stemning hérna. Við verðum áfram með upphitun á veitinga- staðnum Paddy’s. Þar verðum við með treyjur og fleira. Við gerum allt til að umgjörðin verði eins og best verður á kosið fyrir stuðningsmennina.“ Heldur hefur fækkað í stuðningsliðinu frá fyrsta leik en um eitt þúsund Íslendingar sáu strákana okkar leggja Dani að velli. Segir Kjartan að aldrei fyrr hafi jafn margir íslenskir stuðningsmenn fylgt liðinu á leik á erlendri grundu. Stuðningsmannasveitin Sérsveitin er farin heim á leið og þykir það skarð fyrir skildi. „Þau þurfa að sinna vinnu og fleiru. Sérsveitin var orð- in vel þreytt enda liðsmenn hennar búnir að standa sig frábærlega við að keyra áfram stemninguna hér. Nú tekur bara næsti hópur við. Stemningin í höllinni verð- ur góð.“ hdm@mbl.is 200 Íslendingar í höllinni Ljósmynd/Af Facebooksíðu HSÍ Stemning Íslensku stuðningsmennirnir hafa verið áberandi og háværir.  Góð stemning meðal áhorfenda á EM í handbolta í Malmö Hafnir Ísafjarðarbæjar áforma frekari uppbyggingu á Sunda- bakka. Fyrirhugað er að lengja Sundabakkann um 300 metra og dýpka framan við bakkann niður á allt að 11 metra. Framkvæmdin er háð mati á umhverfisáhrifum og hefur matsáætlun verið lögð fram. Ísafjarðarhöfn er flokkuð sem stór fiskihöfn en þjónustar þó fjöl- breytta flóru skipa og báta. Skemmtiferðaskipum sem koma til Ísafjarðar hefur fjölgað mikið síð- ustu ár, úr 23 árið 2008 í 108 árið 2019. Til að stærstu skipin geti lagst að bryggju þarf bryggjukant sem er yfir 250 metrar með dýpi um níu metra á stórstraumsfjöru. Vægi sjávarútvegs hefur minnk- að í rekstri hafnanna en vægi ferða- þjónustu og afþreyingar hefur auk- ist umtalsvert. Undanfarin ár hefur löndun á afla dregist verulega sam- an frá því sem var á gildistíma fyrra aðalskipulags, sem gilti fyrir tímabilið 1989-2009, segir í tillögu að matsáætlun, sem hægt er að nálgast á heimasíðu Skipulags- stofnunar. aij@mbl.is Dýpkun við Sunda- bakka á Ísafirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.