Morgunblaðið - 17.01.2020, Síða 19

Morgunblaðið - 17.01.2020, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2020 Snjór Ekki skortir verkefni fyrir snjómoksturstæki á Vestfjörðum. Í gær var mokað í gegnum snjóflóð í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi. RAX Ekkert hjálparstarf, ekkert sjálfboðastarf jafnast á við starf björg- unarsveitanna á Íslandi. Vel þjálfaðar hersveitir manna sem vaka yfir lífi fólks og hika aldrei þegar neyðin er stærst og líf liggur við til lands eða sjávar. Þessi magnaði englaher björgunarsveit- anna fer út í veðrin og stormana með áform um að bjarga lífi. Þetta vel þjálfaða fólk okkar leggur sitt líf að veði í mörgum orrustum þar sem sek- úndur skipta máli, ekki mínútur. Floti og tæki björgunarsveitanna er magnaður og tilbúinn að sigra hvaða aðstæður sem við blasa. Þjóðin stendur að baki sveitunum – og hvar stæðum við án þeirra. Nú á dögunum barst grátur stúlku úr föllnu húsi í gegnum þykka skafla eftir snjóflóð á Flateyri. Ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefðu okkar menn ekki verið komnir á staðinn að vörmu spori. Björg- unarherinn er þjálfaður til að takast á við verstu að- stæður og oft undrast maður stjórnvisku forystu- mannanna í neyðinni, ró og festu í öllum viðtölum og aga sem fylgir björgunarstarfinu. Það væri verðugt að skylda þá sem stunda fjalla- og jöklaferðir að sækja námskeið til Slysavanafélagsins Landsbjargar „því á landamærum lífs og dauða leikur enginn sér“. Veður- blíða getur á einu augnakasti breyst í manndráps- veður hér, þá skiptir máli að ferðaþjónustufyrirtækin kunni bæði að bregðast við og einnig að meta að- stæður. Þetta mikla starf björgunarsveitanna væri ekki bet- ur skipulagt þó að hér væri ríkisher. Hafið heila þökk björgunarsveitarfólk fyrir ykkar starf. Heiður ykkar liggur í hetjuskap og björgun mannslífa. Eftir Guðna Ágústsson » Þessi magnaði englaher björgunarsveit- anna fer út í veðrin og storm- ana með áform um að bjarga lífi. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Afrekssveit Íslands bjargar mannslífum Á þeim dögum sem þjóðin er að undirbúa gögn til að gera keisaranum skil á fjárhagslegum gögnum er vert að íhuga fjár- hagslegt frelsi og gildi frjáls sparnaðar og setja það í sam- hengi við frelsi þjóðar. Egill og hodd Egill, afi minn í tuttugasta og áttunda lið, Skallagrímsson vissi sem var að þingheimur gengi af göflum ef þingmenn kæmust í annarra manna fjármuni. Því vildi hann sjá þegar þingmenn hlypu til þegar hann dreifði silfri sínu af bökkum Almannagjár. Hluti þing- manna nútímans er svipaður að eðli og því, sem Egill taldi samtímamenn sína. Reyndar var Egill lítið betri sjálfur, því hann vildi helst vera í samskiptum við hoddfjendur, en hodd merkir silfur og hoddfjendur því þeir er ekki vildu eiga silfur. Það silfur gat Egill eignast. Árni byskup Önnur lýsing er til um deilur í þingheimi um skattlagningu. Frá því segir í Arna byskups sögu að Loðinn Leppur sendimaður Nor- egskonungs fann að tíundargerð Árna bysk- ups í heimsókn sinni. Þar segir: „Þið bysk- uparnir heimtið tíund af sylgjum og silfurbeltum, koppum og keröldum og öðru dauðu fé, og undra ég mjög hví landsbúar þoli yður slíkar óhæfur og gerið eigi norræna tí- und að eins og þá sem gengur allan heiminn, og einsaman er rétt og lögtekin“ Byskup svarar fullum hálsi aðfinnslunum; „Af orðum Innocenti páfa vitum vér að sú tí- undargerð er eigi okur og vinnur engum manni sálutjón.“ Þarna bjargaði Evrópusam- vinna! Það hafa fleiri gengið af göflunum en þing- heimur í hug Egils. Ekki fyrir svo löngu gengu íslenskir hæstaréttardómarar af göfl- unum þegar þeir dæmdu í máli er varðaði lögmæti auðlegðarskatts, sem lagður var á „auðlegð“ árið 2009. Þar var forsenda lögmætis auðlegðarskatts gagnvart stjórn- arskrá sú að skatturinn væri tímabundinn. Annaðhvort eru skattar almennt lögmætir eða ólögmætir. Hið tímabundna lög- mæti er vandfundið í lögskýr- ingargögnum. Annar byskup, og háyfirdómari Lengi var að svo að fjármála- starfsemi hér á landi var aðeins í milliskrift hjá kaupmanni og sparnaður var í vaðmáli og sméri. Þó voru til auðmenn. Á nítjándu öld voru það bræður tveir frá Víðivöllum. Háyfir- dómari og byskup. Þeir stunduðu lánastarf- semi á sinni tíð, fyrir daga Landsbankans. Þegar byskupinn var búinn að lána þjóðsagna- safnaranum fyrir húsi, þá voru lánamálin leyst með því að byskupsdóttirin giftist fóstursyni þjóðsagnasafnarans. Byskupinn gaf svo dóttur sinni hús þjóðsagnasafnarans í brúðargjöf. Seðlabanki Fyrstu hugmyndir um banka á hinu endur- reista Alþingi voru árið 1847 þegar rætt var um seðlabanka. það var banki til að gefa út seðla til að greiða fyrir viðskiptum. Þarna virðist sú hugmynd komin fram að peningar, seðlar og mynt, séu almennt samþykkt til lúkningar skulda. Í umræðinni 1847 er aðal- atriðið ekki um fjármálastofnun til að stuðla að peningalegum sparnaði og lánaviðskiptum. Umræða um fjármálastarfsemi á Íslandi hefur aldrei komist á það stig að það sé samhengi milli innlána og útlána, miðlun fjármagns. Umræðan er aðeins sú að sparendur eigi að styrkja bónbjargarfólk með lánveitingum. Bónbjargarfólkið er að uppistöðu atvinnulíf. Mestur hluti lánsfjármagns er til atvinnulífis en vissulega þurfa einstaklingar á lánum að halda til að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Þá skiptir lánstíminn máli. Siðaðar þjóðir Á meðal siðaðra þjóða, sem vilja styðja við frelsi einstaklinga og þjóðfrelsi, þá er talið eðlilegt að einstaklingar eigi sem næst þriðj- ung eigna sinna í fasteignum, annan þriðjung í auðseljanlegum verðbréfum og það sem eftir er í lausu fé, en það eru peningar og peninga- ígildi, sem eru almennt samþykkt til lúkningar skulda. Það er tómt mál að tala um hlutabréfaeign almennings eftir þá meðferð, sem almenn- ingur hlaut á árunum 2003 til 2008. Eftirlits- menn eigenda hlutafélaga, endurskoðendur, voru staðnir að beinum lygum. Hlutabréfa- eigendur hafa engar bætur fengið frá endur- skoðendum, en það hafa kröfuhafar fengið. Það ríkir en vantraust á hlutabréfamarkaði. Hér á landi er leitast við að einstaklingar eigi ekki peningalegar eignir, eignir sem gefa af sér fjáreignatekjur. Því er á mörkum að þjóðin teljist til siðaðra þjóða. Stjórnmála- menn, hvar í flokki sem þeir standa, ganga hart fram í skattlagningu fjáreignatekna. Skilningur á skattandlagi Fæstir stjórnmálamenn skilja hvað er skattaandlag. Almennt er skattandlag verð- mætaaukning, en ekki verðmælisbreyting. Þannig er arður ekki skattandlag. Arður er ráðstöfun á hagnaði, og hagnaður er skatt- lagður í tveimur þrepum, hjá félaginu sem hagnast og hjá móttakanda arðs. Þannig er hagnaður skattlagður um 37,6% en ekki 20% eins og er skattlagningarhlutfall félaga því arður er skattlagður sérstaklega við útborgun. Fæstir skilja eðli verðbóta. Ef til vill, þegar verðbætur eru kynntar á ensku, en það er „inflation adjustment“. Verðbætur geta ekki verið skattandlag. En skattlagt hér um 22%. Gengismunur, sem verður til vegna gengis- falls gjaldmiðils gagnvart öðrum gjaldmiðli, er ekki skattandlag. Þá er erlendi gjaldmiðillinn jafn mikill í þeim gjaldmiðli, hvernig sem gengis þess gjaldmiðils þróast gagnvart öðr- um gjaldmiðli. Gengismunur er skattlagður um 22%, vegna skorts á skilningi á skatt- andlagi. Sumarbústaður er sumarbústaður og stækkar ekki um 25% þó að verðlag breytist um 25%. Þar sem enginn veit hvert er stofn- verð sumarbúastaðar, þá er helmingur and- virðis sumarbústaðar við sölu talinn til tekna og skattlagður um 22%. Því til viðbótar geta þessar verðmælingar komið til skerðingar á bótum almannatrygg- inga hjá skattþegni, ef við á. Dreifing á annarra manna eignum Skattlagning af því tagi, sem hér er lýst, er eignaupptaka vegna verðbólgu. Það er verð- bólga sem hefur skapað þessar verðmælis- breytingar. Eignaupptaka gerist fyrst og fremst hjá siðlausum þjóðum, og þá fyrst og fremst hjá þeim, sem telja sig hafa vitsmuni til að dreifa annarra manna eignum að geðþótta. Og refsa ráðdeild og sparsemi. Ef til vill finnst þeim þetta einfaldur hór, sem þeir eiga við samvisku sína. Frjáls þjóð í frjálsu landi Þjóð getur aðeins verið frjáls ef hún á frjáls- an sparnað. Þvingaður sparnaður í formi líf- eyriseignar er góður til síns brúks. Ef ekki eru hvatar til frjáls sparnaðar veit enginn eyðsl- una fyrr en öll er. Þá er frelsið farið og komið helsi í stað frelsis. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Ef ekki eru hvatar til frjáls sparnaðar veit enginn eyðsluna fyrr en öll er. Þá er frelsið farið og komið helsi í stað frelsis. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Fjárhagslegt frelsi og frelsi þjóðar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.