Morgunblaðið - 25.01.2020, Side 1

Morgunblaðið - 25.01.2020, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 5. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  21. tölublað  108. árgangur  BJARNI BEN FIMMTUGUR Á SUNNUDAG BÖRNIN SMAKKA ÞORRAMAT BARNABLAÐIÐAFMÆLI 38-39  Á læknadögum í Hörpu í vikunni hafa læknar fjallað um sjúk- dóminn ME/CFS sem ekki hefur verið rannsak- aður til hlítar. Einkenni hans eru helst síþreyta, minnis- leysi, höfuð- verkur, verkir í liðum og vöðvum, svefnvandamál og ofsaþreyta eftir áreynslu. Í Sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins er bæði rætt við bandarískan lækni og við 41 árs gamlan mann, Svein Benediktsson, sem þjáðst hef- ur af sjúkdómnum síðan 2015. „Það er veikindatilfinning í öllum líkamanum. Ég er búinn að vera svona bráðum í fimm ár, um 1.800 daga. Það er farið að taka toll.“ Veikur í 1.800 daga Sveinn Benediktsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Isavia, sem rekur flugvöllinn í Kefla- vík, er með tilbúna viðbragðsáætlun vegna svonefndrar kórónaveiru í Kína sem breiðst hefur út til nokkurra landa á síðustu dögum. Ekki er þó talin þörf á að virkja slíkan viðbúnað að svo stöddu og ekki víst að til þess þurfi að koma. Þrettán borgir í Kína eru í sóttkví, en þar búa um 40 milljónir manna. Alls hafa 26 látist af völdum veirunnar, sem veldur alvarlegri lungnasýkingu. Vitað er um meira en 800 staðfest tilfelli. Sóttvarnayfirvöld hér á landi fylgj- ast grannt með fréttum af veirunni. Hefur Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir í samvinnu við almannavarna- deild ríkislögreglustjóra hafið vinnu í samræmi við fyrirliggjandi viðbragðs- áætlanir um alvarlega smitsjúkdóma. Ferðamálastofa verður embætti land- læknis innan handar við að koma upp- lýsingum um veiruna og aðgerðir gegn henni til erlendra ferðamanna hér á landi. Fram kemur á vef landlæknis að viðbrögð við kórónaveirunni hér á landi felist í aðgerðum á Keflavíkur- flugvelli til að greina sýkta og hugsan- lega smitaða einstaklinga og koma þannig í veg fyrir frekari útbreiðslu. Munu farþegar sem til landsins koma fá skilaboð þess efnis að ef þeir eru með merki um öndunarfærasýkingu og hafi verið í borginni Wuhan í Kína undanfarnar tvær vikur, eða haft sam- gang við einstaklinga með grunaða eða staðfesta sýkingu, þurfi að gera á þeim læknisfræðilegt mat á flugvellinum. Framhald aðgerða ræðst síðan af læknisfræðilegu mati en einangrun farþega kemur til greina. Ekki er talin ástæða til að hitamæla alla farþega eða leggja fyrir þá spurn- ingalista á flugvellinum. Allar heilbrigðisstofnanir hér á landi hafa verið upplýstar um nýju veiruna. AFP Faraldur Kórónaveiran í Kína hefur leitt til þess að fresta hefur þurft hátíðahöldum vegna kínverska nýársins. Hvarvetna ber fólk sóttvarnargrímur. Viðbragðsáætlun tilbúin  26 hafa látist af völdum hinnar nýju kórónaveiru sem er tekin að breiðast út til annarra landa  Íslensk sóttvarnayfirvöld fylgjast grannt með þróun mála MKórónaveiran breiðist út »4, 23 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Stjórnendur Rio Tinto (RT) hafa ákveðið að verksmiðja fyrirtækisins í Straumsvík verði ekki keyrð á full- um afköstum í ár. Þannig muni framleiðslan nema 184 þúsund tonn- um á þessu ári en til samanburðar skilaði verksmiðjan 212 þúsund tonnum af áli á árinu 2018. Mikil frá- vik urðu í starfseminni á árinu 2019 þegar tæknilegir örðugleikar urðu til þess að slökkva þurfti á einum af þremur kerskálum verksmiðjunnar í júní síðastliðnum. Frá þeim tíma hefur verksmiðjan ekki verið keyrð á fullum afköstum. Jafnvirði 2,5 milljarða króna Ákvörðun RT um samdrátt í framleiðslunni hefur áhrif á tekjur Landsvirkjunar. Heimildir Morgun- blaðsins herma að vegna minni raf- orkunotkunar í Straumsvík verði fyrirtækið af 20 milljóna dollara tekjum, jafnvirði 2,5 milljarða króna. Sömu heimildir herma að RT hafi einhliða heimild til þess að draga með þessum hætti úr raforkukaup- unum. Fyrirtækið er annar stærsti kaupandi raforku af Landsvirkjun á eftir Alcoa-Fjarðaáli á Reyðarfirði. Hefur notkun RT numið um fjórð- ungi alls þess rafmagns sem Lands- virkjun framleiðir. Bjarni Már Gylfason, upplýsingafulltrúi RT í Straumsvík, segir aðspurður að ákvörðun fyrirtækisins um að keyra verksmiðjuna ekki á fullum afköst- um sé til komin vegna erfiðrar stöðu á álmörkuðum erlendis. Í viðtali við ViðskiptaMoggann á miðvikudaginn síðasta sagði Hörður Arnarson, for- stjóri Landsvirkjunar, að eftirspurn eftir raforku væri lítil um þessar mundir, einkum vegna veikrar stöðu á alþjóðlegum mörkuðum, einkum tengdum áli og kísilmálmi. Heim- ildir Morgunblaðsins herma að stjórnvöld hafi verið upplýst um stöðuna sem upp er komin vegna ákvörðunar RT. Fjármála- og efnahagsráðherra fer með hlutabréf ríkissjóðs í orkufyrirtækinu. Draga úr raforkukaupum  Álver Rio Tinto í Straumsvík hefur ákveðið að draga úr framleiðslu sinni um 15% á þessu ári  Samdrátturinn jafngildir 28 þúsund tonnum  Landsvirkjun verður af 20 milljónum dollara Morgunblaðið/Ómar Álver Straumsvík er annar stærsti viðskiptavinur Landsvirkjunar.  Óánægju gætir með að verk- efnum búnaðar- stofu, sem nýlega voru flutt frá Matvælastofnun til sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytis, hafi verið dreift á deildir þess í stað þess að vista þau á skrifstofu landbúnaðar og mat- væla eins og áformað var. Á bún- aðarstofu er safnað upplýsingum um búfjárhald, beingreiðslur fyrir framleiðslu greiddar út og fleira. Þessu er nú sinnt á skrifstofu fjár- laga og þjónustu í atvinnuvega- ráðuneyti. Sigurður Eyþórsson, fram- kvæmdastjóri Bændasamtaka Ís- lands, segir mikilvægt að búnaðar- stofa sé áfram sjálfstæð stofnun því þangað þurfi bændur oft að leita og ákvarðanir þar þurfi að vera hægt að kæra til æðra stjórnvalds, það er ráðuneytis, sem nú sé ekki lengur mögulegt. »10 Búnaðarstofa á tvist og bast Landbúnaður Fjár- rekstur í réttum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.