Morgunblaðið - 25.01.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 25.01.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020 sp ör eh f. Rokk, Elvis, djass, fljótabátar, plantekrur og kántrí. Hér er spennandi ferð um mið- og suðurríki Bandaríkjanna. Í Memphis heimsækjum við bæði Sun Studio þar sem Elvis hljóðritaði sína fyrstu plötu og Graceland, heimili kóngsins. Við siglum á dæmigerðum fljótabát á Mississippi, heimsækjum tónlistarborgina Nashville og könnum gamla, franska hverfið í New Orleans, fæðingarstað djasstónlistarinnar. Allir velkomnir á kynningarfund mánudaginn 27. janúar kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson Kynntu þér úrval ferða á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík 19. - 31. október NewOrleans -Nashville -Graceland Í fréttaskýringu í Morgunblaðinuí gær var sagt frá þróun launa hér og erlendis á nýliðnum ár- um. Fram kom að laun á al- mennum mark- aði hækkuðu um 41% frá janúar 2015 til október í fyrra. Þessi gríðar- lega launahækkun verður á sama tíma og vísitala neysluverðs hækk- ar um tæp 13%, sem sýnir hve mjög kaupmáttur hefur aukist á skömm- um tíma.    Ekki er síður áhugavert að sjáað í ríkjum ESB hækkuðu laun um 2,7% frá 2015 til 2018 í evr- um talið, en hér var hækkunin á sama mælikvarða 38,7%.    En þó að þetta sé ánægjulegt eraugljóst er að þessi þróun get- ur ekki haldið áfram hér á landi á sama hraða. Fjöldi fyrirtækja stendur ekki lengur undir þeim miklu hækkunum sem samið hefur verið um og eins og Yngvi Harðar- son hagfræðingur bendir á í fyrr- nefndri fréttaskýringu er þessi þró- un ósjálfbær til lengri tíma og kallar á leiðréttingu.    Hann nefnir tvo möguleika;gengislækkun eða aukna framleiðni, sem geti verið ný fram- leiðslutækni og/eða fækkun starfs- fólks. Gengislækkun sé ólíkleg og einnig er ólíklegt að framleiðslu- tækni breytist það hratt að hún standi undir áframhaldandi launa- hækkunum á óbreyttum hraða.    Þá stendur aðeins eftir fækkunstarfa. Það er sá kostur sem verkalýðshreyfingin ætti að vilja forðast, en svo virðist sem sumir forystumenn hennar séu ekki endi- lega á þeim buxunum. Ósjálfbær launaþróun STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tölur um birgðir í yfirliti atvinnu- vegaráðuneytisins um framleiðslu og sölu á kjöti sýna ekki raunverulegar birgðir af nautakjöti, alifuglakjöti, svínakjöti og hrossakjöti. Birgðirnar liggja hjá kjötvinnslum en í yfirlitinu er eingöngu að finna upplýsingar um starfsemi afurðastöðva en ekki kjöt- vinnslna, jafnvel þótt vinnslurnar séu sumar hverjar starfræktar í nánum tengslum við sláturhúsin. Fram kom í grein um sölu á kjöti á nýliðnu ári, sem birtist í blaðinu í gær, að Kaupfélag Skagfirðinga og Slátur- félag Suðurlands hefðu lækkað verð til bænda á kýrkjöti um 10-11% um eða fyrir áramótin. Ástæðan væri m.a. birgðasöfnun. Steinþór Skúlason, for- stjóri Sláturfélags Suðurlands, segir að birgðir Sláturfélagsins á naut- gripakjöti og öðru kjöti af stórgripum komi ekki fram í opinberum skýrslum þar sem þær séu í eigu kjötvinnslu fé- lagsins en ekki afurðadeildar. Telur hann að það sama gildi um önnur fyrirtæki. Aukinn þrýstingur á markaði Ástæðan fyrir því að birgðir hafa aukist er að sögn Steinþórs sú að nú eru biðlistar eftir slátrun nautgripa. Sláturfélagið taki við fleiri gripum til slátrunar en þörf sé á fyrir markaðinn um þessar mundir. Með þessu vilji fyrirtækið koma til móts við bændur sem þurfi að losna við gripi og taki á sig kostnað við þessa þjónustu. Jafn- framt segir hann að búast megi við auknum þrýstingi á markaðnum vegna innflutnings á ófrosnu kjöti sem hefur verið heimilaður. Býst hann við að hann hefjist og komi meira fram í innflutningi á nautgripakjöti en svína- og alifuglakjöti. helgi@mbl.is Birgðir nautgripakjöts hjá vinnslum  Birgðirnar sjást ekki í opinberum skýrslum  Biðlistar eftir slátrun nautgripa Í gær var plastbáturinn Sjávar- perlan hífður upp úr Flateyrarhöfn eftir að hafa lent í snjóflóðinu í síð- ustu viku. Með þessu eru fjórir bátar af sex komnir á land. „Þetta er sennilega eini báturinn sem hægt er að segja með fullri vissu að sé ónýt- ur,“ segir Guðmundur Kristjánsson hafnarstjóri sem væntir þess að hreinsun við höfnina ljúki í næstu viku. Í gær var tilkynnt skipun starfs- hóps sem hefur það hlutverk að treysta atvinnulíf og búsetu á Flat- eyri í kjölfar snjóflóðsins. Huga á að samfélagslegum innviðum og gera tillögur til eflingar byggð. Formaður er Teitur Björn Einarsson lögmaður frá Flateyri. Aðrir í hópnum eru Lísa Krist- jánsdóttir, aðstoðarmaður forsætis- ráðherra, Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Guð- mundur Gunnarsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, og Steinunn Guðný Einarsdóttir á Flateyri, varabæjar- fulltrúi í Ísafjarðarbæ. Ljósmynd/Eyþór Jóvinsson Björgun Fjórir af sex bátum sem skemmdust í snjóflóðinu komnir í land. Sjávarperlan hífð úr Flateyrarhöfn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.