Morgunblaðið - 25.01.2020, Page 25

Morgunblaðið - 25.01.2020, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020 Veggjalist Vissara er fyrir vegfarendur í miðborginni að klæða sig vel í kuldanum. Þetta par geystist framhjá veggjalistaverki á Skólavörðustíg í vikunni og veitti litadýrðinni litla athygli. Eggert Stangveiðimenn og aðrir sem tengjast þeim, innlendir sem er- lendir, fara mikinn um þessar mundir í um- ræðunni um fiskeldi á Íslandi. Því miður er það svo að þegar mönnum er heitt í hamsi virðist sem reið- in blindi þeim sýn. Því er gott öðru hvoru að stinga niður penna og reyna að víkka sjóndeildarhringinn. Kýr, hreindýr, lax og gagnaver Ungur kúabóndi sem kaupir jörð yrkir jörðina til að fóðra kýrnar og framleiða matvæli sem framfleyta honum og fjölskyldunni. Fyrir utan jarðnæðið er bóndinn ekki að nýta takmarkaða náttúruauðlind landsins – hann kemur með kýrnar á jörðina og elur þær og nýtir. Annað á við um þá sem nýta villta hreindýrastofn- inn. Þar er takmarkaður aðgangur í takmarkaða auðlind sem þarf að nýta með ábyrgum og sjálfbærum hætti svo auðlindin þurrkist ekki út heldur nýtist komandi kynslóðum. Sama á við um hinn hefðbundna sjávarútveg sem nýtir auðlindir sjávar á ábyrgan og sjálfbæran hátt sam- kvæmt vísindalegri ráðgjöf. Laxabóndinn er und- ir sama hatt settur og kúabóndinn. Hann hef- ur „jarðnæði“ í firði til umráða, fóðrar sína fiska og skapar þannig tekjur og afkomu. Hann framleiðir nær- ingarrík dýraprótín með einu minnsta kol- efnisspori sem þekkist í matvælaframleiðslu. Laxabóndinn er ekki að nýta takmarkaða auðlind nema þá það svæði sem afnotaréttur nær til. Þeir sem kaupa sér hins vegar laxveiðijörð, jafnvel allan dal- inn, eru að eignast takmarkaða auð- lind sem er villtur laxastofn árinnar sem að sama skapi þarf að umgang- ast á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Erlent gagnaversfyrirtæki sem setur upp starfsemi á Íslandi nýtir til þess orku framleidda á umhverfisvænan hátt. Sú orka er að einhverju leyti takmörkuð og ekki nýtt af öðrum á meðan. Stjórnvöld og sveitarfélög hafa leitast við að fá slíka erlenda fjárfestingu enda skap- ar hún bæði störf og verðmæti. Ég tel afar ólíklegt að sveitarstjórn- arfólk, eða aðrir sem töluðu fyrir slíkri uppbyggingu í hinum dreifðu byggðum landsins, væri vænt um að ganga annarlegra erinda gagnavers- fyrirtækjanna, vonast eftir góðri stöðu eða væru með einhverjum hætti að kyssa hring viðkomandi atvinnugreinar. Frelsi fyrir suma en ekki aðra? Fiskeldi er á heimsvísu vaxandi atvinnugrein og hefur nú þegar skapað á Íslandi hundruð starfa og útflutningsverðmæti upp á tugi milljarða og aukið byggðafestu í mörgum byggðarlögum á Vest- fjörðum og Austfjörðum. Stang- veiðimenn og talsmenn þeirra virð- ast stundum sjá ofsjónum yfir þeim vexti sem orðið hefur í greininni og þeir óttast þessa þróun. Ég held að sá ótti sé að mestu óþarfur. Eignarhaldið í greininni er mörg- um þeirra hugleikið og þykir þeim slæmt að fjárfestar skuli vera norskir. Verður það að játast að það lítur frekar kómískt út að sjá helstu kyndilbera frjáls markaðar tala fyrir einangrunarhyggju, mótstöðu við erlendar fjárfestingar og atvinnu- frelsi. Á sama tíma eru þeir hinir sömu að selja (undanþegnir virðis- aukaskatti!) veiðileyfi til ríkra út- lendinga í íslenskar laxveiðiár, margar hverjar í eigu erlendra aðila. Aðrir íslenskir eigendur laxveiðiáa hafa sumir hverjir eignast sinn auð með starfsemi erlendis og notað til að kaupa upp heilu og hálfu árnar fyrir sig og sína. Því hlýtur manni að vera spurn hvort hinn frjálsi mark- aður sé bara ætlaður sumum en ekki öðrum? Því neita ég að trúa upp á þessa ágætu félaga mína. Hverjir vildu fjárfesta? Þessum heiðursmönnum til upp- lýsinga er nú bara staðreyndin sú að þegar leit að fjárfestum í uppbygg- ingu á laxeldi stóð sem hæst fyrir nokkrum árum var þetta ekki fjár- festingarkostur sem hugnaðist ís- lenskum fjárfestum eða lánveit- endum. Því er það fagnaðarefni að erlent fjármagn fékkst og einnig að- ilar sem hafa reynslu af uppbygg- ingu á fiskeldi og geta miðlað af reynslu sinni og þekkingu. Kannski ekki ólíkt og þegar Norðmenn voru í fararbroddi í að veiða síld við strendur Íslands. En samhliða því byggðust ótal svæði um allt land, þekking varð til og kunnáttan til að nýta síldina, sem Íslendingum var áður alls ókunn. Í dag hefur greinin fjárfest fyrir tugi milljarða í atvinnuuppbyggingu fyrir vestan og austan, án nokkurrar aðkomu ríkis í formi niðurgreiðslna, skattaívilnana eða annarra fjárfest- ingarsamninga. Þessi uppbygging er sjálfsprottin og sjálfbær innspýt- ing í íslenskt hagkerfi. Okkar sameiginlega áhyggjuefni Ég, sem stangveiðimaður, tek undir það viðhorf félaga minna að hnignun Atlantshafslaxastofnsins er áhyggjuefni. Hún er þó fyrst og fremst tilkomin vegna umhverfis- áhrifa sem eru alls ótengd laxeldi. Hér á landi hefur því að hluta verið mætt með fiskeldi í formi seiða- sleppinga og fiskiræktar. Þrátt fyrir mjög óvægna baráttu sumra stang- veiðiaðila að undanförnu er það mín skoðun að það sé hagur þjóðar- búsins að bæði stangveiði sem og fiskeldi nái að vaxa og dafna til framtíðar. Gangi ykkur allt í haginn og megi ykkur farnast vel í rekstri ykkar og atvinnuuppbyggingu í framtíðinni. Eftir Jens Garðar Helgason » Því hlýtur manni aðvera spurn hvort hinn frjálsi markaður sé bara ætlaður sumum en ekki öðrum Jens Garðar Helgason Höfundur er formaður SFS, fram- kvæmdastjóri Laxa Fiskeldis og stangveiðimaður. Eitt útilokar ekki annað Sá mikli uppgangur sem verið hefur í flugi og ferðaþjónustu síð- asta áratuginn hefur gegnt lykilhlutverki í endurreisn íslensks hagkerfis, skapað verð- mæti, ný störf, bætt lífskjör í landinu, jafn- að árstíðasveiflur og haft góð áhrif á byggðaþróun. Ferða- þjónustan hefur drifið hagvöxt síð- asta áratuginn. Útflutnings- verðmæti greinarinnar er nú yfir 500 milljarðar og hún er þannig orð- in stærsta útflutningsgrein landsins. Um tvær milljónir ferðamanna komu til landsins á síðasta ári og um sjö milljónir farþega fóru í gegnum Keflavíkurflugvöll. Hvort tveggja skapar mikil verðmæti fyrir þjóð- arbúið og mun gera áfram ef rétt er á spilum haldið. Verðmætasköpun Til ársins 2019 var vöxturinn hraður og það hefur verið lærdóms- ríkt að takast á við hann. Ljóst er að svo hraður vöxtur er hvorki sjálfbær né hagkvæmur og er ferðaþjónustan nú að ná jafnvægi eftir þetta mikla uppgangstímabil. Við munum þó byggja á góðum grunni til fram- búðar þar sem mikill árangur hefur náðst í að þróa öflugt þjón- ustuframboð fyrir ferðamenn um land allt, hvort sem um er að ræða vandaða hótel- og gistiþjónustu, veit- ingarekstur eða fjöl- breytta afþreyingu, svo eitthvað sé nefnt. Fyrir fluginu og ferðþjónust- unni liggja því mikil tækifæri til þess að vaxa á öflugan og sjálfbæran hátt til lengri tíma. Efnahagsleg sjálfbærni byggist á stöðugri uppbyggingu en ekki sveifl- um og ef við ætlum að byggja á þeim grunni sem nú þegar er til staðar þurfum við að huga að slíkri upp- byggingu með áherslu á verðmæta- sköpun og arðsemi. Þannig sköpum við fleiri heilsársstörf, þannig byggj- um við upp öfluga innviði og þannig náum við að hámarka ánægju þeirra ferðamanna sem hingað koma. Hrá- efnið höfum við af náttúrunnar hendi; jöklana, fossana, fjöllin, firð- ina, heitu svæðin, auðnina, norður- ljósin og við það bætast íslensk menning og listir. Við getum skapað enn frekari verðmæti úr þessum auðlindum með því að taka skyn- samlegar ákvarðanir um framtíðina. Ný stefnumörkun stjórnvalda varðandi framtíð íslenskrar ferða- þjónustu er mjög skynsamleg. Þar eru lykilstefin sjálfbærni og arð- semi. Þetta er í takt við stefnu og málflutning Icelandair Group til margra ára. Við Íslendingar eigum ekki að horfa á fjölda ferðamanna sem koma til landsins heldur gæði þeirra og þau verðmæti sem skap- ast. Innan við 3% af heildarlosun Hagkerfi heimsins eiga mikið undir skilvirkum flugsamgöngum og fáar þjóðir jafn mikið og Íslend- ingar. Við treystum á flug- samgöngur bæði fyrir fólks- og vöru- flutninga, þær stuðla að hagsæld og eru nauðsynlegar til að viðhalda við- skipta- og menningarlegum tengslum. Á sama tíma veldur flug kolefn- isútblæstri og því tekur flugiðnaður- inn á heimsvísu umhverfismál mjög alvarlega. Mikil samvinna hefur ver- ið um aðgerðir í loftslagsmálum um árabil á vettvangi IATA, sem eru al- þjóðleg samtök flugfélaga. IATA hefur til að mynda sett sér það markmið að draga úr nettó útblæstri um 50% fyrir árið 2050. Þá hefur al- þjóðlegu kolefnisjöfnunarkerfi verið komið á fót til að bregðast við aukn- ingu í útblæstri frá og með þessu ári. Við sjáum miklar framfarir nú þeg- ar. Flugvélaframleiðendur eru sífellt að þróa flugvélar þannig að þær verði umhverfisvænni. Flugvélar brenna nú minna af eldsneyti en áð- ur og losa því minna út í andrúms- loftið, en losun hefur minnkað um yf- ir 50% á floginn farþegakílómetra síðan 1990. Þessari þróun er hvergi nærri lokið og við eigum eftir að sjá enn frekari framfarir í flugvélafram- leiðslu á komandi árum. Það er mikilvægt að við horfum á loftslagsmálin í víðu samhengi. Þrátt fyrir að flugiðnaðurinn leggi sitt á vogarskálarnar til að draga úr losun þá er það ekki nóg. Einungis tæp- lega 3% af kolefnisútblæstri í heim- inum má rekja til flugsamgangna þannig að jafnvel þótt farþegaflug væri lagt af stæðu 97% af vandanum eftir, að öllu öðru óbreyttu. Þetta er því verkefni okkar allra. Metnaðarfull markmið Icelandair hefur náð góðum árangri á undanförnum árum í því að draga úr losun. Nýjar flugvélar, breytingar á eldri vélum, fjárfest- ingar í ýmsum tækja- og hugbúnaði og breytt vinnulag hafa skilað áþreifanlegum árangri nú þegar. Fé- lagið hefur jafnframt sett fram metnaðarfull markmið um að draga úr losun til lengri tíma litið sem snúa að mestu að endurnýjun flotans. Við höfum einnig boðið farþegum að kol- efnisjafna flugferðir sínar frá því síð- astliðið haust. Þá er Icelandair Group eitt af fáum flugfélögum í heiminum sem eru með umhverfis- vottun á nánast alla starfsemi sína. Við erum meðvituð um þessa ábyrgð, störfum markvisst sam- kvæmt henni og munum gera áfram. Áfangastaðurinn Ísland er þekkt- ur fyrir náttúru og hreinleika. Það er undir okkur komið að viðhalda þeim gæðum sem náttúran hefur fært okkur og skapa verðmæti úr þeim með sjálfbærum hætti til framtíðar. Eftir Boga Nils Bogason » Icelandair Group er eitt af fáum flug- félögum í heiminum sem eru með umhverfis- vottun á nánast alla starfsemi sína. Við erum meðvituð um þessa ábyrgð, störfum mark- visst samkvæmt henni. Bogi Nils Bogason Höfundur er forstjóri Icelandair Group. Stöðugleiki til framtíðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.