Morgunblaðið - 25.01.2020, Síða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2020
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar
er 40 ára og af þeim sökum er dag-
skrá hátíðarinnar, sem hefst í dag,
sérlega fjölbreytileg, með um tutt-
ugu tónleikum og ýmsum öðrum
uppákomum næstu átta dagana.
Tónleikar verða víða, í Hörpu, Nor-
ræna húsinu, Mengi, Salnum, Hann-
esarholti og Iðnó, og meðal fjöl-
skrúðugs hóps flytjenda eru
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput,
Kammersveit Reykjavíkur og
Strokkkvartettinn Siggi. Meðal er-
lendra gesta eru hið kunna breska
tónskáld Gavin Bryars, en Caput
flytur verk hans „Úr Egils sögu“
(2004) í Breiðholtskirkju á mið-
vikudagskvöldið kemur og tekur
færeyski stórsöngvarinn Rúni
Brattaberg þátt í flutningnum.
„Við tókum upptakt að afmælis-
dagskránni í fyrra og lengdum há-
tíðina upp í viku,“ segir Gunnar Kar-
el Másson, listrænn stjórnandi
Myrkra músíkdaga, og bætir við að
hátíðin hafi verið svona löng fyrstu
árin en verið komin niður í þrjá daga
fyrir nokkrum árum. Stofnað var til
hátíðarinnar af Tónskáldafélagi Ís-
lands sem vettvangs fyrir íslensk
tónskáld til að fá verk sín flutt.
Gunnar Karel segir að á síðustu
árum hafi hátíðin líka farið fram á
fleiri stöðum en um langt skeið þar á
undan. „Við leitum samt líka í Hörpu
enda hefur Sinfóníuhljómsveitin ver-
ið með á Myrkum frá upphafi, eins
og Kammersveitin og Caput nánast
frá stofnun þeirra. Og þessar þrjár
hljómsveitir má kalla hryggjar-
stykkið í hátíðinni og hefur sam-
starfið verið gæfuríkt. En hátíðin er
líka vettvangur fyrir yngri tónskáld
og flytjendur og við höfum reynt að
setja það á oddinn nú að horfa á
þessum tímamótum til framtíðar.“
Sem dæmi nefnir hann flutning á
Blóðhófni, kammeróperu eftir Krist-
ínu Þóru Haraldsdóttur við ljóð
Gerðar Kristnýjar; dagskrá þar sem
Hlökk frumflytur tónleikainn-
setningu þar sem frumraun hennar í
plötuútgáfu verður flutt í heild sinni;
og tónleika hins bresk-íslenska Ekki
minna duos, sem starfrækt er í
Kaupmannahöfn og einsetur sér að
flytja nýja norræna tónlist.
Þegar spurt er hvernig gangi að
halda úti hátíð sem snýst um nýja og
framsækna tónlist segir Gunnar
Karel það hjálpa nú að hátíðin sé nú
formlega ein af hátíðum Reykja-
víkurborgar. „Svo hefur áhuginn á
þessari tónlist aukist jafnt og þétt á
síðustu árum. Í því samhengi má
nefna hvernig Hildur Guðnadóttir er
að opna augu Hollywood-heimsins
fyrir framsækinni tónlist með verk-
um sínum. Mikið af þessari músík
hefur haft óbein áhrif á ýmsa lista-
menn, streymið hefur breytt lands-
laginu nokkuð og svo hefur mennt-
unarstig listamanna hér hækkað
eftir að Listaháskólinn kom inn á
sviðið. Enda hefur aðsókn að hátíð-
inni verið að aukast. Þá höfum við
markvisst verið að setja grasrótina í
samhengi við eldri tónsmiði og eldri
músík og það er af nógu að taka. Það
er mikilvægt að fjölbreytileikinn sé í
fyrirrúmi á hátíðinni.“
Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi
Myrkir músíkdagar hefjast í kvöld Hátíðin fagnar 40 ára afmæli Gras-
rótin markvisst sett í samhengi við eldri tónsmiði og eldri músík Aukin aðsókn
Ljósmynd/Friðgeir Einarsson
Stjórnandinn Gunnar Karel Másson segir markvisst horft til framtíðar í afmælisdagskrá Myrkra músíkdaga.
Sýning á verkum fimm finnskra
samtímalistamanna verður opnuð í
galleríinu Kling og Bang í Mar-
shallhúsinu í dag kl. 17 og ber hún
yfirskriftina Elämän vesi eða Lífs-
ins vatn. Titillinn getur vísað í
margt, segir í tilkynningu, t.d.
Opinberunarbókina, samnefnt
ævintýri eftir Grimms-bræður,
brennivín og æskubrunninn og get-
ur ýmist verið dulrænn og yfirnátt-
úrulegur eða hversdagslegur og
blátt áfram. Þátttökugjörningur
eftir Ilona Valkonen verður fram-
inn við opnunina.
Lífsins vatn Kynningarmynd fyrir sýn-
inguna í galleríinu Kling og Bang.
Titill sem getur
vísað í margt
Gallerí Fold opnar í dag kl. 14 sýn-
inguna Árstíðir. Á henni má sjá verk
eftir Víði „Mýrmann Þrastarson sem
sýna árstíðirnar og segir í tilkynn-
ingu að dulúðugar og rómantískar
aðstæður setji svip á verkin og að
Víðir noti táknrænar ímyndir á borð
við kýr, kindur, hrafna og báta til að
leiða áhorfandann í gegnum óskerta
náttúru og óbyggðir. „Fræðilegur
grunnur verkanna er vandlega
rannsakaður og notast Mýrmann við
hugmyndir táknfræði, rómantíkur,
dulspeki og sjamanisma. Áskorunin
sem Mýrmann setti sér fyrir þessa
sýningu var að bera saman listina
sem hugmynd og listina sem hlut í
raunheimum,“ segir í tilkynningu.
Listin sem hug-
mynd og hlutur
Árstíð Málverk eftir Mýrmann.
Á mánudaginn kemur, 27. janúar,
verður haldið upp á fæðingardag
tónskáldsins Wolfgangs Amadeusar
Mozart, sem fæddist árið 1756, með
árlegum afmælistónleikum á Kjar-
valsstöðum. Tónleikarnir hefjast
klukkan 18 og fluttir verða þrír
kunnir kvartettar tónskáldsins,
tveir fyrir flautu og strengi og einn
fyrir óbó og strengi. Flytjendur eru
Björg Brjánsdóttir flautuleikari,
Matthías Nardeau óbóleikari, Lauf-
ey Sigurðardóttir á fiðlu, Þórunn
Ósk Marínósdóttir á víólu og Bryn-
dís Halla Gylfadóttir á selló. Nanna
Kristjánsdóttir sagnfræðingur mun
fjalla um tónskáldið og tónlistina.
Þetta er 22. árið í röð sem tón-
leikar eru haldnir hér á fæðingar-
degi Mozarts og hefur Laufey stað-
ið fyrir þeim frá upphafi. Hún segir
að það hafi ávallt verið ánægjulegt
og viðeigandi að leika tónlist hins
mikla meistara innan um málverk
Jóhannesar Kjarvals á Kjarvals-
stöðum.
„Markmiðið hefur verið að flytja
sem fjölbreytilegast úrval verka
Mozarts á þessum tónleikum.
Stundum höfum við stillt saman
ófullgerðum verkum með öðrum
kunnum,“ segir Laufey og bætir við
að efnisskráin mótist þó af því fjár-
magni sem aðstandendur hafi úr að
moða hverju sinni.
„Það er gaman að leika með
Björgu, sem er ungur flautuleikari
sem ég hef ekki leikið með áður en
hef samt þekkt nánast síðan hún
fæddist,“ segir Laufey hlæjandi og
hrósar þeim Matthíasi báðum í há-
stert. „Verkin sem þau flytja eru
mjög falleg og vinsæl, tónlist sem
allir flautuleikarar og óbóleikarar
þekkja og læra. Þá verður gaman að
heyra Nönnu, sem er ungur sagn-
fræðingur, segja okkur frá Mozart.“
Og Laufey bætir við að eins og með
verk annarra klassískra listamanna
eigi tónlist Mozarts „alltaf erindi“.
Tónleikarnir standa í um klukku-
stund, aðgangseyrir er 2.000 kr. og
posi á staðnum.
Leika verk Mozarts
á fæðingardegi hans
Afmæli Tónleikarnir eru haldnir á
fæðingardegi Wolfgangs Amadeus-
ar Mozarts á mánudag.
Opnunarathöfn Myrkra músíkdaga
verður kl. 19 í kvöld og verða þá út-
nefndir tveir heiðursfélagar. Dag-
skráin hefst síðan kl. 20 með tón-
leikum Strokkvartettsins Sigga,
sem leikur 15. strengjakvartett
Dímítrí Sjostakovits, en verkið var
leikið fyrir 40 árum á fyrstu tón-
leikum hátíðarinnar.
Meðal annarra viðburða hátíðar-
innar má nefna flutning Blóðhófn-
is, kammeróperu Kristínar Þóru
Haraldsdóttur, í Iðnó kl. 20 á
sunnudag; ljóðasveiginn Kafka
Fragments eftir ungverska tón-
skáldið Györgys Kurtág í Mengi á
mánudagskvöldið í flutningi Her-
dísar Önnu Jónasdóttur sópran-
söngkonu og Elfu Rúnar Kristins-
dóttur fiðluleikara; og tónleika
Caput, Veronique Vaka og K.óla í
Breiðholts-
kirkju á mið-
vikudags-
kvöldið þar
sem færeyski
bassinn og
stjörnu-
söngvarinn
Rúni Bratta-
berg flytur verk
Gavins Bryars.
Á fimmtudag frumflytur Dúó
Freyja ný tónverk eftir sex íslensk-
ar konur á tónleikum í Hann-
esarholti; á fimmtudag spinna
bassaleikararnir Bára Gísladóttir
og Skúli Sverrisson í Mengi og
kvöldið áður flytur Sinfóníu-
hljómsveitin dagskrána Hjakkað á
Myrkum. Dagskrána má sjá á vefn-
um myrkir.is
Sum frumflutt, önnur klassísk
RÚMLEGA VIKULÖNG TÓNLISTARHÁTÍÐ FRAM UNDAN
Rúni Brattaberg
Sími 552 2018 • info@tasport.is
Sjá allar okkar ferðir ogmeiri upplýsingar á
1.-5. október
tasport.is
Elton John
í Barcelona
Innifalið:
Flug, skattar og gjöld. 20 kg innrituð taska og 10 kg
handfarangur. Gisting á 4* hóteli meðmorgunmat
í 4 nætur.Miði á Elton John tónleikana 2. október.
Rúta á tónleikana og til baka. Rúta til og frá flugvelli
í Barcelona. Íslensk fararstjórn.
Frekari upplýsingar í síma 552 2018
eða info@tasport.is
Verð frá 156.800
Elton John er þessa stundina
á ferð og flugi út um allan heim
með Farewell YellowBrick Road
tourinn.
Þetta er síðasta tónleikaferða-
lagið hjá Elton ogmá búast við
að nú verði öllu tjaldað til.
Hann verður í Palau Sant Jordi
tónleikahöllinni í Barcelona.
Ath.
Takmarkaðurfjöldi sæta
í boði