Morgunblaðið - 03.04.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2020
3. apríl 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 141.38 142.06 142.7
Sterlingspund 174.77 175.61 176.66
Kanadadalur 99.37 99.95 100.31
Dönsk króna 20.736 20.858 20.915
Norsk króna 13.517 13.597 13.73
Sænsk króna 13.972 14.054 14.271
Svissn. franki 146.4 147.22 147.75
Japanskt jen 1.3019 1.3095 1.3276
SDR 192.94 194.08 194.93
Evra 154.87 155.73 156.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.6599
Hrávöruverð
Gull 1594.25 ($/únsa)
Ál 1489.0 ($/tonn) LME
Hráolía 23.0 ($/fatið) Brent
Nýr formaður Samtaka iðnaðarins
verður kynntur á rafrænum aðal-
fundi hinn 30. apríl næstkomandi.
Vikurnar tvær á undan fer fram
kosning um embættið ásamt stjórn-
arkjöri. Guðrún Hafsteinsdóttir,
sem gegnt hefur embætti formanns
síðustu ár, er ekki í framboði.
Tvö hafa lýst yfir framboði en
framboðsfrestur rann út um miðjan
síðasta mánuð. Annars vegar er það
Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur
Marel, en hann er varaformaður SI
og hefur setið í stjórn frá árinu 2016.
Hins vegar er í framboði Guðlaug
Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnar-
formaður Límtrés Vírnets og Sec-
uritas. Hún er framkvæmdastjóri
Stekks fjárfestingarfélags sem er
stærsti eigandi fyrrnefndra félaga.
Þá eru sjö einstaklingar í fram-
boði og etja kappi um fimm sæti í að-
alstjórn samtakanna. Það eru Arna
Arnardóttir, formaður Félags ís-
lenskra gullsmiða, Birgir Örn Birg-
isson, framkvæmdastjóri Dominos,
Egill Jónsson, framkvæmdastjóri
framleiðslusviðs Össurar, Margrét
Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarfor-
stjóri Carbon Recycling Inter-
national, Steinþór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Björnsbakarís,
Valgerður Hrund Skúladóttir, fram-
kvæmdastjóri Sensa, og Vignir
Steinþór Halldórsson, stjórnar-
formaður MótX.
Nýr for-
maður SI
í lok apríl
Árni
Sigurjónsson
Guðlaug K.
Kristinsdóttir
Tvö í framboði
STUTT
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Gera má ráð fyrir að hagnaður
Landsvirkjunar á árinu 2020 verði
talsvert minni en árið 2019 þegar
hann reyndist 13,6 milljarðar króna.
Þetta segir Hörður Arnarson, for-
stjóri fyrirtækisins, í samtali við
Morgunblaðið.
Bendir hann á
að þverrandi eft-
irspurn á mörk-
uðum erlendis
komi illa við
marga viðskipta-
vini fyrirtækisins
og það valdi því
að fæstir þeirra
haldi uppi fullum
afköstum um
þessar mundir.
„Það er sveigj-
anleiki í flestum samningum sem
gerir þeim kleift að draga úr fram-
leiðslunni en við getum ekki selt
raforkuna annað á meðan. Sumir
þessara viðskiptavina eru birgjar
fyrir verksmiðjur erlendis og í sum-
um tilvikum hefur þeim hreinlega
verið lokað tímabundið vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar. Sam-
dráttur í framleiðslu er þá eðlilegt
viðbragð við þeirri þróun,“ segir
Hörður.
Veita lengri greiðslufresti
Hann segir að Landsvirkjun vinni
náið með viðskiptavinum sínum og
vilji tryggja samkeppnishæfni sína
til lengri tíma litið. Því leiti fyrir-
tækið leiða til að koma til móts við
viðskiptavini sína, m.a. með lengri
greiðslufresti þar sem það á við.
Fyrir skemmstu var greint frá
því að Rio Tinto í Straumsvík hefði
kallað eftir samtali um endurskoðun
á raforkukaupasamningi við LV
vegna breyttra markaðsaðstæðna.
Hörður segir að það samtal standi
enn yfir.
„Í því samtali eins og öðrum horf-
um við til langtímaþróunar og horf-
urnar í þeim efnum hafa fremur
versnað en hitt. Við munum áfram
leita leiða til að styðja við okkar við-
skiptavini.“ Hann vill þó ekki gefa
neitt uppi um hvort til greina komi
að lækka raforkuverð til stórnot-
enda. Hins vegar er ljóst að það
hefur í mörgum tilvikum lækkað
enda stórir samningar fyrirtækisins
annaðhvort tengdir þróun á heims-
markaðsverði á áli eða þróun raf-
orkuverðs í Nord Pool, norrænu
kauphöllinni með raforku. Spurður
út í hvort Landsvirkjun hafi ein-
hvern tíma séð þá markaði taka
aðra eins dýfu og nú í marsmánuði
segir Hörður að fá dæmi séu um
slíkt.
„Álverðið er á svipuðum slóðum
og það var 2016 en kannski ívið
lægra. Hvað Nord Pool-markaðinn
varðar þá hefur hann aldrei svo ég
muni verið jafn lágur og nú.“
Raforkuverð í frjálsu falli
Til marks um stöðuna á þeim
markaði má nefna að um miðjan
febrúar var sagt frá því í frétta-
skýringu í Morgunblaðinu að verðið
í kauphöllinni væri í sögulegu lág-
marki. Þá stóð megavattsstundin í
14 evrum. Í gær var verðið fyrir
raforku sem afhent verður í dag,
komið í 4,17 evrur. Álverð er í
kringum 1.500 dollara á tonnið en
um nýliðin áramót stóð það í rúm-
um 1.800 dollurum. Eftir hrunið á
fjármálamörkuðum fór það lægst
niður fyrir 1.300 dollara í febrúar
2009.
Í opinberri umfjöllun hefur komið
fram að Rio Tinto skoði þann mögu-
leika að loka verksmiðju sinni í
Straumsvík. Þær erfiðu aðstæður
sem nú eru á mörkuðum vekja því
spurningar um hvort Landsvirkjun
telji hættu á að stórir viðskiptavinir
fyrirtækisins muni hreinlega hætta
starfsemi.
Rykið þarf að fá að setjast
„Ég tel ekki rétt að reyna að
leggja mat á það núna þegar við
stöndum í storminum miðjum. Það
verður betra að leggja mat á það
þegar rykið er aðeins sest. Þá bend-
ir hann á að gagnaverin, sem hafa
komið inn á markaðinn sem stórir
kaupendur að raforku á síðustu ár-
um, skipti miklu máli nú þegar
gagnamagnsnotkun eykst hröðum
skrefum.
„Þar er eftirspurnin mikil þótt
mikið bakslag hafi komið í bitcoin-
starfsemina. Við gerðum reyndar
alltaf ráð fyrir að þar væri um tíma-
bundinn markað að ræða og þróun-
in þar kemur ekki endilega á óvart
en í heild er mikill kraftur í starf-
semi þessara vera.“
Þrátt fyrir þá miklu óvissu sem
nú er uppi segir Hörður að Lands-
virkjun sé vel í stakk búin til að tak-
ast á við krefjandi aðstæður. Þar
ráði miklu að fyrirtækið hefur greitt
upp skuldir fyrir nærri 130 millj-
arða síðasta áratuginn.
Mun hafa áhrif á afkomu
Landsvirkjunar á árinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vatnsafl Viðskiptavinir eru í mörgum tilvikum ekki að kaupa alla þá orku
sem þeir hafa heimild til sökum minni eftirspurnar á mörkuðum.
Stærstu viðskiptavinir Landsvirkjunar í kröggum á alþjóðlegum mörkuðum
Hörður
Arnarson
Birna segir að viðskiptavinir geti
að sjálfsögðu einnig óskað eftir
endurgreiðslu á ferðum sem hefur
verið aflýst, en þá þurfi fólk kannski
að bíða lengi. „Já, það er viðbúið að
endurgreiðslur geti tekið mun lengri
tíma en undir eðlilegum kringum-
stæðum.“
Í stað þess að horfa 48 klukku-
stundir fram í tímann verður nú
horft eina viku fram í tímann hvað
varðar aflýsingu á ferðum. „Svo
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Icelandair Group er að ljúka við gerð
nýrrar tæknilausnar sem gerir fyrir-
tækinu kleift að aflýsa ferðum lengra
fram í tímann en verið hefur hingað
til. Eins og fram
kom í Morgun-
blaðinu á dögun-
um hefur félagið
aðeins horft 48
klukkustundir
fram í tímann
þegar flug er fellt
niður eftir að kór-
ónuveiran fór að
raska flugstarf-
semi. Það hefur
skapað mikla
óvissu hjá þeim viðskiptavinum sem
hafa átt pantað flug hjá félaginu.
Með nýju lausninni er dregið úr
þeirri óvissu, en lausnin snýr að ein-
staklingsmarkaðnum.
Einfalt kerfi
Birna Ósk Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs
Icelandair Group, segir í samtali við
Morgunblaðið að nýja lausnin sendi
viðskiptavinum upplýsingar um að
flugi hafi verið aflýst og boð um inn-
eign. „Inneignina getur fólk notað
þegar möguleikar til að ferðast verða
komnir í eðlilegt horf á ný. Þetta er
einfalt og sjálfvirkt kerfi, sem mikið
er búið að kalla eftir. Viðskiptavin-
urinn fær kóða, sem hann slær inn
næst þegar hann bókar hjá Iceland-
air, og fær þá inneignina greidda upp
í ferðina. Með þessu getum við veitt
viðskiptavinum okkar lausn á sínum
málum hratt og örugglega.“
höldum við áfram að horfa enn
lengra fram í tímann.“
Líka fyrir ferðaskrifstofur
Spurð hvort sama lausn verði í
boði fyrir ferðaskrifstofur segir
Birna að þær hafi aðgang að svipaðri
tæknilausn og geti í gegnum hana
búið til inneignir, geymt og fært
ferðir. „Við byrjuðum að bjóða ferða-
skrifstofunum þessa leið fyrir síð-
ustu helgi,“ útskýrir Birna og bætir
við að flugfélagið sé í daglegum og
góðum samskiptum við ferðaskrif-
stofur.
Spurð um gagnrýni Þórunnar
Reynisdóttur, framkvæmdastjóra
einnar stærstu ferðaskrifstofu
landsins, Úrvals-Útsýnar, í Morgun-
blaðinu í gær, á að Icelandair gæfi
engin svör varðandi hvenær félagið
hygðist endurgreiða ferðaskrifstof-
unni fé sem það hafði greitt Iceland-
air vegna pakkaferða sem Úrval-Út-
sýn selur en hefur þurft að aflýsa,
segir Birna að því miður sé enn ekki
hægt að svara því nákvæmlega. „Við
vinnum náið með öllum okkar við-
skiptavinum og reynum að leysa úr
málum og svara fyrirspurnum eftir
fremsta megni um leið og ákvarðanir
liggja fyrir.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tækni Lausnin er einfalt og sjálfvirkt kerfi, sem mikið er búið að kalla eftir.
Icelandair býður inneign
Ný tæknilausn fyrir viðskiptavini Horfa viku fram í tímann Ferðaskrif-
stofur fá líka aðgang Boðið upp á endurgreiðslur á miðum, en tekur lengri tíma
Birna Ósk
Einarsdóttir
● Þrátt fyrir töluverða fækkun ferða-
manna á síðasta ári var afkoma
Isavia-samstæðunnar jákvæð um 1,2
milljarða króna eftir skatta, sem er
lækkun um 3,1 milljarð króna frá
fyrra ári. Ef tekið er tillit til niður-
færslu á viðskiptakröfum vegna falls
Wow air nemur lækkunin milli ára um
1,2 milljörðum króna. Tekjur ársins
lækkuðu um 3,3 milljarða, sem er um
8% samdráttur á milli ára. Handbært
fé nam um 9,2 milljörðum króna í árs-
lok 2019.
Farþegum um Keflavíkurflugvöll
fækkaði um 26% á milli ára.
Isavia hagnaðist um 1,2
milljarða króna í fyrra