Morgunblaðið - 03.04.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2020
40 ára Hrefna ólst upp
í Hafnarfirði og á Efri-
Rauðalæk í Holtum.
Hún er sjúkraþjálfari frá
HÍ og tamningamaður
frá Hólum og er bóndi á
Hóli í Sæmundarhlíð í
Skagafirði.
Maki: Jón Grétarsson, f. 1977, bóndi á
Hóli.
Synir: Ingimar Hólm, f. 2008, Sveinn, f.
2009, og Pétur Steinn, f. 2014.
Foreldrar: Helga Sveinsdóttir, f. 1956,
kennari, búsett í Reykjavík, og Hafsteinn
Kúld Pétursson, f. 1954, kennari, búsettur
í Hafnarfirði.
Hrefna
Hafsteinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn hentar vel til hugleiðslu.
Þér hættir til að fresta hlutum, æfðu þig í
að hætta því. Grasið er ekki grænna hin-
um megin við lækinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Forðastu hvers kyns deilur í dag. Nú
er rétti tíminn til að ganga að tilboði sem
þú fékkst. Þú ferð á stefnumót fljótlega
sem breytir ýmsu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að berjast fyrir sjálf-
stæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni.
Vandaðu frágang á öllu sem þú kemur að.
Þú hittir spennandi persónu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er gott að tala um tilfinningar
sínar við góðan vin. Ekki falla í þá gryfju
að hugsa bara um það sem hefði getað
orðið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að gæta þess að ofgera þér
ekki. Það fjölgar í fjölskyldunni síðar á
árinu. Komdu skipulagi á heim-
ilisbókhaldið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að skipuleggja þig því ann-
ars er hætt við að hlutirnir fari úr bönd-
unum og þú sitjir eftir með sárt ennið.
Einhver hrósar þér í hástert.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að hika er sama og að tapa svo þú
mátt hvergi slá af. Að gera góðverk gerir
sálinni gott. Þú hefur ýmislegt að gefa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gefðu þér tíma til að rækta
líkama og sál því allt veltur á jafnvægi þar
í milli. Margir líta upp til þín þessa dag-
ana.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fáir staðist töfra þína. Reyndu
að láta áhyggjur ekki ná tökum á þér. Það
kemur ýmislegt á óvart í kvöld, spenntu
beltin.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Að vera vinsæll hefur bæði
sína kosti og galla. Gleymdu samt ekki að
líta inn á við og biðja um handleiðslu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt gott sé að hafa hlutina
skipulagða og á hreinu getur verið spenn-
andi að fara í óvissuferð við og við. Innst
inni þráir þú að læra eitthvað nýtt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú þarft þú að taka á honum stóra
þínum og standa af þér stormviðri um
stundarsakir. Einhver gefur þér undir fót-
inn.
í sínum styrktarmálum til hinna
ýmsu góðgerðamála og eru enn. Mat-
ar- og skemmtifundir eru haldnir
einu sinni í mánuði yfir vetrarmán-
uðina við mjög góðar mætingar. Ár-
lega eru farnar vorferðir vítt og
breitt um landið, þar lætur enginn sig
vanta.“
Áhugamál hefur Marta María
mörg. „Á bernskuárum minnist ég
Svo var það einn sólríkan vordag
árið 1974 að Marta María hóaði í
gamlar og góðar flugfreyjur og bauð
til veislu. „Þetta þótti takast með ein-
dæmum vel og þarna kviknaði hug-
myndin að stofnun formlegs félags-
skapar sem fékk nafnið Svölurnar.
Markmið var og er að viðhalda okkar
samheldni og um leið að láta gott af
sér leiða. Svölurnar hafa verið ötular
M
arta María Hálfdan-
ardóttir er fædd á
Mosfelli í Mosfells-
dal 3. apríl 1935. Þar
ólst hún upp í faðmi
fjölskyldunnar og tveggja eldri
bræðra fram að 19 ára aldri. Þá and-
aðist faðir hennar skyndilega og fjöl-
skyldan þurti að yfirgefa hús og
heimili og nýr prestur og fjölskylda
tóku við.
„Foreldraorð voru: „líta upp, ekki
niður – líta fram, ekki til baka,“ fáar
reglur en góðar. Það var gott, að alast
upp í sveit, dalurinn víður og vinir og
skólafélagar allt um kring. Strax og
aldur leyfði skráðu sig allir í Ung-
mennafélagið Afturelding. Þar var
lífið og fjörið – frjálsar íþróttir og
knattleikir stunduð af elju og áhuga.“
Handbolti varð grein Mörtu Maríu og
stundaði hún hann fram yfir tvítugt.
Á 100 ára afmæli Aftureldingar var
Mörtu Maríu ásamt 15 öðrum fé-
lagsmönnum, sem markað höfðu spor
félagsins veitt nafnbótin „heiðurs-
félagi Ungmennafélagsins Aftureld-
ingar“.
Marta María gekk í barna- og
unglingaskólann á Brúarlandi í sinni
sveit, útskrifaðist síðan frá Kvenna-
skóla Reykjavíkur árið 1952. Haustið
sama ár hélt hún til Danmerkur og
innritaðist í húsmæðraskólann Sorö
og haustið 1953 innritaðist hún í
Ítrætshojkole í Gerlev.
Mestan part ævi sinnar vann
Marta María hjá Loftleiðum – Flug-
leiðum, síðar Icelandair, en hún hóf
störf þar árið 1957. „Mikill uppgangs-
tími hófst hjá þessu sómafyrirtæki á
þessum tíma. Það var mikil aukning í
öllum deildum og kraftur og sam-
hugur sameinaði bæði stjórnendur og
starfsfólk. Það var stórkostlegt að
hafa verið með í þessari uppbygg-
ingu, heimurinn opnaðist okkur. Við
urðum kunnugri stórborgum handan
Atlantsála en okkar kæru Reykjavík.
Samstarfsfólkið heldur ennþá hópinn
eftir allan þennan tíma. Skíðaklúbbur
var settur á laggirnar og starfræktur
í mörg ár, þar voru Alparnir lagðir
undir. Dagsferðir voru og eru skipu-
lagðar og hvert sæti skipað. Þetta
voru eftirminnilegir dagar, sem
markað hafa spor okkar allra.“
þess, að sagt var við mig: „Hva, þú
stoppar aldrei,“ en heimurinn er jú
víður og möguleikar margir. Eins og
öll börn þurfti ég mikið af pappír, lit-
um, leir og bara yfirleitt öllu sem
hægt var að búa eitthvað til úr. Litið
til baka hefur ég ekki vaxið upp úr
þessu.“
Síðastliðin rúmlega 30 ár hefur
Marta María unnið við glerskurð á
vinnustofu sinni í garðinum heima.
Hún hefur haldið margar einka- og
samsýningar víðsvegar og hlotið góða
Marta María Hálfdanardóttir, glerlistakona og fyrrverandi flugfreyja – 85 ára
Fjölskyldan Í 80 ára afmælisveislu Mörtu Maríu á heimili hennar. Á myndina vantar Láru Kristínu og Benjamín Nóa.
„Heimurinn opnaðist okkur“
Flugfreyjan Marta María árið 1959. Hér má einnig sjá grindverkið og fjar-
lægðina frá þeim sem tóku á móti farþegum í millilandaflugi á þessum tíma.
Glerverk Víkingur 1.
30 ára Unnur Bryndís
er úr Kópavogi en býr í
Hafnarfirði. Hún er
með BEd. í leikskóla-
fræðum frá Háskóla
Íslands og er deild-
arstjóri á leikskól-
anum Tjarnarási í
Hafnarfirði
Synir: Tvíburarnir Daníel Helgi og Guð-
jón Elí Oddssynir, f. 2011.
Foreldrar: Unnur Magnúsdóttir, f. 1968,
viðskiptafræðingur og vinnur í Seðla-
bankanum, og Daníel Helgason, f. 1964,
rekur BSV heildverslun. Þau eru búsett í
Kópavogi.
Unnur Bryndís
Daníelsdóttir
Til hamingju með daginn
... stærsti uppskriftarvefur landsins!
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is