Morgunblaðið - 03.04.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2020
3. apríl 1975
„Ég hef leikið með mörgum
góðum mönnum en sjaldan
eins samstilltum hópi og í
dag,“ segir Agnar Friðriksson
við Morgunblaðið eftir að hafa
orðið Íslandsmeistari með ÍR í
tíunda skipti og tekið við verð-
launum eftir sigur á Val í loka-
umferð deildarinnar.
3. apríl 1980
„Mig vantar orðið kraft í upp-
stökkið eins og þú sérð. Sjáðu
yngri strákana,
þeir stökkva
hærra upp en
svifið vantar,“
segir Ólafsfirð-
ingurinn Björn
Þór Ólafsson við
Morgunblaðið
eftir að hafa orðið Íslands-
meistari í skíðastökki í tíunda
skipti á Skíðalandsmótinu á
Akureyri. Hann vinnur jafn-
framt norrænu tvíkeppnina á
mótinu í tíunda skipti á ellefu
árum.
3. apríl 1988
„Ég kom mjög vel undirbúinn
í mótið en gerði mér litlar von-
ir um sigur. Tómas hefur nær
alltaf unnið einliðaleikinn og
hefur mikla reynslu,“ segir
hinn 17 ára gamli Kjartan
Briem við Morgunblaðið eftir
óvæntan sigur á Tómasi Guð-
jónssyni í úrslitaleiknum í ein-
liðaleik karla á Íslandsmótinu
í borðtennis.
3. apríl 1997
Gústaf Bjarnason setur
markamet með íslenska karla-
landsliðinu í
handknattleik
sem enn stendur.
Gústaf skorar 21
mark í heimabæ
sínum, Selfossi,
þegar Ísland
sigrar Kína,
31:22, í vináttulandsleik.
Hann slær 31 árs gamalt met
Hermanns Gunnarssonar sem
gerði 17 mörk í landsleik gegn
Bandaríkjunum árið 1966.
3. apríl 2003
„Breiddin er okkar mesti kost-
ur, að vera með marga frábæra
leikmenn og það er ekki nóg að
stöðva einhvern einn eða tvo.
Kjartan Kárason aðstoðarþjálf-
ari og Anna María hafa haldið
okkur niðri á jörðinni í allan
vetur,“ segir Kristín Blöndal,
fyrirliði Keflvíkinga, við Morg-
unblaðið eftir að liðið tryggir
sér Íslandsmeistaratitil kvenna
í körfubolta með því að vinna
KR 82:63 í þriðja úrslitaleik lið-
anna.
3. apríl 2010
Hanna Guðrún Stefánsdóttir
setur markamet með íslenska
kvennalandslið-
inu í handknatt-
leik. Hún skorar
17 mörk í stór-
sigri á Bretum,
40:20, í und-
ankeppni Evr-
ópumótsins í
Laugardalshöllinni. Hanna
skorar þrettán markanna í
fyrri hálfleik. Hún hafði gert
þrettán mörk í fyrri viðureign
liðanna á útivelli í vikunni á
undan.
3. apríl 2013
Ísland vinnur geysilega mik-
ilvægan sigur á Slóvenum í
Maribor, 29:28, í undankeppni
Evrópumóts karla í hand-
knattleik. Guðjón Valur Sig-
urðsson skorar sigurmarkið
og er markahæstur með níu
mörk úr níu skotum.
Á ÞESSUM DEGI
KRAFTLYFTINGAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Júlían J.K. Jóhannsson, heims-
methafi í réttstöðulyftu og íþrótta-
maður árins 2019, reynir að sinna
æfingum upp að því marki sem hægt
er í samkomubanninu. Í ein-
staklingsíþrótt eru ef til vill meiri
möguleikar til að halda dampi en
Júlían bendir á að þegar lyfta skal
miklum þyngdum sé slíkt ekki fram-
kvæmanlegt án aðstoðar.
„Já ég get haldið mér við efnið að
einhverju leyti en auðvitað ger-
breytir samkomubannið öllu. Á æf-
ingum er maður er auðvitað vanur
að fá aðstoð og hvatningu frá æf-
ingafélögum. Maður lyftir því ekki
eins þungu á æfingum þegar maður
er einn,“ sagði Júlían þegar Morg-
unblaðið tók púlsinn á honum en Júl-
ían æfir heima til að halda sér við.
„Æfingaaðstaðan er langt frá því
að vera kjöraðstaða en ég næ að láta
þetta ganga. Ég var svo heppinn að
fá lánaðan búnað og hef sett upp í
geymslunni heima. En maður reynir
að gera það besta úr stöðunni og eft-
ir að ég fékk æfingatækin heim er
staðan önnur. Ég hef náð að æfa
með þokkalegar þyngdir eða eins og
ég treysti mér til þegar ég er einn.
Ég kom tækjunum fyrir niðri í kjall-
ara heima. Um er að ræða kalda
geymslu, þannig lagað. Blessunar-
lega erum við fjölskyldan nýflutt því
annars hefði ég ekki haft tækifæri til
að vera með þessi tæki. Þetta er átta
til níu fermetra geymsla og þar er
frystikista ásamt einhverju dóti. Ég
hef sirka sex fermetra fyrir æfinga-
tækin og tveggja metra lofthæð,“
sagði Júlían og hló.
Er orðinn jákvæður á ný
Júlían viðurkennir að viðbrigðin
fyrir mann sem vanur er miklu æf-
ingaálagi hafi verið mikil til að byrja
með eftir að kórónuveiran fór að
setja mark sitt á daglegt líf.
„Fyrst var byrjað að aflýsa og
fresta mótum og þá vissi maður svo
sem ekki neitt um hvernig þetta
myndi þróast. Í framhaldinu kom
samkomubannið og þar af leiðandi
bann á æfingar. Lyftingarnar eru
stór hluti af mínu lífi og þar af leið-
andi var þetta mjög óþægilegt. Þetta
er áskorun og í þessu felast einnig
tækifæri til að breyta aðeins til varð-
andi æfingarnar. Eins og staðan er
núna er ég orðinn gríðarlega já-
kvæður. Ég var það ekki fyrst og ég
skal viðurkenna það. Maður var í
óvissu eins og aðrir. Verður maður
ekki bara að líta á þetta sem langt
undirbúningstímabil? Ég hef sinnt
sumum þáttum betur en vanalega.
Til dæmis varðandi endurheimt og
liðleika.“
Horfir til HM í Noregi
Júlían afþakkaði boð á hið kunna
mót í Bandaríkjunum, Arnold Clas-
sic, þetta árið og er feginn því úr því
að kórónuveiran skall á heimsbyggð-
inni. Næsta stóra verkefni hjá hon-
um átti að vera EM.
„EM átti að vera í byrjun maí í
Danmörku. Það var flautað af í byrj-
un mars. Ég sé ekki fyrir mér að það
verði haldið í ár. Um leið og ástandið
fer að færast í eðlilegra horf sér
maður betur hvaða mót verður það
næsta sem ég keppi á. Eins og stað-
an er núna horfi ég bara til HM í
nóvember í Noregi. Læt það duga í
bili,“ sagði Júlían sem glímdi við
meiðsli í upphafi árs sem komu í veg
fyrir þátttöku á Reykjavíkurleik-
unum. Þau reyndust ekki alvarleg.
„Ég náði að vinna mig ágætlega út
úr því og var að nálgast gott form
fyrir Evrópumótið. Ýmis meiðsli
koma reyndar reglulega upp. Ég hef
reglulega glímt við brjóstvöðvatogn-
un sem dæmi. Þess háttar álags-
meiðsli fylgja því þegar maður juð-
ast svona á líkamanum.“
Júlían hefur í mörg horn að líta
um þessar mundir því hann og unn-
ustan eignuðust son í síðasta mán-
uði. „Það er svolítið sérstakt að eign-
ast barn við þær aðstæður sem nú
eru en við erum mjög þakklát því
góða fólki sem hefur hjálpað okkur,
ljósmæðrum og öðrum.“
Heljarmenni
í litlu rými
heima fyrir
Íþróttamaður ársins deyr ekki
ráðalaus Reynir að halda sér við
á sex fermetrum í geymslunni
Ljósmynd/Aðsend
Geymslan Júlían J.K. Jóhannsson í æfingamiðstöðinni sem hann hefur kom-
ið sér upp á heimilinu og þar býr hann sig undir næsta heimsmeistaramót.
Körfuknattleikskappinn Elvar Már
Friðriksson sem leikur með Borås í
sænsku úrvalsdeildinni var í gær
valinn besti bakvörður deildar-
innar. Elvar gekk til liðs við Borås
fyrir tímabilið frá Njarðvík og átti
frábært tímabil en lið hans Borås
var krýnt meistari eftir að keppni
var hætt í Svíþjóð vegna kórónu-
veirunnar. Elvar spilaði alla 33 leiki
Borås, skoraði 17 stig að meðaltali í
leik og gaf átta stoðsendingar.
Hann var stoðsendingahæsti leik-
maður deildarinnar og stigahæsti
leikmaður liðsins.
Besti bakvörð-
urinn í Svíþjóð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Góður Elvar Már Friðriksson átti
frábært tímabil í Svíþjóð.
Stjórn Íshokkísambands Íslands
hefur tekið þá ákvörðun að ekki
verið keppt frekar á Íslandsmótinu
2019-2020. Úrslitakeppninni í
meistaraflokki karla var aflýst en
þar átti Skautafélag Akureyrar að
mæta Fjölni. Engir Íslandsmeist-
arar verða krýndir en SA hafnaði í
efsta sæti deildarinnar og fær
keppnisrétt í Evrópukeppni á
næsta tímabili. SA hafði þegar
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í
kvennaflokki áður en kórónuveiran
fór að láta á sér kræla hérlendis
eða í byrjun febrúar.
Engir meistarar
í karlaflokki
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Hættir Ekkert verður af úr-
slitaeinvígi milli SA og Fjölnis.
Forráðamenn Euroleague, vinsæl-
ustu Evrópukeppni félagsliða í
körfuboltanum, vilja að svo stöddu
ekki aflýsa keppninni í ár. Hug-
myndir eru uppi um að ljúka tíma-
bilinu svo framarlega sem tími gefst
til áður en næsta tímabil skellur á.
Samkvæmt frétt í El Pais telur
Euroleague ekki útilokað að hægt
verði að taka upp þráðinn í tæka tíð
og ljúka tímabilinu með hefðbundnu
fyrirkomulagi.
Annar möguleiki sem einn af
hæstsettu starfsmönnum Euro-
league nefndi við El Pais er að ljúka
keppninni í einni borg. Væri þá valin
borg þar sem hægt væri að notast
við fleira en eitt mannvirki. Engin
borg hefur verði valin en líklegast er
talið að Moskva, Istanbúl eða Aþena
komi helst til greina.
Allt kemur þetta til með að skýr-
ast eftir því hvernig þjóðum Evrópu
gengur í glímunni við kórónuveir-
una. Að svo stöddu er alla vega
stefnt að því að Euroleague muni
taka upp þráðinn í sumar.
Martin Hermannsson hefur leikið
með Alba Berlín í Euroleague í vet-
ur en lið hans er í 16. sæti af 18 lið-
um. Leiknar hafa verið 28 umferðir
af 34 í deildinni en síðan er eftir átta
liða úrslitakeppni um meistaratit-
ilinn. Þrjú lið hafa tryggt sér sæti
þar, Anadolu Efes frá Tyrklandi og
spænsku stórveldin Real Madrid og
Barcelona en CSKA Moskva og
Maccabi Tel Aviv standa vel að vígi.
Stefnt að sumartitli
í körfuboltanum
Ljósmynd/Euroleague
Euroleague Martin Hermannsson í leik með Alba Berlin gegn Zalgiris
Kaunas í deildinni í vetur en hann hefur verið einn besti leikmaður liðsins.