Morgunblaðið - 03.04.2020, Page 29
Friðrik Rafnsson þýðandi var beðinn
um að mæla með listaverkum sem
hægt er að njóta innan veggja heim-
ilisins í samkomubanninu.
„Lestur góðra bóka er notaleg ein-
vera, skapandi hugrækt, gæðastund
með sjálfum sér í
félagsskap tilbú-
inna persóna sem
kristalla þegar
best lætur mann-
eskjuna og lífið
snilldarlega.
Þetta þekkir allt
bókafólk.
Pétur Gunn-
arsson hefur
lengi verið einn
af mínum uppáhaldshöfundum. All-
ar bækur hans bera húmor, þekk-
ingu og tengigáfu hans fagurt vitni.
Síðasta haust sendi hann frá sér bók-
ina HKL ástarsaga þar sem hann
fjallar um Laxness. Í bókinni tekur
Pétur Nóbelsskáldið snyrtilega ofan
af stallinum, sýnir okkur af sinni ein-
stöku hlýju og stílfimi að þessi snill-
ingur var líka mannlegur eins og við
hin. Það er makalaust hvernig hann
tekur lesandann í óvæntar áttir og
tengir þetta viðkvæma efni saman af
magnaðri yfirsýn.
Nú þegar allt þjóðfélagið er eins
og í hægagangi hefur mér orðið
hugsað til bókar sem ég þýddi fyrir
aldarfjórðungi, enda er hún nokkurs
konar lofgjörð til þess að fara sér
hægt og njóta lífsins. Skáldsagan
nefnist Með hægð og er eftir Milan
Kundera. Þetta er stutt, bráð-
skemmtileg og erótísk saga sem ger-
ist á tvennum tímum, á átjándu og
tuttugustu öld, í fagurri höll ein-
hvers staðar í Frakklandi. Algjör
perla þar sem Kundera kemst nærri
markmiði sínu sem höfundur: að
skrifa léttleikandi skáldsögu um hið
þungbæra hlutskipti mannsins.
Og loks er það tónlistin. Tómas R.
Einarsson er þekktur sem frábær
djassmaður, en hann er líka snjall
þýðandi og textahöfundur. Geisla-
diskurinn Bongó inniheldur frum-
samda tónlist sem hann hefur ýmist
samið við eigin texta eða annarra,
s.s. Halldórs Laxness og Ingibjargar
Haraldsdóttur. Dásamleg tónlist þar
sem eðaltónlistarfólk eins og Tómas
R., Sigríður Thorlacius, Bógómíl
Font og fleiri fara á kostum.“
Mælt með í samkomubanni
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Heillaskeyti Nóbelsskáldið Halldór Laxness á heimili sínu árið 1955.
„Lestur góðra bóka
er notaleg einvera“
Friðrik
Rafnsson
Morgunblaðið/Ómar
Söngkona Sigríður Thorlacius.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2020
Ármúla 24 • S. 585 2800
útfærð myndabók. Textinn er knapp-
ur og framvinda sögunnar fer að
miklu leyti fram í myndunum sem
hafa meira vægi í frásögninni án þess
þó að segja of mikið. Litir og birta
skipta miklu máli í myndunum eins
og önnur hrynjandi náttúrunnar.
Sagan er fámál, eins og aðal-
persónan, en hún býr yfir heim-
spekilegri íhugun.“
Um Villueyjar, sem er sjálfstætt
framhald af Koparborginni frá 2015,
segir: „Villueyjar er fantasía sem
segir frá Arildu, 14 ára stelpu í
norðurevrópska konungsdæminu
Eylöndunum, og bróður hennar
Maurice. […] Saga Arildu er saga
flóttabarna sem verða að berjast fyr-
ir lífi sínu frá degi til dags.“ Í um-
sögninni er bent á að Ragnhildur sé
sagnfræðingur að mennt og „hefur
verið mjög upptekin af því misrétti
sem sagan þegir um. Mannkyns-
sagan er full af lygum og glæpum
sem sigurvegararnir vilja ekki að
sagt sé frá. Uppreisn gegn því getur
aldrei endað á einn veg“.
Barna- og unglingabókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs hafa verið
veitt síðan 2013. Markmiðið með
verðlaununum er að vekja áhuga á
bókmenntum og tungumálum grann-
þjóðanna sem og menningarlegri
samkennd þeirra. Skrifstofa hvorra
tveggja bókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs hefur verið til húsa í
Norræna húsinu frá 2014. Náið sam-
starf skrifstofunnar við bókasafnið í
Norræna húsinu skilar sér í því að
allar tilnefndar bækur ársins eru að-
gengilegar á frummálunum á bóka-
safninu í Norræna húsinu. Þar eru
einnig aðgengilegar allar vinnings-
bækurnar frá upphafi. Norræna hús-
ið er lokað meðan samkomubannið er
í gildi hérlendis.
Morgunblaðið/Ómar
Fulltrúar Íslands í ár Lani Yamamoto og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir.
Morgunblaðið/Hari
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Listahátíð í Reykjavík verður ekki
aflýst heldur verður haldin í ár eins
og til stóð en þó með öðru sniði en
ætlað var, vegna kórónuveirufarald-
ursins. Það stendur því áfram til að
halda með veglegum hætti upp á
fimmtíu ára afmæli Listahátíðar.
Undirbúningur myndarlegrar af-
mælishátíðar hef-
ur staðið yfir í
nær tvö ár og átti
hún að fara fram
dagana 6. til 21.
júní. Í tilkynn-
ingu sem barst í
gær frá Lista-
hátíð segir að
samningar hafi
verið gerðir við
„mikinn fjölda
innlendra og er-
lendra listamanna um glæsilega
dagskrá. Nú hefur Covid-19-
faraldurinn sett strik í þær áætlanir
líkt og flest annað í samfélaginu“.
Þá segir að Listahátíð vilji hvorki
breðast því listafólki sem samningar
hafa verið gerðir við né „svíkja ís-
lenskt samfélag um stórkostlega há-
tíð sem búið var að leggja svo mikið í
að skipuleggja“. Fordæmalausir
tímar kalli á fordæmalausar leiðir og
gert hafi verið samkomulag við lista-
fólk, samstarfsstofnanir og við-
burðastaði um að birta dagskrá há-
tíðarinnar í heild á vefsíðu Lista-
hátíðar í dag, föstudag, líkt og
upprunalega hafi verið gert ráð fyr-
ir. Þar mun koma fram hvaða við-
burðir verða á hátíðinni í ár, hvaða
listafólk stendur að baki þeim og
hvar þeir verða haldnir. Hins vegar
er farin sú óvenjulega leið að birta
dagskrána alfarið án dagsetninga.
Áhugasamir á póstlista
Listahátíð 2020 verður því haldin
– jafnvel þótt það taki heilt ár að
koma henni til skila, segir í tilkynn-
ingunni. Hver viðburður verður
tímasettur þegar öruggt þykir og ís-
lenskt samfélag verður tilbúið til
þess að taka við honum. Í sumum til-
fellum gæti það orðið strax í sumar
en bíða þurfi lengur eftir öðrum. Á
vefsíðu Listahátíðar verður hægt að
skrá sig á póstlista fyrir hvern við-
burð til að missa ekki af því þegar
tilkynnt verður um dagsetningar.
Gæti ekki verið stoltari
„Allt frá stofnun Listahátíðar fyr-
ir fimmtíu árum hefur markmið há-
tíðarinnar verið „að efla menningar-
og listalíf á Íslandi, almenningi til
heilla“. Það væri sannarlega ekki al-
menningi til heilla að stefna stórum
hópum fólks saman í júní á þessu
ári,“ sagði Vigdís Jakobsdóttir, list-
rænn stjórnandi Listahátíðar, í gær
um breytt fyrirkomulag á hátíðinni.
„Það er því ljóst að við verðum að
breyta fyrirætlunum okkar um tíma-
setningu. Það væri hins vegar held-
ur ekki almenningi til heilla að slá
hátíðina alfarið af og því förum við
þessa óvenjulegu leið – að tilkynna
heildardagskrá hátíðarinnar án dag-
setninga. Eftir því sem tímanum
vindur fram og aðstæður skýrast
munum við svo tilkynna tímasetn-
ingar viðburða,“ sagði hún.
Og Vigdís bætti við: „Ég gæti ekki
verið stoltari af þeirri dagskrá sem
við höfum sett saman fyrir Lista-
hátíð í ár. Þarna mætast stórir al-
þjóðlegir listviðburðir á heimsmæli-
kvarða og margt af því allra
áhugaverðasta sem er að gerast í
grasrótinni hér heima. Það verður
þess virði að bíða aðeins eftir þessu!“
Verðlaunaverk tvíæringsins
Eins og fyrirhugað hafði verið er
þema Listahátíð 2020 „Heimar“. Í
tilkynningunni um hið breytta fyrir-
komulag segir að heimar muni svo
sannarlega mætast á hátíðinni í ár.
Sem dæmi er nefndur ástralskur
nýsirkus, danssýning fyrir ungbörn
og myndlist á heimsmælikvarða. Til
að mynda verður í Hafnarhúsinu
sett upp umfangsmikil sýning á
verkum eftir hið fræga breska
myndlistartvíeyki Gilberg &
George. Þá mun Víkingur Heiðar
Ólafsson píanóleikari koma fram í
Eldborgarsal Hörpu og flytja verk
eftir Debussy og Rameau af nýút-
kominni hljómplötu sinni.
Í stjörnuveri Perlunnar verður
flutt nýtt verk eftir tónskáldið Önnu
Þorvaldsdóttur og Sigurð Guð-
jónsson myndlistarmann og þá verð-
ur porti Listasafns Reykjavíkur um-
breytt í manngerða strönd þar sem
hið umtalaða og áhrifamikla lithá-
íska sigurverk Feneyjatvíæringsins
í fyrra, Sun & Sea (Marina), verður
sýnt streitulaust tvo daga í röð.
„Það verður þess virði að
bíða aðeins eftir þessu“
Listahátíð verður haldin Atriði kynnt án dagsetninga
Morgunblaðið/Einar Falur
Áhrifamikið Verðlaunaverk Feneyjatvíæringsins 2019 verður sýnt í porti
Hafnarhússins. Um er að ræða óperugjörning um loftslagsbreytingar.
Vigdís
Jakobsdóttir