Morgunblaðið - 03.04.2020, Page 32
Tónlistarmaðurinn Daníel Hjálmtýsson heldur tónleika
heima hjá sér í kvöld kl. 21 og streymir þeim í beinni á
facebooksíðu sinni.
„Þar sem áætlað var að halda svakalega tónleika í
Iðnó þetta kvöld liggur beinast við að spila allavega
eitthvert smáræði. Ég ætla að kveikja á nokkrum kert-
um, fá mér smá kaffi og flytja nokkur lög. Ég mun flytja
frumsamið efni, bæði útgefið og óútgefið í bland við
eitthvað uppáhalds,“ skrifar Daníel og óskar öllum ást-
ar, hamingju og góðrar heilsu.
Kveikir á kertum, fær sér kaffi og
streymir tónleikum á Facebook
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mæðgurnar Björg Pétursdóttir
söngkona og Margrét Fjóla Erlings-
dóttir, átta ára söngnemi, hafa glatt
sig og aðra með söng á Facebook að
undanförnu og í dag ætla þær að
setja þar inn söngstund fyrir krakka.
Erlingur Pálmason, eiginmaður
Bjargar og faðir Margrétar Fjólu,
hefur einnig glatt landann með upp-
lestri, í beinni útsendingu á Face-
book.
Fólk í sóttkví finnur upp á ýmsu til
þess að gleðja sig og aðra. Í tilefni af-
mælis Bjargar
föstudaginn 20.
mars ákváðu
þær mæðgur að
bjóða upp á tón-
leika á Face-
book. „Við vild-
um gera eitt-
hvað skemmti-
legt í tilefni
dagsins og þegar þessi hugmynd
kom upp, að syngja saman, létum við
hana verða að veruleika. Við sungum
hvor í sínu lagi og saman og endur-
tókum svo leikinn fyrir viku, en þá
söng Margrét Fjóla fleiri lög.“
Kórsöngur og kærleikskleinur
Margrét Fjóla er í söngnámi hjá
Sesselíu Magnúsdóttur söngkenn-
ara, en Björg útskrifaðist með dipl-
ómapróf frá Söngskólanum í Reykja-
vík 2017. Hún byrjaði í söngnámi
2003, tók sér hlé 2013 og tók aftur
upp þráðinn 2017. Hún er messó-
sópran og hefur sungið við ýmis
tækifæri eins og í brúðkaupum og
jarðarförum og hefur sungið sópran í
Kammerkór Hafnarfjarðar síðan
2002. „Það er mjög gaman að vera í
kórnum, hópurinn er skemmtilegur
og félagsskapurinn góður auk þess
sem það er alltaf gott að syngja fyrir
sálina.“ Kóræfingarnar hafa legið
niðri síðan samgöngubannið hófst en
Björg segir að Helgi Bragason kór-
stjóri hafi mælt með því að kór-
félagar æfðu sig áfram heima. Vænt-
anlega verði tónleikar samt ekki fyrr
en í haust.
Vinur Bjargar, Albert Eiríksson
(alberteldar.com), hafði samband við
hana að morgni afmælisdagsins og
bað hana um skemmtilega mynd-
skreytta uppskrift til að setja á vef-
inn. „Ég brást strax við og ákvað að
senda honum uppskrift mína að kær-
leikskleinunum.“ Bætir við að sorg-
leg saga sé á bak við þær. Besta vin-
kona sín hafi greinst með krabba-
mein 2015 og 2017 hafi þau Erlingur
steikt kleinur og bakað hjónabands-
sælur og jólakökur og selt sem fjár-
öflun fyrir vinkonuna og fjölskyldu
hennar í veikindunum. „Salan gekk
mjög vel og stuðningurinn kom sér
vel en svo lést hún í ágúst í fyrra. Við
fengum mjög góð viðbrögð við klein-
unum, rætt var
um að þær væru
þær bestu í
heimi og þar
sem þær voru
gerðar af svo
miklum kær-
leika og ást fest-
ist nafnið kær-
leikskleinur við
þær. Því fannst
mér við hæfi að
steikja kærleiks-
kleinur á þesum
undarlegu tím-
um.“
Erlingur las bækurnar Svarta kisa
og einvígið við smábarnið og Svarta
kisa og Móri frændi eftir Nick Bruel í
beinni útsendingu á Facebook dag-
ana 22. og 23. mars, en finnst of mikið
að vera með sögustund á sama tíma
og mæðgurnar verða með söngstund,
sem þær hafa unnið að undanfarna
daga. Samfara því var Margrét Fjóla
með upplestur í beinni útsendingu í
vikunni. „Ég hef unnið á leikskóla og
í grunnskóla og hef því reynslu af því
að vinna með börnum,“ segir Björg
um söngstundina, sem þær settu
saman eftir að fjölskyldan var laus úr
sóttkví. „Þetta var meiri vinna og
þess vegna ekki í beinni útsendingu.“
Kærleikskleinur og
söngstund fyrir krakka
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjölskyldan Erlingur Pálmason, Margrét Fjóla og Björg Pétursdóttir.
Fjölskylda gleður sig og aðra með söng og upplestri á Facebook
Kærleikskleinur Sorgleg en um
leið falleg saga er á bak við þær.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202
hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennur frá GRÖVIK VERK í Noregi
Einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 94. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Æfingaaðstaðan er langt frá því að vera kjöraðstaða
en ég næ að láta þetta ganga. Ég var svo heppinn að fá
lánaðan búnað og hef sett upp í geymslunni heima. En
maður reynir að gera það besta úr stöðunni og eftir að
ég fékk æfingatækin heim er staðan önnur,“ segir Júl-
ían J.K. Jóhannsson, heimsmethafi í réttstöðulyftu og
íþróttamaður ársins 2019, sem æfir í sex fermetra
geymslu heima hjá sér. »26
Heimsmethafinn æfir í geymslunni
ÍÞRÓTTIR MENNING