Morgunblaðið - 04.04.2020, Page 8

Morgunblaðið - 04.04.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020 Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði til nýsköpunar- og þróunarverkefna árið 2020. Styrkir Ekki eru sérstök áherslu- eða forgangssvið en umsóknir skulu taka mið af þeim áskorunum sem markhópur framhaldsfræðslunnar stendur frammi fyrir um þessar mundir. Verkefnin skulu vera opin öllum fræðsluaðilum, mega ekki gera kröfu um umtalsverðan eða íþyngjandi kostnað, eða flókna sérfræðiþekkingu fyrir þá sem nýta sér afurðina. Verkefni sem raunhæft er að koma í framkvæmd fyrir lok árs 2020 og uppfylla önnur skilyrði auglýsingarinnar, Skilmála og úthlutunarreglna Fræðslusjóðs, njóta forgangs. Telji stjórn Fræðslusjóðs að umsóknir fullnægi ekki forsendum auglýsingarinnar, eða falli ekki að þörfum markhóps framhaldsfræðslu, áskilur hún sér rétt til að hafna einstökum eða öllum umsóknum. Umsækjendur þurfa að hafa faglega þekkingu og reynslu af að vinna verkefni sem sótt eru um styrki til. Að auki þurfa umsóknir að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Vera vandaðar og skýrt fram settar. Skýr tenging við markhóp laga um framhaldsfræðslu. Mæti sýnilegri þörf fyrir úrræði í framhaldsfræðslu. Hafi skýr skilgreind markmið og skilgreinda verkefnastjórn. Hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun. Skili hagnýtri afurð og verði vel kynnt. Umsóknarfrestur er þrjár vikur eða til 27. apríl 2020. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum á viðeigandi umsóknareyðublöðum. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is Píratar rifjuðu upp í fyrirspurn-artíma á Alþingi á fimmtudag hvaða erindi þeir eiga á löggjafar- samkomuna. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir spurði fjármálaráð- herra út í kjara- samninga við hjúkr- unarfræðinga og taldi greinilega að hann ætti að opna ríkissjóð upp á gátt og semja án tillits til hinna svokölluðu lífskjarasamninga. Það hefði verið afar óábyrgt áður en kórónuveiran skók efnahagslíf lands- ins, en eftir að það gerðist eru samn- ingar umfram lífs- kjarasamninga vita- skuld óhugsandi.    Ábyrgðarleysi Þórhildar Sunnukom ekki aðeins fram í þessu viðhorfi hennar til kjarasamninga, heldur ekki síður til þess hversu ómálefnalegt innlegg hennar var í umræðunum. Með í meira lagi undarlegum hætti tókst henni að þvæla tali um „HeForShe-viðburð í New York með bleika köku,“ sem fjármálaráðherra mun á sínum tíma hafa skreytt, inn í umræður um kjör hjúkrunarfræðinga og virt- ist telja að kökuskreytingar ráð- herrans hefðu eitthvað með kjara- viðræðurnar að gera.    Þegar svo ráðherrann reyndi aðsvara upphófst mikið gjamm í þingmönnum Pírata sem endaði með því að þingforseti þurfti að minna þá á grundvallaratriði í sam- skiptum og samræðum fólks.    Alla jafna skiptir ekki endilegamiklu máli þó að Píratar eða aðrir sem lítið erindi eiga setji upp leikþætti í sal Alþingis. Á alvöru- tímum er ekki skaðlaust að slíkt vaði uppi. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Skammarleg umræða Pírata STAKSTEINAR Bjarni Benediktsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Samið hefur verið um að verkefnið Horses of Iceland haldi áfram, fram á mitt næsta ár. Ríkið leggur fram 19 milljónir sem er ónýtt fjárveiting frá síðstu fjórum árum. Hagsmuna- aðilar leggja fram sambærilegt mót- framlag. Tilgangur verkefnisins er að byggja upp orðspor íslenska hests- ins um allan heim til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og út- breiðslu hestsins á heimsvísu. Ís- landsstofa stendur fyrir verkefninu ásamt Félagi hrossabænda, Lands- sambandi hestamannafélaga og Félagi tamningamanna. Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra og samningsaðilar hans gengu frá samningnum í gegnum fjarfunda- únað. Við sama tækifæri var undirrit- aður samningur við Félag hrossa- bænda og Tilraunastöð Háskóla Ís- lands í meinafræði á Keldum um prófun á forvarnarbóluefni gegn sumarexemi í útfluttum hrossum. Bólusetningin hefur verið þróuð á Keldum og verður athugað hvort hún gagnast hestum sem fluttir verða á þekkt sumarexemsvæði. Morgunblaðið/Styrmir Kári Útreiðartúr Hreyfa þarf hrossin þótt kaffistofuspjallið í hesthúsum minnki. Kynna hestinn áfram  Verkefnið Horses of Iceland fram- lengt  Bóluefni gegn sumarexemi Allt um sjávarútveg Malbikað verður víða í borginni fyrir tæpan milljarð króna í sumar samkvæmt upplýsingum Reykja- víkurborgar. Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulags- sviði að bjóða út framkvæmdir við malbikun í sumar. Er áætlað að malbika um 20,2 kílómetra af göt- um og verður unnið við hefð- bundnar malbiksviðgerðir. Einnig verður lagt malbik á götur sem verða endurnýjaðar í sumar. Verja á 6,2 milljörðum á árunum 2018-2022 til endurnýjunar á mal- biki í borginni. Malbikað í borginni fyrir tæpan milljarð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.