Morgunblaðið - 04.04.2020, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboð-
um í tvöföldun Suðurlandsvegar frá
Vesturlandsvegi að Bæjarhálsi.
Um er að ræða 1.000 metra kafla.
Jafnframt hefur Vegagerðin sótt
um framkvæmdaleyfi til Reykja-
víkurborgar og er sú ósk til með-
ferðar hjá skipulagsfulltrúa.
Verkið var á áætlun árið 2021 en
ríkisstjórnin hefur flýtt fram-
kvæmdinni um eitt ár til að vega
upp á móti kólnun hagkerfisins.
Vegagerðin beið ekki boðanna og
var auglýst eftir tilboðum í verkið
mánudaginn 30. mars sl. Tilboð
verða opnuð þriðjudaginn 21. apríl.
Ganga rösklega til verks
Ganga á rösklega til verks því
verklok eru áætluð 1. nóvember í
haust.
Verkið felst í að fullgera eystri
akbraut Suðurlandsvegar, milli
Vesturlandsvegar og Bæjarháls.
Eystri akbrautin verður tengd við
núverandi vegakerfi í báðum
endum.
Sett verður upp ný veglýsing og
vegrið til að aðskilja akstursstefnur.
Núverandi undirgöng undir Suður-
landsveg við Krókháls verða lengd
og breikkuð þannig að hægt verður
að skilja betur milli bílaumferðar og
gangandi/hjólandi, segir í verklýs-
ingu.
Markmið framkvæmdanna er að
sögn Vegagerðarinnar að auka ör-
yggi og greiða fyrir umferð. Sér-
staklega er bent á aukið öryggi
óvarinna vegfarenda í undirgöngun-
um við Krókháls. Einnig megi
benda á að framkvæmdinni fylgi
endurbætur á umhverfi vegarins
sem enn er ófrágengið.
Vegarstæði Suðurlandsvegar,
sem til stendur að breikka, var að
stórum hluta sprengt í berg. Var
það verk unnið árið 2003. Vegurinn
var mikil samgöngubót á sínum tíma
og létti verulega umferðarálagi af
Höfðabakka og Bæjarhálsi, sem áð-
ur var aðalleiðin að Suðurlandsvegi.
Næsti áfangi breikkunar Suður-
landsvegar í Reykjavík verður frá
Bæjarhálsi í átt að Hólmsá. Vega-
gerðin kynnti árið 2009 matsáætlun
vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar
frá Vesturlandsvegi að Hólmsá.
Þessi framkvæmd er á samgöngu-
áætlun áranna 2025 til 2029.
Í drögum að matsáætluninni frá
2009 kemur fram að Vegagerðin
áformi að tvöfalda Suðurlandsveg
frá vegamótum Vesturlandsvegar
að Hólmsá ofan Reykjavíkur.
Aðlaga þurfi tengingar mislægra
vegamóta við Bæjarháls og tenging-
ar við hringtorg við Breiðholtsbraut.
„Tvöfalda þarf hringtorg við
Norðlingavað og byggja veggöng og
aðlaga tengingu við Heiðmörk.
Byggð verða mislæg vegamót við
Hafravatnsveg og aðlaga þarf lýs-
ingu, reið-, hjóla- og gönguleiðir að
nýjum tvöföldum vegi.“
Þá segir enn fremur að við vega-
mót Breiðholtsbrautar sé landrými
takmarkað og einnig sé þrengt að
vegsvæði við Rauðavatnsskóg. Á
þeim vegkafla verði byggður vegur
með þröngu vegsniði.
Breikkun á
vegi boðin út
Ljósmynd/Vegagerðin
Vegastæðið Tvöföldun Suðurlandsvegar verður á þeim kafla sem sprengdur var niður í kletta á sínum tíma.
Vesturlandsvegur
K
rókháls
Hádegismóar
Bæj
arhá
ls
Tvöföldun Suðurlandsvegar
Frá Vesturlandsvegi að Bæjarhálsi
Fyrirhuguð tvö-
földun á 1 km kafl a
MÖRK
ÚTBOÐS
MÖRK
ÚTBOÐS
Undirgöng
Suðu
rland
svegu
r
Ríkisstjórnin flýtti framkvæmdum við
Suðurlandsveg í Reykjavík um eitt ár