Morgunblaðið - 04.04.2020, Qupperneq 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Vetur konungur hefur heldur bet-
ur sýnt okkur Skagstrendingum
klærnar síðustu tæpa fjóra mánuði.
Fara þarf 25 ár aftur í tímann eða til
ársins 1995 til að finna jafn snjó-
þungan vetur. Þessi snjóþyngsli
hafa valdið miklu álagi á snjómokst-
ursmenn, sem oft hafa þurft að sinna
mokstri í snarvitlausum veðrum til
að hægt sé að halda hjólum atvinnu-
lífsins gangandi. Að vísu eru Skag-
strendingar ekki óvanir töluverðum
snjó en nú í vetur hefur verið óvenju
illviðrasamt. Þeir sem hafa árlega
stytt hjá sér veturinn með því að
dvelja lengri eða skemmri tíma í sól-
arlöndum hafa ekki getað það nú
vegna Covid 19, sem öllu stjórnar
um þessar mundir.
Gríðarlegt álag er líka á starfs-
menn Greiðslustofu Vinnumála-
stofnunar á Skagaströnd um þessar
mundir því umsóknum um atvinnu-
leysisbætur þessar vikurnar má
líkja við hamfaraflóð. Allir starfs-
menn Greiðslustofunnar eru með
sínar tölvur heima hjá sér og vinna
þaðan og leggja sig fram um að af-
greiða umsóknir eins hratt og mögu-
legt er til að fólk fái bæturnar sínar
á réttum tíma.
Veiran skæða hefur líka orðið
til þess að Nes-listamiðstöðin er
lokuð og atvinnulífið í bænum er í
hægagangi. Þeir sem eiga þess kost
vinna heima en auðvitað verður ekki
öllum störfum sinnt að heiman.
Grásleppuveiðar eru að hefjast
en trillukarlarnir eru flestir í óðaönn
að undirbúa sig undir að leggja.
Ótíðin að undanförnu hefur ekki
boðið upp á mikla sjósókn og eru
karlarnir að bíða eftir að sjá betri tíð
í kortunum. Línu- og snurvoðar-
bátar hafa fiskað ágætlega þá daga
sem gefið hefur á sjó.
Um áratugi hafa tvær dísil-
vélar séð Skagaströnd fyrir raf-
magni ef eitthvað hefur brugðist
með afhendingu rafmagns frá Rarik.
Nú hefur önnur vélin verið fjarlægð
og sett í færanlegan gám til að nýta
hana til raforkuframleiðslu í neyð-
artilvikum hvar sem er á landinu.
Rarikmenn segja þetta óhætt vegna
þess að með tilkomu hitaveitunnar
muni ein vél duga til að sjá íbúunum
fyrir rafmagni ef annað bregst.
Fram til 2013 tilheyrði Skagaströnd
svokölluðum „köldum svæðum“ og
þá voru hús í bænum hituð með raf-
magni þannig að eftir að heita vatnið
kom er raforkuþörfin miklu minni.
Hugsjón er nafnið á fyrirtæki í
útfararþjónustu, sem ung hjón á
Skagaströnd stofnuðu nýlega. Hug-
sjón mun þjónusta allt Norðurland
vestra þar sem engin útfararþjón-
usta er fyrir hendi á svæðinu. Hefur
hið nýja fyrirtæki fjárfest í fallegum
fjórhjóladrifnum Lincoln-líkbíl til að
vera ekki eins háð tíðarfarinu. Segja
má að hjónin kunni vel til verka því
hann er meðhjálpari við Hólanes-
kirkju og hefur sem slíkur oft stjórn-
að útförum þaðan. Konan er svo
organisti og kórstjóri við kirkjuna
auk þess að vera mjög góð söngkona
sjálf. Útfararþjónustan mun bjóða
upp á alla þjónustu frá A til Ö sem
viðkemur útförum á svæðinu.
Norðurá er fyrirtæki sem tek-
ur við sorpi af Norðurlandi til urð-
unar á athafnasvæði sínu við
Stekkjarvík, sem er miðja vegu milli
Blönduóss og Skagastrandar. Tekið
er við öllu sorpi af svæðinu frá
Hrútafirði austur í Öxarfjörð. Á
árinu 2019 tók Norðurá á móti
26.081 tonni af úrgangi en það var
aukning um 4.300 tonn frá árinu
2018. Haustið 2018 hófst á urðunar-
svæðinu söfnun og brennsla á met-
angasi upp úr urðunarhólfinu og hef-
ur brennslan gengið vel og allur
búnaður til þess virkað sem skyldi.
Á árinu 2019 var þannig brennt
400.000 rúmmetrum af gasi sem ella
hefði farið út í andrúmsloftið. Nú er
til skoðunar hjá Norðurá hvort ekki
sé hægt að nýta gasið til að brenna
dýrahræ og ýmsum úrgangi úr slát-
urhúsum og frá bændum. Sótt hefur
verið um stækkun á starfsleyfi fyrir-
tækisins og hefur það þegar tryggt
sér stærra athafnasvæði við
Stekkjarvíkina til að svo megi verða.
Hamfaraflóð umsókna
Snjóþyngsli Fara þarf 25 ár
aftur í tímann til að finna jafn
snjóþungan vetur og nú á
Skagaströnd. Snjórinn í Banka-
stræti er 5-6 metra þykkur.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Morgunblaðið/sisi
Framkvæmd Starfsmenn Auðverks ehf. hafa undan-
farnar vikur unnið við lagnavinnuna við Seljaveg.
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að endurnýja
lagnir fyrir kalt vatn og fráveitu á Seljavegi í Reykjavík.
Samhliða er lögð regnvatnslögn og nýir rafmagns-
strengir.
Ólöf Snæhólm, upplýsingafulltrúi Veitna, segir að fyrst
og fremst sé ráðist í þessar framkvæmdir vegna nýja hót-
elsins við Seljaveg, Center-Hótel Granda, sem áformað er
að taki til starfa síðar á þessu ári. Þetta verður risahótel
með 195 herbergjum. Kostnaður við verkið er áætlaður
ríflega 40 milljónir króna og Auðverk ehf. er verktaki.
Vegna framkvæmdanna þurfti að loka Mýrargötu á
tímabili og var umferð hleypt um hjáleið. Búið er
að malbika Mýrargötuna og hleypa umferð um götuna
að nýju, en talsvert mikil umferð er jafnan um Mýrar-
götuna.
Ólöf segir að enn sé unnið í lögnum á Seljavegi. Verk-
takinn hafi reynt að hafa götuna opna fyrir umferð á
kvöldin og nóttunni en lokað er á meðan unnið er á dag-
inn. Reiknað sé með að Seljavegurinn verði malbikaður
öðrum hvorum megin við páska. sisi@mbl.is
Endurnýja lagnir vegna risa-
hótels við Seljaveg í Reykjavík
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formaður VR er uggandi vegna
hækkunar verðlags á nauðsynja-
vöru. Það muni leiða að óbreyttu
til kaupmáttarrýrnunar hjá launa-
fólki til viðbótar lækkun launa
vegna atvinnuleysis og lækkunar
starfshlutfalls. Leggur hann
áherslu á að styðja þurfi launafólk
betur og segir að ef ráðist verður í
beina ríkisstyrki eða lækkun
tryggingagjalds þurfi að skilyrða
það þannig að hvati sé fyrir fyrir-
tækin að halda verðlagi niðri.
Ekkert virðist vera að gerast í
samningum verkalýðshreyfingar-
innar og atvinnulífsins eftir að ASÍ
hafnaði því að lækka launakostnað
fyrirtækjanna tímabundið. „Við
hjá VR erum að
meta stöðuna og
teikna upp þau
atriði sem við
teljum að þurfi
að laga og þurfi
að koma sam-
hliða frekari úr-
ræðum fyrir at-
vinnulífið,“ segir
Ragnar Þór Ing-
ólfsson, for-
maður VR, spurður um stöðuna.
Hann segir að meira þurfi að
gera fyrir launafólk sem verður
fyrir tekjuskerðingum. Á sama
tíma sé verðlag að hækka. Heild-
salar og framleiðendur séu að til-
kynna um 3 til 10% verðhækkanir
og erlendir birgjar að hækka
vörur frá 10 og upp í 100% vegna
skorts að aðföngum og vinnuafli.
Við þetta bætist veiking krón-
unnar. „Kaupmáttur mun rýrna,
hversu mikið er ómögulegt um að
segja,“ segir Ragnar.
Skynsamleg leið
Ragnar segist geta tekið undir
hugmyndir Eflingar og Stefáns
Ólafssonar um lækkun trygginga-
gjalds. Það gæti verið skynsamleg
leið og góð fyrir heimilin en slíka
eftirgjöf eða ríkisstuðning þyrfti
að tengja við vísitölu neysluverðs
og verðbólgumarkmið Seðlabank-
ans. Það yrði þá hvati til þess að
fyrirtæki héldu að sér höndum við
verðhækkanir og jafnvel tækju
eitthvað á sig sjálf eins og almenn-
ingur. Að öðrum kosti þyrftu þau
að greiða aðstoðina til baka.
Skilyrða þarf frekari stuðning
Formaður VR er uggandi vegna hækkunar verðlags sem leiðir til kaupmáttarrýrnunar hjá launafólki
Segir að erlendir birgjar boði allt að 100% verðhækkun vegna ástandsins Meira þurfi að gera
Ragnar Þór
Ingólfsson
Útreikningar hagdeildar VR lágu til
grundvallar tillögum formanna VR
og Verkalýðsfélags Akraness um
tímabundna skerðingu á mótfram-
lagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð,
en ekki hagdeildar ASÍ eins og
misritaðist í blaðinu í gær.
Með því að lækka mótframlagið
úr 11,5% í 8% í þrjá mánuði myndi
lífeyrir sjóðfélaga lækka um
0,16% eða 772 krónur á mánuði,
samkvæmt upplýsingum VR.
Miðað er við 40 ára einstakling
með 650 þúsund kr. laun á mán-
uði. Þá er miðað við að skerðing
mótframlagsins myndi taka til
mánaðanna apríl, maí og júní.
Ef ekki væri farið í aðgerðina og
kaupmáttur myndi skerðast þess
vegna um 1% myndi það kosta
launafólk 4.300 kr. á mánuði, sam-
kvæmt sömu útreikningum VR.
3% skerðing kaupmáttar myndi
kosta launafólk 12.900 kr. á mán-
uði, miðað við einstakling með
650 þúsund kr. í laun á mánuði.
Lífeyrir lækkar um 0,16%
HAGDEILD VR REIKNAR ÚT LÍFEYRISSJÓÐALEIÐINA
Atvinna