Morgunblaðið - 04.04.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 04.04.2020, Síða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020 ● Íslenska krónan veiktist um 11,9% á móti evru í marsmánuði og stóð evran í 156,2 krónum í lok mán- aðarins, saman- borið við 139,6 krónur í lok febr- úarmánaðar. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Þar kemur einnig fram að velta á gjald- eyrismarkaði hafi aukist verulega í marsmánuði miðað við mánuðinn á undan. Þannig hafi veltan numið 390,5 milljónum evra, jafnvirði 58 milljarða króna, samanborið við 76 milljónir evra, jafnvirði 10,5 milljarða króna, í febrúar. Alls seldi Seðlabanki Íslands 69 millj- ónir evra, jafnvirði 10,2 milljarða króna, á móti veikingu krónunnar. Krónan veiktist um 11,9% á móti evru Krónan Hefur ekki verið jafn veik og nú svo árum skiptir. STUTT allangs tíma sökum ósamkeppnis- hæfs orkuverðs og lágs verðs á áli í sögulegu samhengi,“ sagði þar jafn- framt um stöðu álversins. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, hefur bent á að hátt raforkuverð á Íslandi ógni samkeppnishæfni ís- lenskra álvera. Samtímis hefur ál- verð verið lágt en fyrir vikið hefur af- koman versnað. Rekstrarskilyrði álvera hafa síðan versnað til muna vegna kórónuveiru- BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is ISAL tapaði rúmlega milljarði króna á mánuði á rekstri álversins í Straumsvík í fyrra. Samkvæmt ársreikningi var tapið 44,6 milljónir dala 2018 en 104,6 milljónir dala í fyrra. Þessar fjár- hæðir samsvara um 5,2 og 12,7 millj- örðum miðað við gengi dalsins í lok hvors árs. Samanlagt tap síðustu tvö ár nemur því um 18 milljörðum króna. Þrír kerskálar eru í álverinu í Straumsvík sem er í eigu Rio Tinto. Slökkt var á skála þrjú sl. sumar af öryggis- ástæðum og dró það úr framleiðsl- unni í fyrra. Endurræsingu skálans lauk í nóvember. Samkvæmt árs- reikningi minnkaði framleiðslan úr 212 þúsund tonnum í 183,6 eða um hér um bil 14%. Meta rekstrarhæfið Fram kom í tilkynningu í febrúar síðastliðnum að Rio Tinto myndi „hefja sérstaka endurskoðun á starf- semi álversins í Straumsvík (ISAL) til að meta rekstrarhæfi þess til framtíðar og leita leiða til þess að bæta samkeppnisstöðu þess“. „Gert [er] ráð fyrir að rekstur ISAL í krefjandi aðstæðum í áliðnaði verði áfram óarðbær til skemmri og með- faraldursins. Pétur Blöndal, fram- kvæmdastjóri Samáls, Samtaka ál- framleiðenda, lýsti því í samtali við Morgunblaðið fyrir helgi hvernig ís- lensku álverin væru komin í alvar- lega stöðu. Eftirspurnin minnkað mikið Áætlað væri að heimsbirgðirnar af áli færu í 6 milljónir tonna, en þær voru 4 milljónir tonna eftir fjármála- kreppuna 2008. Eftirspurn hefði enda minnkað mikið, meðal annars í bílaiðnaði. Til skoðunar væri að loka álverum, þar með talið á Íslandi. Að sögn Péturs fer mikil vinna í að halda starfsemi álvera gangandi. Það sé ekki hægt að stöðva fram- leiðsluna án þess að valda stórtjóni og tefla rekstrinum í tvísýnu. Fram kemur í ársreikningi ISAL að rúmlega 400 manns störfuðu að meðaltali hjá álverinu í Straumsvík í fyrra, eða álíka margir og árið 2018. Bjarni Már Gylfason, upplýsinga- fulltrúi Rio Tinto á Íslandi, segir að- spurður að starfsmannafjöldinn hafi ekki breyst að undanförnu. Hvað snertir framleiðsluna segir Bjarni Már áætlað að hún verði svipuð í ár og í fyrra. Birtist í verri afkomu Í nýja ársreikningnum er fjallað um horfurnar í áliðnaði. „Áliðnaðurinn mun áfram standa frammi fyrir krefjandi aðstæðum á alþjóðamörkuðum og óvissu um stefnumörkun, sem mun endur- speglast í lágri afkomu í greininni. Árið 2020 hófst með lítilli eftirspurn en kórónuveirufaraldurinn mun hafa umtalsverð áhrif á markaðina og heimshagkerfið. Hversu mikið og hversu lengi á eftir að koma í ljós en útlitið er dökkt,“ segir þar meðal annars í lauslegri þýðingu. Segir þar jafnframt að nú fari saman ósamkeppnishæfur orku- kostnaður álversins og sögulega lágt álverð. Bjarni Már segir Rio Tinto munu halda áfram endurskoðun á starfseminni í Straumsvík sem sagt var frá í febrúar sl. og leita leiða til að bæta samkeppnishæfnina. Það feli í sér viðræður við stjórnvöld og Landsvirkjun um raforkuverð. Tapaði yfir milljarði á mánuði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Krefjandi tímar Róðurinn hefur þyngst hjá álverinu í Straumsvík vegna kórónuveirufaraldursins. Álverð hrynur » Verð á áli var um 1.900 dalir á tonnið í lok mars í fyrra en var um 1.450 dalir síðdegis í gær sem er um fjórðungs- lækkun á einu ári. » Útlitið er dökkt og kann verðið að lækka enn frekar.  12,7 milljarða tap af rekstri álversins í Straumsvík í fyrra  Tapið var 5,2 milljarðar á árinu 2018  Í ársreikningi er bent á ósamkeppnishæft raforkuverð álversins í Straumsvík og sögulega lágt álverð Bjarni Már Gylfason Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í lok febrúar námu heildareignir ís- lenskra lífeyrissjóða 4.919 milljörð- um króna. Höfðu þær minnkað um 87,5 milljarða frá lokum jan- úarmánaðar en talsverðar lækkanir urðu á eignamörkuðum hér heima og erlendis í febrúar. Jafngildir lækkunin því að eignasafn sjóðanna hafi dregist saman um 1,7% í mán- uðinum. Í janúarmánuði hafði aukningin frá áramótum numið 0,8%. Gera má ráð fyrir að eignasafn sjóðanna taki á sig enn stærra högg þegar marsmánuður verður gerður upp en eftir að kórónuveiran al- ræmda tók að dreifa sér um Evr- ópu og Bandaríkin hefur sigið mjög á ógæfuhliðina á flestum eigna- mörkuðum. Það á ekki síst við um hlutabréfamarkaði en erlendar eignir íslensku lífeyrissjóðanna eru nær allar bundnar í hlutabréfum. Þá hefur íslenski hlutabréfamark- aðurinn einnig tekið djúpa dýfu. Hefur úrvalsvísitala Kauphallarinn- ar t.a.m. lækkað um tæp 19% það sem af er ári. Erlendar eignir eru tæp 30% af heildareignasafni sjóðanna. Í febr- úarmánuði lækkuðu þær hins vegar um 57,4 milljarða króna en inn- lendu eignirnar um rúma 30 millj- arða.Tryggingafræðileg staða líf- eyrissjóðanna batnaði mjög á síðasta ári og áttu margir þeirra ein bestu ár í sögu sinni með tilliti til ávöxtunar. Samkvæmt tölum Seðlabankans jukust eignir þeirra á árinu um 722,8 milljarða króna. Því hafa þeir talsvert svigrúm til þess að taka á sig verðlækkanir á mörk- uðum nú, án þess að koma þurfi til skerðinga á réttindum sjóðfélaga. Sjóðfélagalán í jafnvægi Ný útlán lífeyrissjóðanna til sjóð- félaga námu 7,4 milljörðum króna í febrúar. Þar af námu verðtryggð lán tæpum 4,1 milljarði og óverð- tryggð lán rúmum 3,3 milljörðum króna. Drógust útlánin saman um 4,2 milljarða frá fyrri mánuði þegar þau námu 11,6 milljörðum. Sé hins vegar litið til febrúarmánaðar 2019 eru útlánin nánast á pari en þá námu þau 7,4 milljörðum, verð- tryggð lán tæpur 4,1 milljarður og óverðtrygð tæpir 3,4 milljarðar. Fjöldi nýrra útlána var 757 í febr- úar og meðalfjárhæð lánanna því rúmar 9,7 milljónir króna. Hafa lánin að meðatali ekki verið jafn lág síðan í desember 2018. Í febrúar í fyrra nam meðalfjárhæð nýrra út- lána 11,5 milljónum króna. Kauphallir Hlutabréfamarkaðir hafa verið í frjálsu falli síðustu vikur og hafa flestir fjárfestar séð á bak miklum fjárhæðum í lækkunarhrinunni. 87,5 milljarða lækkun  Eignir íslenskra lífeyrissjóða minnkuðu um 1,7% í febrúar  Erlendar eignir gáfu mest eftir eða um 57,4 milljarða króna Lokagreiðsla vegna sölu 75% hlutar í Icelandair Hotels og tengdum fasteignum til Berjaya Land Ber- had var innt af hendi í gær. Til stóð að sú greiðsla bærist ekki fyrr en 31. maí. Afhending á bréfum Ice- landair Hotels fer fram í kjölfarið. Ný stjórn verður skipuð, einn fulltrúi frá Icelandair Group og tveir frá nýjum hluthafa. Vegna breyttra markaðs- aðstæðna varð að samkomulagi að lokagreiðslan fyrir hlutinn í hótel- keðjunni yrði lækkuð frá því sem áður var tilkynnt um. Nemur lækk- unin tæpum 1,5 milljörðum króna. Heildarkaupverð hlutarins nemur 6,5 milljörðum eða 45,3 milljónum dollara. Upphaflegar áætlanir Icelandair stóðu til þess að losa um allan eignarhlut sinn í hótelunum. Niður- staðan varð að lokum sú að flug- félagið heldur í fjórðungshlut í keðjunni og mun gera það í að minnsta kosti þrjú ár. Stofnandi Vincent Tan er stjórnar- formaður Berjaya í Malasíu. Kaupverðið lækkar um 1,5 milljarða 4. apríl 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 141.38 142.06 141.99 Sterlingspund 174.77 175.61 176.82 Kanadadalur 99.37 99.95 100.5 Dönsk króna 20.736 20.858 20.794 Norsk króna 13.517 13.597 13.793 Sænsk króna 13.972 14.054 14.201 Svissn. franki 146.4 147.22 146.95 Japanskt jen 1.3019 1.3095 1.3225 SDR 192.94 194.08 194.03 Evra 154.87 155.73 155.23 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.6599 Hrávöruverð Gull 1588.05 ($/únsa) Ál 1463.5 ($/tonn) LME Hráolía 25.61 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.