Morgunblaðið - 04.04.2020, Side 27

Morgunblaðið - 04.04.2020, Side 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020 Fyrir 50 árum nánast upp ádag lauk í Belgrad í Júgó-slavíu keppni þar sem átt-ust við úrvalslið Sovétríkj- anna og heimsliðið. Keppnin fór fram á 10 borðum og var tefld fjór- föld umferð. Varamaður í heimslið- inu var Friðrik Ólafsson, ótvíræður heiður sem sýndi sterka stöðu hans á alþjóðavettvangi skákarinnar. Júgó- slavar áskildu sér þann rétt að velja þrjá heimamenn í liðið, Gligoric, Iv- kov og Matulovic, en þeir hlutu ein- ungis fjóra vinninga af 12 mögu- legum. Friðrik kom inn fyrir Reshevskí á 6. borði heimsliðsins í lokaumferðinni en tapaði fyrir Smys- lov. Þessi keppni var án efa einn af stærstu skákviðburðum 20. aldar og tókst framkvæmdin geysilega vel. Allir bestu skákmenn heims voru mættir til Belgrad og Sovétmenn stefndu að yfirburðasigri enda valinn maður í hverju rúmi með heims- meistarann Boris Spasskí fremstan í flokki. Þeim gekk miðlungi vel að raða niður á borð enda við að eiga hverja prímadonnuna á fætur ann- arri meðal liðsmanna. Innan heims- liðsins var ástandið svipað. Max Euwe, heimsmeistari 1935-’37, var fenginn til að velja liðið og raða mönnum niður á borð. Hann skipaði Bobby Fischer á 1. borð en því mót- mælti „önnur fiðla“, Bent Larsen, kröftuglega og vísaði m.a. til þess að Fischer hefði hætt þátttöku á milli- svæðamótinu í Túnis 1967. Júgó- slavar höfðu sent mann yfir hafið til að semja við Fischer en eftir útspil Larsens var ekki talið líklegt að hægt væri að koma þessum tveimur saman á svið. En okkar maður sam- þykkti óvænt að taka stöðu á 2. borði og heimsliðið gat hafið keppni með fullskipað lið. Larsen tapaði í 17 leikjum í 2. um- ferð fyrir Spasskí en þar sem sú magnaða skák hefur birst áður í þessum pistlum færum við okkur upp á annað borð. Skákferill Fischers virtist í uppnámi á þessum tíma en í Belgrad hófst einstæð sigurganga í skáksögunni. Hann vann fyrstu skákina og aftur þá næstu og síðan einvígið við Petrosj- an, 3:1. Sovétmenn mörðu sigur sam- anlagt, 20½:19½, og gátu þakkað gamla varðliðinu, Botvinnik, Keres og Smyslov, sem vart stigu feilspor. En úrslitin á fyrstu fjórum borð- unum, 5½:10½, voru álitshnekkir fyrir „sovéska skákskólann“: Heimurinn – Sovétríkin 1970; 1. umferð: Bobby Fischer – Tigran Petrosj- an Caro Kann-vörn 1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. Bd3 Rc6 5. c3 Rf6 6. Bf4 Bg4 7. Db3 Ra5 8. Da4+ Bd7 9. Dc2 e6 10. Rf3 Db6 11. a4! Endurbót á gamalli skák Capa- blanca sem fékk að leika –Bb5. 11. … Hc8 12. Rbd2 Rc6 13. Db1 Rh5 14. Be3 h6 15. Re5 Rf6 16. h3 Bd6 17. 0-0 Kf8 18. f4 Be8 19. Bf2 Dc7 20. Bh4 Rg8 21. f5! Uppbygging svarts hefur mis- lukkast og þetta var rétti tíminn til að brjótast í gegn. 21. … Rxe5 22. dxe5 Bxe5 23. fxe6 Bf6 24. exf7 Bxf7 25. Rf3 Bxh4 26. Rxh4 Rf6 27. Rg6 Bxg6 28. Bxg6 28. … Ke7! Kóngur varnarjaxlsins Petrosjans virtist króaður af úti í horni en hann eygði þann möguleika að komast í skjól á á drottningarvæng. 29. Df5 Kd8 30. Hae1 Dc5 31. Kh1 Hf8 32. De5 Hc7 Ekki 32. … Dc7 vegna 33. Dxd5+! og vinnur. 33. b4 Dc6 34. c4! dxc4 35. Bf5! Hvítreita biskupinn var í sérstöku uppáhaldi hjá Fischer. 35. … Hff7 36. Hd1 Hfd7 Eða 36. … Rd7 37. He1 o.s.frv. 37. Bxd7 Hxd7 38. Db8+ Ke7 39. Hde1+ - og Petrosjan gafst upp, 39. … Kf7 er svarað með 40. De8 mát. Heimurinn – Sovét- ríkin fyrir 50 árum Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/Informant Heimsmeistari Boris Spasskí fylgist með viðureign Petrosjans og Fischers. Við hlið hans styður Tal hönd við kinn og framar kljást Hort og Polugajevskí. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, leggur ríka áherslu á að við verðum öll heima um páskana vegna Covid 19- veirunnar og leggjum þannig okkar af mörkum til að sveigja kúrfuna frægu niður og til hægri í stað þess að sleppa henni áfram upp, í veldisvexti. Með því að hitta sem fæsta, fara ekki í sumarbústaðinn með ættingjum og vinum eða halda í jeppa- og sleðaferðir upp á hálendið, eins og það er nú freist- andi, stuðlum við að því að heil- brigðiskerfið okkar ráði við afleið- ingar þessarar vondu veiru. Annars er hætt við manntjóni þar sem gjörgæslueiningar okkar munu ekki geta tekið við öllum þeim sem þurfa hugsanlega á því að halda. Það er nú ekki mikið á okkur lagt að vera heima við um páskana. Ég held við gleymum því alltof oft hversu gott við höfum það yfirhöfuð hér á landi. Ekkert samfélag er fullkomið og það eru alltaf einhverjir sem minna mega sín, og væri vissulega hægt að gera talsvert fyrir marga sem hafa það ekki gott. En á heildina litið erum við Íslendingar í afar góðri stöðu. Og ef það eru aðaláhyggjur okkar margra, hvort við getum farið í ferðalög um páskana, utan lands eða innan, þá eru þær áhyggjur okkar hjóm eitt. Ég er reyndar ekki alveg sammála Víði með það að ferðast innanhúss um páskana. Góðir göngutúrar í fallegri íslenskri náttúru, ná- lægt heimilum okkar auðvitað, bæta, hressa og kæta. Og ég mæli eindregið með þeim. En sleppum öllum ferðalögum um páskana þetta árið, takk. Annað. Horfði á Kára Stefáns- son í Kastljósinu í vikunni. Hann var jákvæður og bjartsýnn og ég held ég endi þetta á lokaorðum Kára, sem ég er svo sammála: „Ég er handviss um að við kom- um út úr þessum faraldri betra samfélag en við fórum inn í hann.“ Heima um páskana Eftir Gísla Pál Pálsson » Annars er hætt við manntjóni þar sem gjörgæslueiningar okk- ar munu ekki geta tekið við öllum þeim sem þurfa hugsanlega á því að halda. Gísli Páll Pálsson Höfundur er forstjóri Grundarheimilanna. Gunnar Gíslason fæddist 5. apríl 1914 á Seyðisfirði. For- eldrar hans voru hjónin Gísli Jónsson og Margrét Arnórs- dóttir. Gunnar lauk guðfræði- prófi frá HÍ 1943. Gunnar varð á útskriftar- árinu sóknarprestur og bóndi í Glaumbæ í Skagafirði og gegndi þeim störfum til ársins 1982. Hann var prófastur í Skagafjarðarsýslu 1977-1982. Hann var þingmaður Norðurlandskjördæmis vestra fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1959- 1974. Hann sat á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna 1965 og í bankaráði Búnaðar- banka Íslands 1969-85. Gunnar sat í hreppsnefnd Seyluhrepps 1946-86, var sýslunefndarmaður 1984-1988, í stjórn Varmahlíðar 1947-73, í stjórn Skógræktarfélags Skag- firðinga 1947-81 og var formað- ur þess 1961-1981 og heiðurs- félagi. Hann var í stjórn Byggðasafns Skagfirðinga 1948-86 og formaður Karla- kórsins Heimis 1954-65. Hann var einn af stofnendum hesta- mannafélagsins Stíganda og var í stjórn félagsins 1951-75 og heiðursfélagi þess. Kona Gunnars var Ragn- heiður Margrét Ólafsdóttir, f. 1915, d. 1999. Þau eignuðust sex börn. Gunnar lést 31. mars 2008. Merkir Íslendingar Gunnar Gíslason ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.