Morgunblaðið - 04.04.2020, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.04.2020, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2020 ✝ Alda Björns-dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 4.7. 1928, hún lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 18.3. 2020. For- eldrar hennar voru Ingveldur Jónsdóttir, f. 3.5. 1904 á Steinsmýri í Meðallandi, V- Skafta-fellssýslu, d. 23.6. 1994, og Einar Björn Sigurðsson verslunarmaður, f. 25.10. 1895 á Seyðisfirði, d. 14.11. 1964. Systir Öldu var Ingibjörg Ágústa, f. 19.10. 1926, d. 31.3. 2019. Þau bjuggu í Pétursborg en síðan á Heiðarvegi 30. Hinn 10.1. 1948 giftist Alda Hilmi Högnasyni, f. 27.8. 1923, d. 5.12. 2014 rafvirkjameistara frá Vatnsdal, Vestmanna- eyjum. Börn þeirra eru: 1 Hörður, f. 12.12. 1947, maki Sunneva Marentza Paulsen, f. 10.11. 1950, börn þeirra eru 1a Fríða María, f. 28.2. 1974, maki Kristján Guðjónsson, börn hennar Sunneva Líf, Þor- geir Atli og hans Iðunn Gígja. 1b Ingi Björn, f. 20.7. 1980, synir hans eru Pétur Hrafn og Bjarki Steinn. 2 Hrefna, f. 3.7. 1949, maki Ólafur Örn Ólafs- son, f. 14.1. 1947, synir þeirra eru 2a Hilmir, 2b Örvar Bjarki og Emilía Sara. 6b Snædís„ maki Hrannar Jóns- son, börn þeirra eru Andrea Björk og Stefanía Dagmar. 7 Örn, f. 1.4. 1965, maki Annika Morit Guðnadóttir, f. 23.12. 1961. Börn þeirra eru 7a Þor- steinn Ingi, maki Snæfríður Jóhönnudóttir, sonur þeirra er Hilmir Marel. 7b Sólveig Alda, unnusti Björgvin. 8 Óðinn, f. 1.4. 1965, maki Martina Fil- ippone, f. 15.3. 1966, börn þeirra 8a Regína Ósk, maki Anton Rafn Gunnarsson, 8b Stefani og 8c Natatsja. Alda ólst upp í Vestmannaeyjum fyrir utan tvö ár í Neskaup- stað. Hún vann um tíma í Bak- aríi hjá Rikka á Sandi. Alda og Hilmir hófu búskap sinn á Heiðarvegi 30 þar sem for- eldrar Öldu bjuggu síðar í Vatnsdal þar sem foreldrar Hilmis bjuggu. Fluttu 1957 í hús sem þau byggðu á Tún- götu 22 bjuggu þar til ársins 2014 er þau fluttu að Hraun- búðum. Alda var listræn og sótti námskeið hjá Veturliða Gunnarssyni og Bjarna Jóns- syni. Um tíma var hún sminka hjá Leikfélagi Ve, starfaði með Kvenfélaginu Líkn og Vorinu. Listin varð hennar ævistarf með húsmóð- urhlutverkinu. Skömmu fyrir eftirlaunaaldur varð hún með- limur í Gallerý Heimalist og starfaði þar jafnt sem fram- leiðandi og sölumaður um ára- bil. Útförin fór fram í kyrrþey 28. mars 2020. Guðni, maki Harpa Theódórs- dóttir börn þeirra eru Salka Sól, Klara og Högni. 2c Sindri maki Dýrleyf Bjarna- dóttir Þormar börn þeirra eru Hilmir Bjarni, Alda Guðrún, börn hennar Dagný, Snæbjörn og Hlyn- ur. 2d Andri maki Heiða Lind Heimisdóttir börn þeirra eru Heimir Örn og Lilja Björk. 3 Guðný Sigríður, f. 19.2. 1951, börn hennar eru 3a Helgi Karl börn hans eru Helga Ósk, dóttir hennar er Ísabella Oddný, Hafdís Alda, Heiðrún Inga og Hrefna Björk. 3b Margrét Andrea og 3c Hörður Snær, maki María Rún Ólafs- dóttir barn þeirra er Heiðar Óli. 4 Birna, f. 2.4. 1953, maki Gunnar Ingi Einarsson, f. 29.10. 1951, d. 26.2. 1995, dæt- ur þeirra eru 4a Alda, maki Kristján Georgsson, sonur þeirra er Bjarni Rúnar. 4b Hrefna og 4c Iðunn, maki Tryggvi Sveinn Bjarnason, börn þeirra eru Gunnar Ingi og Anna Birna. 5 Inga Jóna, f. 8.3. 1963. 6 Högni, f. 4.2. 1964, börn hans eru 6a Birkir Þór í sambúð með Gharib Za- hor. Börn Birkis eru Jón Elsku mamma, hún hafði oft á orði að hún ætti örugglega heimsmet í heimsóknum enda börnin hennar átta og allir vinir og vandamenn sáu til þess að hún fékk daglega ein- hvern til sín. Nammiskúffan alltaf full og maltöl í ísskápn- um. Hún gætti þess að allir sem komu til hennar skrifuðu nafnið sitt í gestabók sem hún og pabbi bjuggu til þegar þau unnu ýmis verk fyrir galleríið. Þegar heimsóknabannið var sett á tók hún því með skiln- ingi en þá var eins og henni þætti nóg komið, lagðist á koddann sinn og sofnaði svefn- inum langa enda orðin 91 árs. Mamma var okkur fjölskyld- unni og þá meina ég stórfjöl- skyldunni sem nær út fyrir okkur systkinin mjög dýrmæt. Hún fylgdist með öllum og gætti þess að allir ættu sinn sess hjá henni, hjartahlýjuna átti hún ómælda. Hún var mikil tilfinningavera og ræktaði með sér jákvæðni og glaðlyndi og þess urðu allir varir sem umgengust hana. Mamma var listakona. Í gamla daga málaði hún á stramma sem aðrar konur saumuðu síðan. Hún málaði veggteppi, púða og dúka, olíu- málverk og blóm á flauel. Um tíma málaði hún á steina, sleif- ar og stokka fyrir eldfæri. Hún bjó líka til gólfvasa úr ýmsu efni, huldi það með gifsi og festi í það brot úr gömlum und- irskálum eða litla mósaíkmola. Borðstofan varð vinnustofa þegar flestir voru í heimili. Hún hélt nokkrar sýningar í heimabyggð og höfuðborginni. Hafði hún þó nokkra búbót af þessu auk ánægjunnar sem list- in veitti henni. En auk alls þessa þá saumaði hún kjóla, kápur, buxur og jakka á okkur krakkana, fræg eru orðin sem drengur í nágrenninu lét falla um föt sem hún saumaði á Hörð fyrir þjóðhátíð: „Alda, mikið djö … er hann Hörður smart“. Hún fór að vinna í Gall- eríi Heimalist þegar hún náði eftirlaunaaldri. Heimilið á Tún- götu stóð alltaf opið fyrir vin- um okkar systkina, komum við aldrei að tómum kofunum. Hún bakaði og bakaði og alltaf nóg til í búrinu, hvílík eljusemi og ást sem hún gaf af sér. Og hún gætti þess vel að við fengjum hollt að borða, ræktaði gulræt- ur og grænkál o.fl. Ég segi það gjarnan: Það voru forréttindi að fá að alast upp í kærleika yndislegu foreldranna minna og ég minnist þess í bænum mínum og þakka fyrir mig. Hrefna Hilmisdóttir. Hvað er móðurhjartað stórt? Þessu get ég ekki svarað en tel að það hafi verið mjög stórt hjá mikilli vinkonu okkar Róberts bróður, henni Öldu Björns- dóttur sem nú hefur kvatt þennan heim. Alda, Hilmir og fjölskylda þeirra hafa alltaf skipað sérstakan sess í lífi okkar bræðra. Það var svo margt fallegt og einlægt við samband Öldu og Hilmis og það sama gilti í raun um öll samskipti við þau. Það er dýr- mætt að eiga svona vini á veg- ferð sinni. Alda og Hilmir frændi voru einhvern veginn svo aldurslaus í allri sinni af- stöðu, þau samsömuðu sér með ungum jafnt sem öldnum og voru alltaf eðlilegur hluti af umræðunni í hverjum hópi, sama hvort það var í þeirra aldurshópi eða meðal vina barna þeirra. Þau voru okkur yngra fólkinu góðar fyrir- myndir. Á heimili þeirra að Túngötu 22 var gjarnan safn- ast saman, börn þeirra og vin- ir áttu sér alltaf tryggan samastað þar. Það fann ég glöggt þegar ég dvaldi hjá þeim um lengri eða skemmri tíma, og á ég þaðan margar og dýrmætar minningar. Túnó var í gegnum árin leiksvið mikilla og góðra samskipta, þar sem þau hjónin sýndu gestum sínum einlægan áhuga og tóku þátt í umræðunni á sinn einstaka hátt. Alda dró upp liti og teiknaði umgjörð lífsins og Hilmir sagnamaður- inn tengdi sögusviðið frá fortíð og í nútíð á sinn litríka ljóð- ræna hátt. Alda var listræn og það er margt fallegt sem ligg- ur eftir hana, hún gladdi mig oft með því að segja mér að sinn fyrsti myndlista- og teiknikennari hefði verið faðir minn Ólafur Gränz og hann hafi haft áhrif á myndlistar- iðkun hennar. Sagan endur- tekur sig, því nú erum við Hörður sonur hennar og vinur minn saman í myndlist og þar nýt ég góðs af reynslu hans og ráðum. Ég á eftir að sakna Öldu mikið, og einnig minnast þess sem hún sagði jafnan við mig þegar ég kom til hennar: „Ert þetta þú Henrý minn, mikið er ég fegin að sjá þig, mér finnst ég alltaf eiga svo mikið í ykkur Róberti, mér finnst þið alltaf vera eins og strákarnir mínir.“ Þetta var og er dýrmætt og ég vissi allt- af að hún sagði þetta af heilum hug og af mikilli einlægni og elsku sem hún átti í svo ríkum mæli. þetta voru notaleg sam- skipti og væntumþykjan var gagnkvæm. Alda mín það er ómetanlegt að hafa átt ykkur Hilmi og fjölskyldu ykkar að vinum á áratuga samferð sem aldrei bar skugga á. Fyrir það er ég þakklátur. Ég trúi því að Hilmir hafi tekið á móti Öldu sinni og að nú leiðist þau sam- an inn í sólarlagið, horfi yfir góða hópinn sinn og gleðjist yfir góðu dagsverki. Nú er lífsins göngu lokið á leiðarenda meira ljós. Af mörgum tókstu mesta okið máttu þiggja lof og hrós. Þín nú bíða Hilmis hendur hlýja bjarta brosið hans. Leiða þig um nýjar lendur ljúf er vegferð þessa manns. Alda mín, nú er þú kveður okkur hér á móður jörð. Minningum hjá okkur hleður hjartnæmum í þakkargjörð. Nú eru komin kaflaskil kynslóð endurnýjast Til ykkar visku horfa vil viðmót gott og hlýjast (HÞG) Hugur okkar Ingu er hjá allri fjölskyldunni. Henrý Þór Gränz. Alda Björnsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur og bróðir, JÓN GUNNLAUGSSON, fyrrverandi stýrimaður hjá Eimskipi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 19. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fríða Kristín Jónsdóttir Ísak Þ. Þorsteinsson Hildur Jónsdóttir Alexander Leonard Vidal Gunnlaugur Baldvinsson Hildur Jónsdóttir og systkini hins látna Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu samúð, vinsemd og kveðjur vegna andláts okkar ástkæra RÓBERTS JÓNS JACK, rafverktaka og byggingaverktaka, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 18. mars. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á blóð- og krabbameinslækningadeildunum 11B og 11G fyrir hlýju og góða umönnun. Sigrún Jóna Baldursdóttir Vigdís Linda Jack Björgvin Ibsen Helgason Baldur Þór Jack Kolbrún Lís Viðarsdóttir Heiða Hrund Jack Sigrún Ruth, Snæbjörn Helgi, Róbert Alejandro, Arnþór Bjartur, Birkir Hrafn og Bjarni ÞórÁstkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARI BOGASON bókakaupmaður á Seyðisfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Fossahlíð á Seyðisfirði laugardaginn 28. mars og verður jarðsunginn laugardaginn 4. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey vegna aðstæðna í samfélaginu. Aðstandendur þakka starfsfólki Fossahlíðar fyrir umhyggju sem hinum látna var sýnd. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök sjúkrahússins á Seyðisfirði. Bogi Þór Arason Hanna Guðjónsdóttir Kristrún Aradóttir Birgir Sigmundsson Þorsteinn Arason Inga Þorvaldsdóttir Bryndís Aradóttir Magnús Svavarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR, Gaukshólum 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 29. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigrún Erla Þorleifsdóttir Jörundur Jónsson Sædís Guðríður Þorleifsd. Aðalheiður Ósk Þorleifsd. Þorsteinn Adamsson Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI ANDRÉSSON, fyrrverandi framkævmdastjóri, frá Tálknafirði, lést miðvikudaginn 2. apríl á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fer útförin fram í kyrrþey. Sigrún Helga Guðlaugsdóttir Andrés Bjarnason Kristjana Pálsdóttir Björk Bjarnadóttir Sölvi Steinarr Jónsson Jens Bjarnason G. Sigríður Ágústsdóttir Hilmar Bjarnason Anna Björk Sverrisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og fallegar kveðjur vegna andláts og útfarar okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, BIRGIS BJARNASONAR, Aðalstræti 20, Bolungarvík, áður bónda á Miðdal. Starfsfólki hjúkrunarheimilisins Bergs í Bolungarvík færum við sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun, vináttu og virðingu. Jónína Birgisdóttir Lárus Guðmundur Birgisson Hugrún Alda Kristmundsdóttir Guðný Eva Birgisdóttir Elías Þór Elíasson barnabörn, makar og barnabarnabörn Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru ÞORGERÐAR ÁRNADÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem önnuðust hana í veikindum hennar. Fjölskyldan Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.