Fréttablaðið - 29.08.2020, Page 2

Fréttablaðið - 29.08.2020, Page 2
Þó að hlutum sé hent þá hverfa þeir aldrei, þeir eru alltaf ein- hvers staðar. Ágústa Edwald Maxwell, fornleifafræðingur Veður Sunnan 3-8 síðdegis, skýjað að mestu og úrkomulítið, en dálítil rigning suðvestanlands í kvöld. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast á SA-landi. SJÁ SÍÐU 38 „En að lifa í friði langar jú alla til, ekki satt?“ Ekki er vafi á að margir bíða í ofvæni eftir sýningum Þjóðleikhússins á Kardemommubænum, en nýlegar tilslakanir sóttvarna gera mögulegt að hefja æfingar á þessu kunna verki Thorbjörns Egner. Verkið var fyrst sýnt í leikhúsinu árið 1960 og er þetta í sjötta sinn sem verkið er sett á fjal- irnar þar. Yfirskrift myndarinnar hér að ofan er tilvitnun í f leyg orð úr Vísum Bastíans bæjarfógeta í Kardemommubæ. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI FORNLEIFAR „Þetta er hluti af rann- sóknarverkefni sem ég stend fyrir og er unnið í Háskóla Íslands,“ segir Ágústa Edwald Maxwell fornleifa- fræðingur um fornleifauppgröft sem staðið hefur yfir í Hljómskála- garðinum í Reykjavík. „Verkefnið snýst um að skoða ruslavenjur, ruslamenningu og endurvinnslu frá 19. öld fram á 20. öld,“ segir Ágústa, sem hefur ásamt nemendum við háskólann grafið upp elsta ruslahaug borgarinnar. Haugurinn var í notkun á árunum 1905–1930 og hefur uppgröfturinn, sem tók um tíu daga, farið fram syðst og vestast í Hljómskálagarð- inum. „Við höfum fundið mikið af járn- brotum, sem líklega eru úr niður- suðudósum og ílátum, og mjög mikið af gleri, sem er þá umbúðir og flöskur en líka glös og svoleiðis,“ segir Ágústa og bætir við að einnig hafi fundist talsvert af rafmagns- tengdum hlutum. „Þetta eru hlutir frá svona 1920. Öryggi og perustæði, til dæmis.“ Þá segir hún greinilegt að hinum ýmsu hlutum hafi verið hent á þessum árum líkt og nú og nefnir dæmi um að fundist hafi tindáti, kaffikanna, bollar, diskar og búkur af lítilli dúkku. „Þó að hlutum sé hent þá hverfa þeir aldrei, þeir eru alltaf einhvers staðar,“ segir Ágústa. Ruslið sem fundist hefur í haugn- um í Hljómskálagarðinum verður borið saman við rusl sem fundist hefur í öðrum öskuhaugum, til að mynda í Kvosinni, miðbænum og víðs vegar í borginni. „Við skoð- um hvernig samsetning ruslsins breytist frá 19. öld og fram á þá 20., sérstaklega þegar fólk fer að bera minni ábyrgð á ruslinu sínu sjálft þegar ábyrgðin flyst yfir til borgar- innar,“ segir Ágústa og vísar til þess að um árið 1905 hafi borgin farið að sjá um að safna rusli frá heimilum. „Um þetta leyti var fólki bannað að henda rusli hvar sem er og átti að vera með það í ruslatunnum eins og við þekkjum í dag. Ösku- karlar tóku ruslið og fóru með það á hauginn og þessi er einn sá elsti. Svo varð ruslið í rauninni uppfyll- ing í mýrina hérna við Tjörnina,“ útskýrir Ágústa. Aðspurð um framhaldið segir Ágústa að nú sé unnið að því að hreinsa þá gripi sem fundist hafa við uppgröftinn og bætir við að áhugavert gæti verið að lengja tíma- línuna. „Það gæti verið gaman að fá jafnvel enn nýrra safn og teygja tímalínuna frá kannski 1930 til 1960 af því að maður veit að þegar plastið fer að koma þá breytist margt.“ birnadrofn@frettabladid.is sighvatur@frettabladid.is Ýmsir gripir leyndust í gömlum ruslahaug Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir á gömlum ruslahaug í Hljómskálagarð- inum. Fundist hafa ýmsir fornir gripir, svo sem málmar og gler en einnig tin- dáti og kaffikanna. Verkefnið snýr að ruslavenjum og -menningu Íslendinga. Ágústa Edwald Maxwell og Katrín Georgsdóttir nemi hreinsa jarðveg af brotum sem komu í ljós við uppgröftinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is Reimar Pétursson lögmaður. SKOÐUN „Stjórnvöld hafa upp á síð- kastið með nokkrum pennastrikum sett reglur sem gjörbreyta sam- félagsgerðinni. Reglurnar benda til að vilji þeirra standi til þess að skapa lokað en veirulaust land með víðtækum hömlum á atvinnufrelsi þeirra fjölmörgu sem stunda ferða- þjónustu sem og annarra.“ Svo hefst grein Reimars Péturssonar lögmanns sem birtist á vef Frétta- blaðsins í morgun. Í greininni segir Reimar landið hafa verið rekið án tillits til stjórn- arskrár og laga um margra mánaða skeið og að þær ráðstafanir sem gripið hafi verið til hafi staðið yfir of lengi. Grein Reimars má lesa í heild á frettabladid.is/skodun. – atv Ráðstafanir brjóti gegn stjórnarskrá ATVINNUMÁL Í gær var 133 starfs- mönnum sagt upp störfum hjá móðurfélagi Isavia sem hluti af hagræðingaraðgerðum vegna áhrifa COVID-19. Var tólf til viðbótar boðið að lækka starfshlutfall sitt. Áður hafði 101 starfsmanni verið sagt upp í mars síðastliðnum. Hefur stöðugildum hjá móðurfélagi Isavia nú fækkað um 40 prósent frá því að heimsfaraldurinn hófst. – ab Fleirum sagt upp hjá ISAVIA Miðinn var keyptur á Ísafirði. SAMFÉLAG Íslendingur vann 95,6 milljónir króna í kvöld þegar hann hlaut annan vinning í Eurojackpot. Sjö miðahafar skiptu heildarvinn- ingnum á milli sín og voru hinir miðarnir keyptir í Litháen, tveir í Finnlandi og þrír í Þýskalandi Samkvæmt Íslenskri getspá var íslenski miðinn keyptur hjá N1 á Ísafirði. Er þetta í fjórða sinn á innan við tveimur árum sem annar vinningur í EuroJackpot kemur til Íslands. – ab Vann tæpar 100 milljónir króna 2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.