Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 6
Við höfum því
reynt að halda
okkur við grunnþarfirnar.
En við tókum þá ákvörðun
að halda áfram að styðja
börn þeirra verst settu til
íþrótta- eða tóm-
stundastarfs.
Baldur Rafn
Sigurðsson,
sóknarprestur í
Njarðvík
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði
til verkefna sem tengjast tilgangi sjóðsins. Hlutverk
sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og
æskulýðssamtaka.
Æskulýðssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki tvisvar
sinnum á ári, 15. október og 15. febrúar.
Að þessu sinni verður verður lögð áhersla á að styðja
verkefni sem stuðla að nýsköpun í æskulýðsstarfi.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á:
www.rannis.is/sjodir/aesku-ithrotta/aeskulydssjodur/.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir
kl. 16:00 fimmtudaginn 15. október.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson,
andres.petursson@rannis.is,
sími 699 2522.
Umsóknarfrestur er 15. október 2020
Æskulýðs-
sjóður
Sumt er alveg
óþolandi!
Eins og að farsímaáskri
sé ekki með í heimapakka
Vertu með AlltSaman hjá Nova!
Eitt verð fyrir ótakmarkað net heima,
í farsímann, snjalltækin og úrið fyrir
alla á heimilinu. Prófaðu
frítt í
mánuð
nova.is/AlltSaman
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
SUÐURNES Prestar í þremur presta-
köllum á Suðurnesjum hvetja sveit-
arfélög á svæðinu til þess að hækka
framfærslustyrki. Fjölgað hafi í
hópi þeirra sem sækja um aðstoð
til kirkjunnar og búist við því að
það aukist enn frekar í haust þegar
uppsagnarfresti margra lýkur. Segja
þeir það ekki hlutverk kirkjunnar
að létta ábyrgð sveitarfélaga af
framfærslu fólks.
Baldur Rafn Sigurðsson, sóknar-
prestur í Njarðvík, segir ásókn fólks
í aðstoð kirkjunnar hafa aukist tölu-
vert, sérstaklega innan Keflavíkur.
Hafi því prestaköllin ákveðið að
fara í nánara samstarf til að dreifa
álaginu og fengið auka starfsmann
einu sinni í mánuði frá Hjálparstarfi
kirkjunnar. Mestur stuðningurinn
eru kort í Bónus eða debetkort sem
Hjálparstarfið úthlutar. En kirkj-
urnar eru einnig í samstarfi við
Rauða krossinn um fataúthlutanir.
Meðal þess sem kirkjan hefur
hlaupið undir bagga með hjá fólki í
neyð eru skólamáltíðir barna. En nú
er svo komið að ekki verður unnt að
halda því áfram. Hver skólamáltíð
á Suðurnesjum kostar á bilinu 310
til 413 krónur sé fólk í áskrift. „Tölu-
verðir peningar fóru í þetta og við
lögðum til við sveitarfélögin að þau
tækju þetta yfir,“ segir Baldur.
Samkvæmt Baldri hefur inn-
streymið dregist saman í bæði Vel-
ferðarsjóði Suðurnesja í Kef lavík
og Líknar- og hjálparsjóði Njarð-
víkurkirkna. „Við höfum því reynt
að halda okkur við grunnþarfirnar.
En við tókum þá ákvörðun að halda
áfram að styðja börn þeirra verst
settu til íþrótta- eða tómstunda-
starfs,“ segir hann. Ásamt aukinni
ásókn í stuðning við matarkaup
skortir marga einnig lyf.
Framfærslustyrkir eru mun
lægri á Suðurnesjum en til dæmis
á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykja-
nesbæ getur styrkur verið allt að
153 þúsund krónum á mánuði til
einstaklinga og 244 þúsund til
sambúðarfólks. Í Suðurnesjabæ eru
upphæðirnar 167 og 273 þúsund. Til
samanburðar geta einstaklingar
fengið 208 þúsund krónur á mánuði
í Reykjavík og sambúðarfólk 332
þúsund og í Kópavogi eru upphæð-
irnar 192 og 307 þúsund. Er því um
að ræða tugþúsunda króna mun.
Baldur segist heyra það frá sveit-
arstjórnum að verið sé að reyna að
vinna í þessum málum. En svæðið
hefur vissulega sérstöðu. Bæði er
atvinnuleysi þar langhæst, nálægt
20 prósentum í ágúst, en einnig
er þar mikill fjöldi hælisleitenda.
Reykjanesbær hafi samning við
Útlendingastofnun en hælisleit-
endur séu í auknum mæli farnir að
leita eftir aðstoð hjá kirkjunni. „Stór
hluti af þeim sem koma til okkar eru
hælisleitendur, til dæmis kom stór
hópur frá Venesúela eftir áramótin,
en sumir hafa búið hér í tvö eða þrjú
ár,“ segir Baldur.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Prestar styrkja ekki
lengur skólamáltíðir
Prestar á Suðurnesjum hvetja sveitarfélögin á svæðinu til að hækka fram-
færslustyrki sem eru mun lægri en á höfuðborgarsvæðinu. Hætta þarf að
styrkja skólamáltíðir en tómstundastarf verði enn styrkt fyrir þá verst settu.
Framfærslustyrkur til einstaklings er 55 þúsund krónum lægri í Reykjanesbæ en Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vespumenning og sprengingar hafa
verið til umræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KÓPAVOGUR Kópavogsbær hefur
gripið til aðgerða vegna mikillar
óæskilegrar hópamyndunar á
grunnskólalóð. En eins og greint var
frá í fréttum um miðjan ágúst voru
hátt í 200 ungmenni saman komin
á lóð Hörðuvallaskóla í Kórahverfi.
Var bílum keyrt inn á lóðina, læti
mikil og þurfti lögreglan að hafa
afskipti af ungmennum, sem sum
hver voru vopnuð kylfum.
Sigríður Björg Tómasdóttir,
almannatengill Kópavogsbæjar,
segir aðgerðirnar tilkomnar vegna
atviksins í Hörðuvallaskóla, og það
sé enn sem komið er bundið við
hann þó að ungmennin séu ekki
endilega öll nemendur þar.
„Bænum er umhugað um öryggi
barna og ungmenna og því var grip-
ið til aðgerða í kjölfar hópamynd-
unar um miðjan ágúst. Þess má
geta að við höldum úti reglulegum
útivöktum félagsmiðstöðva til þess
að fylgjast með og sporna við óæski-
legri hópamyndun. Þetta er gert í
góðu samstarfi við foreldraröltið
og skólana,“ segir Sigríður.
Voru læti og fyrirgangur mikill
og ljóst að þessi hópamyndun sam-
rýmist ekki sóttvarnasjónarmið-
um. „Enginn slasaðist en þarna var
kominn saman allt of mikill fjöldi,“
segir hún.
Vespumenning unglinga hefur
líka verið til umræðu í hverfinu,
bæði á lóð Hörðuvallaskóla, leik-
skóla og annars staðar. Að ungl-
ingar keyri of hratt, hjálmlaus
og óvarlega. Einnig að þeir valdi
íbúum hverfisins ónæði með því
að sprengja hvellhettur á öllum
tímum. – khg
Útivakt og foreldrarölt eflt í Kópavogi
2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð