Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 12

Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 12
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Deilurnar eru ekki prívat- mál lögreglu eða yfirvalda. Þær koma okkur öllum við Jón Þórisson jon@frettabladid.is Mín skoðun Lára G. Sigurðardóttir Undanfarið hefur verið fjallað nokkuð um deilur og átök innan embættis lögreglunnar á Suðurnesjum. Ásak­anir um undirmál, einelti, frændhygli í ráðningum og að fólki sé bolað úr starfi eru meðal þess sem þar gengur á milli starfsmanna. Hvað sem er rétt í því eru þessar ásakanir vísbending um að ekki sé allt með felldu innan embættisins. Langvarandi veikindaleyfi lykil­ starfsmanna við embættið styðja einnig þá ályktun. Í sömu átt bendir inngrip dómsmálaráðherra, þegar lögreglustjórinn á Suðurnesjum var færður frá embættinu og komið í nýtt starf í ráðuneytinu í mál­ efnum landamæra almennt, sem í augnablikinu að minnsta kosti eru öll nær lokuð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem upp koma mál innan lögreglunnar af þessu tagi. Sami dómsmálaráðherra lét til sín taka nýlega þegar þáverandi ríkislögreglu­ stjóra var gert að láta af störfum, gegn ríkulegum starfslokagreiðslum. Það var í kjölfar langvarandi ósættis, f lokkadrátta og ásakana um að menn hafi notið tengsla í samningum sínum við embættið. Þá er ekki langt síðan illdeilur loguðu innan em­ bættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, þar sem sumpart sömu persónur og leikendur komu við sögu og nýlega suður með sjó. Skýringarnar á þessum væringum innan lögregl­ unn ar eru sjálfsagt fjölmargar. Svo tekið sé dæmi af þessu nýjasta máli hafa fjölmiðlar ítrekað reynt að graf ast fyrir um hvernig nákvæmlega í málinu liggur. Þar hafa menn komið að lokuðum dyrum og því svarað með að ekki sé heimilt að lýsa persónulegum málefnum starfs manna. Á vef lögreglunnar lýsir hún hlutverki sínu. Gætt skuli almannaöryggis, tryggja réttaröryggi, halda uppi almannafriði og allsherjarreglu. Jafnframt að sýna skuli árvekni í starfi og þekkja góð skil á skyldum og ábyrgð sem starfinu fylgir. Gæta skuli að samviskusemi, hlut lægni, réttsýni og hófsemi. Að lokum segir að starfs menn lögreglu geti því aðeins vænst trausts og virðingar vegna starfa sinna, að þeir gegni hlutverki sínu með það að leiðarljósi að þjóna samfélaginu af heiðarleika, hlutlægni, réttsýni, nær­ gætni, trúmennsku, þagmælsku og þekkingu. Þarna er raðað saman orðum sem lögreglan sjálf telur hafa þýðingu. En svo virðist að frjáls lega sé gengið um merkingu þeirra. Um það vitna þær deilur sem ítrekað virðast blossa upp innan lögreglunnar. Deilurnar eru ekki prívatmál lögreglu eða yfir­ valda. Þær koma okkur öllum við, því almenningur á mikið undir að starf lögreglu sé rækt í anda þessara orða. Hinum almenna lögreglumanni sem starfa þarf við þær aðstæður að yfirmenn séu í sífelldum átökum er ekki gert auðvelt að sinna sínum verkum í þessum anda. Einnig má spyrja hvernig á því standi að þeir sem gæta eiga þess að allt sé í röð og reglu í samfélag­ inu, haldist ekki betur á eigin málum en raun ber vitni. Hver á að gæta varðanna? Verðirnir Ég sit hér við tölvuna mína og velti fyrir mér hinum nýja veruleika sem líf mitt er. Liðnir eru dagarnir þar sem ég gekk frjálslega um heimilið mitt. Fjórir karlmenn sitja á víð og dreif um húsið með fjórar vefmyndavélar í gangi liðlangan daginn. Ef ég stíg út fyrir skrifstofurýmið mitt þarf ég að hugsa mig tvisvar um hvaða leið skal velja. Fyrst eftir að skóli strákanna byrjaði með vefkennslu átti ég það til að ganga grunlaus inn í miðja kennslustund. Ég hef líka ætt inn á vinnufund hjá eiginmanninum. Núna er búið að setja reglur til að tryggja að hús­ móðirin sé ekki að flækjast á fundi sem hún á ekkert erindi á. En kórónaveiran hefur ekki bara breytt dag­ legu lífi heima fyrir. Nýir tískustraumar Cindy Crawford birtist á samfélagsmiðlum með grímu í stíl við blússu sína og Nancy Pelosi sást með silkiklút í kúrekastíl, sem tónaði við himinbláan kjól hennar og hælaskó. Tískustraumar á Ítalíu slá lík­ lega allt annað út. Ítölsk kunningjakona mín hló og hristi höfuðið yfir móður sinni sem er komin vel yfir sjötugt, en sú var að fjárfesta í „trikini“ því það mun vera heitasta tískan þar í landi. Þá færðu bikiníbuxur, topp og grímu – allt í stíl! Hliðin sem margir óttuðust Þótt vel hafi tekist að takmarka útbreiðslu veirunnar á Íslandi, þá er hún farin að sýna á sér hlið sem margir óttuðust. Atvinnuleysi mældist rúmlega tvöfalt hærra í júlí í samanburði við júlí í fyrra. Atvinnu­ lausir þjást oft í þögninni og heilsa þeirra fær ekki mikla athygli, en sýnt hefur verið að atvinnulausir finni oftar fyrir þunglyndi, kvíða, lélegu sjálfsáliti og líkamlegum sársauka. Þeir eru auk þess líklegri til að fá háan blóðþrýsting, heilablóðfall, hjartaáfall og gigt. Fyrir utan aukið atvinnuleysi getur streita sem fylgir óvissuástandi í heimsfaraldri lagst þungt á við­ kvæma. Í vikunni var sagt frá því að merki væru um að tíðni sjálfsvíga og sjálfsvígshugsana hefði aukist umtalsvert það sem af er ári. Hamfarir ofan á hamfarir Ofan á heimsfaraldurinn færir árið 2020 okkur í fyrsta skipti tvöfaldan fellibyl í Bandaríkjunum og þurrt þrumuveður sem kveikti 625 elda allt um kring hér í Kaliforníu. Reykurinn læsir sig í öll vit – svolítið eins og að vera lokaður inni í litlu rými með keðju­ reykingamanni. Loftið er svo lélegt að meira að segja flugurnar láta ekki lengur sjá sig. Fuglarnir eru hættir að syngja – nema krákurnar. Það þarf meira til að kæfa skrækina í hræætunum enda líklegast að bíða eftir því að við drepumst. Loftgæðin síðustu daga eru svipuð og stór hluti jarðarbúa þarf að búa við dags daglega á Indlandi. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er loftmengun á heimsvísu ein algengasta dánarorsök af völdum lungnakrabbameins, heilablóðfalls og hjartasjúkdóms. Fyrir utan það getur umhverfis­ mengun til skemmri eða lengri tíma skert lungna­ starfsemi, sem fer ekki vel með núverandi heims­ faraldri sem herjar á lungun. Aðlögunarhæfni Í öllu þessu er maður minntur á að á örskotsstundu getur náttúran hrifsað lifibrauð okkar og skraut­ fjaðrirnar sem maður hefur sankað að sér í formi veraldlegra hluta. En það er eitt sem hún getur ekki hrifsað og það er hugur manns. Maðurinn sem lífvera hefur í gegnum tíðina sýnt ótrúlega aðlögunarhæfni. Indverjar hafa aðlagast mengun sem maður myndi ekki vilja sætta sig við, tískugúrúar finna leið til að tolla í tísku með grímur og húsmóðir hefur hægar um sig. Í eldfimum veruleika er því ágætt að muna að það er í eðli okkar að aðlagast breyttum aðstæðum. Eldfimur veruleiki HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU – MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Íslendingar lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali.* Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst á orn@frettabladid.is. Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. 93.000 *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019 2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.