Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 36
Umsóknarfrestur fyrir Markáætlun um samfélags-
legar áskoranir sem vera átti 1. september nk. hefur
verið framlengdur til 17. september vegna
Covid-19 faraldursins.
Markmið með styrkveitingum er að hraða framförum
í þremur flokkum:
• Umhverfismál og sjálfbærni
• Heilsa og velferð
• Líf og störf í heimi breytinga
Umsóknarfrestur rennur út 17. september kl. 16:00.
Fyrirtæki, háskólar og rannsóknarstofnanir eru sérstaklega
hvött til þess að sækja um.
Markáætlun um
samfélagslegar áskoranir
Umsóknarfrestur framlengdur
til 17. september
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Markmið Controlant er að sem f lestir í heiminum geti fengið örugg lyf,
ásamt því að minnka lyfja- og
matarsóun. Því erum við glöð og
stolt að geta lagt okkar af mörkum
í heimsfaraldrinum og hafa þar
jákvæð áhrif,“ segir Gísli Herjólfs-
son, forstjóri Controlant.
Controlant er hugbúnaðar- og
vélbúnaðarfyrirtæki sem fram-
leiðir hitastigs- og staðsetn-
ingarskynjara sem settir eru með
vörum til f lutninga og halda uppi
rauntímaeftirliti á allri virðiskeðj-
unni, svo hægt sé að fylgjast með
ástandi og staðsetningu vörunnar
hvar sem er í heiminum.
„Skynjararnir skapa verðmætar
upplýsingar um hvar vandamál
liggja á leið vörunnar, hvar vör-
urnar eiga á hættu að skemmast
og hvar óhöppin verða, en allar
upplýsingar koma sjálf krafa,
svo framarlega sem lausnin frá
Controlant er notuð. Með henni
ertu engum háður, veist allt um
virðiskeðjuna þína og get ur mælt
hvernig f lutningsaðilinn er að
standa sig, því menn nota mis-
munandi pakkningar til að verja
vörurnar fyrir hitastigsáföllum og
geta þá séð hvernig allt virkar úti í
mörkinni,“ útskýrir Gísli.
Yfir níutíu prósent samstarfsað-
ila Controlant eru í lyfjageiranum,
en fyrirtækið starfar einnig með
aðilum í matvælageiranum.
„Í dag eru gerðar strangar
kröfur þegar lyf eru f lutt á milli
landa og þá verður að vera hægt
að sanna að hitastigið hafi verið
innan marka áður en sjúklingar
mega fá lyfið. Lyfjafyrirtæki geta
því ekki starfað nema að hafa
þessar upplýsingar tiltækar og
það gerir okkur að mjög mikil-
vægum aðila í þeirri starfsemi,“
segir Gísli, sem hjá Controlant
vinnur líka náið með f lutningsað-
ilum.
„Við látum vita ef áhætta er
til staðar og getum þá brugðist
við til að koma í veg fyrir að vara
skemmist, og nú þegar höfum
við afstýrt tjónum sem hlaupa
á tugum milljarða hjá stóru
lyfjafyrirtækj unum,“ segir Gísli.
Lykilaðili fyrir lyfjafyrirtæki
Controlant var stofnað árið 2007 í
því augnamiði að búa til þráðlausa
skynjara sem gefa upplýsingar á
rauntíma.
„Við stofnuðum fyrirtækið rétt
áður en svínaflensufaraldurinn
skall á og ákváðum þá að herja á
lyfjageirann. Þegar svínaflensan
svo kom var farið að búa til bólu-
efni sem keypt voru til landsins og
var fyrsta stóra verkefnið okkar
í lyfjageiranum að vakta bólu-
efnin sem komu til landsins. Nú,
í miðjum heimsfaraldri COVID-
19, er eins og framtíð Controlant
hafi verið skrifuð í skýin, því nú
keppast lyfjafyrirtæki heimsins
við að koma með bóluefni sem
fyrst og við erum orðin lykilaðili í
þeirra starfsemi, til að geta dreift
bóluefnum á þeim hraða og skala
sem þarf á næstu mánuðum. Nú
þarf að senda lyfin express frá
framleiðanda yfir á sjúkrahúsin,
sem þýðir að allar rauntímaupp-
lýsingar og tímarammar, til að geta
tekið ákvörðun um hvort lyf megi
fara í sjúkling eða ekki, eru styttri
og ekki gerlegt að gera þetta nema
með rauntímatækni. Við höfum
undirbúið okkur vel fyrir þetta
og nú er allt að raungerast,“ segir
Gísli.
Allt gerist nú á ljóshraða
Controlant er íslenskt fyrirtæki frá
A til Ö og eru allar uppfinningar og
búnaður fyrirtækisins íslenskt.
„Við höfum stækkað mikið
síðan 2007 og erum nú með yfir 90
starfsmenn og hundruð þúsunda
tækja sem vakta lyf í öllum löndum
heimsins. Við gerum ráð fyrir að
ráða allt að fimm manns á viku
næstu misserin. Það hefur verið
mikill vöxtur og árangur síðast-
liðna átján mánuði. Þar hefur
COVID-19 auðvitað áhrif, en
við höfðum einnig tryggt okkur
samninga við fjögur stærstu lyfja-
fyrirtæki heims, auk ótal smærri.
Hlutirnir hafa gerst ansi hratt og nú
gerist allt á ljóshraða út af COVID-
19,“ segir Gísli.
Nánar á controlant.com
Eins og skrifað væri í skýin
Hugbúnaðar- og vélbúnaðarfyrirtækið Controlant framleiðir hundruð þúsunda hitastigs- og
stað setningarskynjara sem notaðir eru til að vakta lyf og matvæli í öllum löndum heimsins.
Gísli Herjólfsson, forstjóri Controlant, býst við að ráða fimm manns á viku til framtíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við erum glöð og
stolt að geta lagt
okkar af mörkum í
heimsfaraldrinum og
hafa þar jákvæð áhrif.
Gísli Herjólfsson
Kerecis hóf starfsemi árið 2013, en fyrirtækið fram-leiðir afurðir byggðar á
affrumuðu þorskroði, sem hafa
jákvæð áhrif á frumuvöxt og
eru notaðar til meðhöndlunar á
þrálátum sárum og brunasárum,
eink um hjá fólki með sykursýki.
Fyrirtækið er einnig með starfsemi
í Bandaríkjunum.
Rekstrartekjur fyrirtækisins
jukust um 142 prósent á milli
áranna 2018 og 2019, en þær fóru
úr rúmum 500 milljónum króna
í yfir 1,2 milljarða króna. Kerecis
hlaut jafnframt sérstaka viður-
kenningu fyrir að hafa í fyrsta sinn
náð veltu yfir 1 milljarði króna á
árinu 2019. Þetta er í annað sinn
sem Kerecis hlýtur nafnbótina
Vaxtarsproti ársins, en árið 2017
hlaut fyrirtækið einnig Vaxtar-
sprotann.
Tvö önnur fyrirtæki, Carbon
Recycling International og Pure
North Recycling, hlutu einn-
ig viðurkenningar fyrir mikinn
vöxt í veltu á milli ára. Carbon
Recycling International rekur
verksmiðju í Svartsengi, sem fram-
leiðir metanól úr koltvísýringi
og vetni og þróar tæknilausn til
að framleiða vistvænt eldsneyti.
Velta fyrirtækisins jókst um 78
prósent á milli ára. Pure North
Recycling endurvinnur plast með
umhverfisvænum orkugjöfum og
er jarðvarmi í aðalhlutverki. Velta
fyrirtækisins jókst um 59 prósent
á milli ára.
Vaxtarsprotinn er samstarfs-
verkefni Samtaka iðnaðarins, Sam-
taka sprotafyrirtækja, Háskólans
í Reykjavík og Rannsóknamið-
stöðvar Íslands. Þetta er í fjórtánda
skiptið sem viðurkenn ingarnar eru
veittar, en tilgangur verkefnisins er
að vekja athygli á góðum árangri
sprotafyrirtækja í örum vexti, og
skapa þannig aukinn áhuga og
skilning á uppbyggingarstarfi þess-
ara fyrirtækja. Í dómnefnd voru Ari
Kristinn Jónsson fyrir Háskólann í
Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson
fyrir Rannís og Sigríður Mogensen
fyrir Samtök iðnaðarins og Samtök
sprotafyrirtækja.
Vaxtarsproti ársins er Kerecis
Frá afhendingu
viðurkenn-
inganna.
Talið frá vinstri:
Þórdís Kol-
brún Reykfjörð
Gylfadóttir,
nýsköpunarráð-
herra, Ingólfur
Guðmundsson,
forstjóri CRI,
Guðmundur
Fertram
Sigurjónsson,
forstjóri Ker-
ecis, Sigurður
Halldórsson,
framkvæmda-
stjóri Pure
North Re-
cycling, og Árni
Sigurjónsson,
formaður SI.
6 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNÝSKÖPUN Á ÍSLANDI