Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 69
Tækniþróunarsjóður
tths.isÞrír milljarðar til nýsköpunar
Þú nærð lengra með Tækniþróunarsjóði
Tækniþróunarsjóður úthlutar um þremur
milljörðum króna til nýsköpunar á árinu.
Sjóðnum bárust nærri 900 umsóknir,
sem er um 40% aukning milli ára.
Yfir 130 fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar
eru að fá nýja styrki auk þeirra sem þiggja
framhaldsstyrki frá fyrra ári.
Tækniþróunarsjóður er mikilvægur stuðningsaðili nýsköpunar
í íslensku atvinnulífi. Nánari upplýsingar eru á tths.is
Þorbjörg Jensdóttir er fram-
kvæmdastjóri IceMedico.
Þrjár konur í ábyrgðarstöðum: Sigríður V. Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri,
Hélène L. Lauzon framkvæmdastjóri og Guðný Kristjánsdóttir gæðastjóri.
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir er
stjórnarformaður Laka Power.
stjóri framleiðslu- og gæðasviðs
hjá Kerecis.
Hún segir afar mikilvægt að
skapa umhverfi sem hvetur og
styður við nýsköpun.
„Í því samhengi er gaman að
tala um að við erum náttúrulega
fiskveiðiþjóð sem hefur lifað af
fiskveiðum árum saman. Nú í dag
erum við virkilega farin að huga að
því að nýta allar þær afurðir sem
við fáum frá sjónum og erum farin
að nýta þessar aukaafurðir mun
betur. Rekstur okkar byggir á því
að nýta fiskafurðir sem ekki hafa
verið nýttar og koma þeim í verð
með íslensku hugviti,“ segir Klara.
Afurðir Kerecis eru affrumað
þorskroð, sem er notað til með-
höndlunar á þrálátum sárum og
brunasárum, einkum hjá fólki með
sykursýki um allan heim.
„Það er okkur afar mikilvægt að
taka þátt í uppbyggingu fjölbreytts
atvinnulífs á Íslandi. Styrkur
Tækniþróunarsjóðs var lykilatriði
þess að hægt var að þróa fyrstu
skref vinnslunnar á Ísafirði, og í
kjölfar styrksins vaknaði áhugi
fjárfesta og Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins fjárfesti í fyrirtæk-
inu, vegna gæðastimpils Tækni-
þróunarsjóðs. Fjárfesting Nýsköp-
unarsjóðs varð svo til þess að tvö
öflug fiskverkunarfyrirtæki á
Vestfjörðum fjárfestu í fyrirtækinu
og svo hefur umfang rekstursins
aukist ár frá ári og nýjasti fjárfestir
fyrirtækisins er leiðandi tækni-
fjárfestir í Sílikondalnum í Banda-
ríkjunum. Nú starfa vel yfir 100
manns hjá fyrirtækinu á Ísafirði,
í Reykjavík, Sviss og Bandaríkj-
unum og við eigum yfir 50 útgefin
einkaleyfi og markaðsleyfi í Asíu,
Bandaríkjunum og Evrópu.“
Nýsköpun efst í huga
Frá árinu 1999 hefur fyrir-
tækið Primex framleitt kítósan
úr rækjuskel og hlaut árið 2012
Nýsköpunar verðlaun fyrir að
breyta úrgangi í verðmæti. Í vís-
indaheiminum er talað um kítósan
sem undraefni, því það hefur
margvíslega eiginleika og þar með
óteljandi notkunarmöguleika.
Nýsköpun hefur alla tíð verið
efst í huga stjórnenda og starfs-
manna fyrirtækisins og hefur
Primex fest sig í sessi sem leiðandi
framleiðandi á heimsvísu og ein-
blínt á þróun og tækni til að fram-
leiða hágæða kítósan.
„Okkar hráefnismarkaðir eru
aðallega sárameðferðir, fæðu-
bótarefni og snyrtivörur,“ upp-
lýsir Hélène Liette Lauzon,
framkvæmdastjóri rannsóknar- og
þróunar hjá Primex.
„Til að ná árangri höfum við
tekið þátt í nýsköpunarumhverf-
inu hér heima og sótt um styrki
til Átaks til atvinnusköpunar og
Tækniþróunarsjóð, en einnig í
öðrum innlendum og ESB-sjóðum,
ráðið til okkar sumarnema, auk
þess að vera í samstarfi við rann-
sóknaraðila og háskóla hérlendis
sem erlendis. Slíkir styrkir eru
mikilvægir til að tryggja hrað-
ari vöruþróun,“ segir Hélène.
„Tækniþróunarsjóður hefur verið
hvatning til rannsókna og þróunar
nýrra vara hjá Primex og stuðlað að
jákvæðri og sjálfbærri byggðaþró-
un. Ávinningurinn er enn fremur
aukin þekking, nýting auðlinda,
verðmætasköpun og atvinnu-
sköpun fyrir íslenskt samfélag.“
Uppskorið eins og sáð er
Nýsköpunarferlar í öllum geirum
efnahagslífs eru undirstaða áfram-
haldandi þroska og vaxtar innan
hvers geira fyrir sig, að mati Þor-
bjargar Jensdóttur, framkvæmda-
stjóra IceMedico, sem framleiðir
Happ+ mola.
„Það hefur margsannað sig
að lönd sem hafa forgangsraðað
nýsköpun og rannsóknum í sam-
drætti, hafa uppskorið samkvæmt
því með tímanum, en nýsköpun
tekur tíma og er þolinmæðis-
verk. Þannig, að eins freistandi
og það kann að vera að skera
niður nýsköpunarferla þegar það
harðnar á dalnum, er jafnframt
mikil áhætta fólgin í því að missa
af dýrmætum tækifærum fram-
tíðar fyrir land og þjóð,“ segir
Þorbjörg.
Ein helsta ógn nýsköpunar, að
mati Þorbjargar, er skortur á þolin-
móðu fjármagni. „Ég finn það í
nýsköpunarumhverfinu á Íslandi,
en einnig sést það vel á markvissri
aukningu umsókna til Tækniþró-
unarsjóðs á milli umsóknarfresta.
Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er
því gríðarlegt fyrir uppbyggingu
nútímaþjóðfélags,“ segir Þorbjörg.
„Styrkir sem IceMedico hefur
hlotið frá Tækniþróunarsjóði í
gegnum tíðina, hafa alltaf skipt
sköpum í verkefnum sem sótt var
um. Bæði hafa styrkirnir náð að
verja mikilvæg störf hjá félaginu,
sem og að leyfa félaginu að hreyfa
tiltekin verkefni hraðar en annars
hefði verið hægt og það hefur
styrkt samkeppnistöðu félagsins,
ekki síst erlendis. Styrkirnir hafa
einnig, og munu halda áfram með
nýveittum styrk, nært samstarf við
önnur fyrirtæki og Háskóla Íslands
í okkar tilviki.“
Vantar umsóknir frá konum
Í þjóðfélagsumræðunni er gjarnan
talað um að halli á konur og lands-
byggðina þegar kemur að stuðn-
ingi við nýsköpun.
„Ég er harður talsmaður jafn-
réttis og réttlætis á öllum sviðum.
Að því sögðu tel ég ekki að lausnin
á þeim vanda sem í því felst að
lægri hluti fjármagns Tækniþróun-
arsjóðs fari út á land, eða til verk-
efna sem leidd eru af konum, sé að
líta öðruvísi til þeirra verkefna.
Þvert á móti held ég að mikilvægt
sé að horfa til allra verkefna út frá
gæðum þeirra, óháð því hvaðan
þau koma, enda skilst mér þegar
litið er á gögnin að komi í ljós að
hlutfall verkefna sem hljóta styrk
og koma frá þessum hópum sé
sambærilegt við önnur verkefni,“
segir Hjálmar hjá Grid
Vandinn sé að ekki berist nógu
margar umsóknir af landsbyggð-
inni, eða konum.
„Lausnin hlýtur að felast í að
finna orsök þess og ráðast að
henni, hvort sem það felst í að
hvetja konur og fólk á landsbyggð-
inni enn frekar til að sækja um, eða
– það sem mér finnst líklegra – að
það sé eitthvað í umhverfi þessara
hópa sem dragi úr nýsköpunar-
starfi á meðal þeirra. Þetta þarf að
greina og ráðast að rótum vandans
þar,“ segir Hjálmar.
Ásta Sóllilja hjá Laka Power segir
mikilvægt fyrir sprotafyrirtæki
með lítil fjárráð að velja hæfustu
einstaklingana til starfa, óháð
kyni.
„Á sama tíma þarf að hafa í huga
að fjölbreytni skiptir máli fyrir
nýsköpun. Það er mikilvægt að
Tækniþróunarsjóður styrki bestu
verkefnin, óháð kyni verkefna-
stjóra. Það má hins vegar velta
því fyrir sér hvað sé hægt að gera
til að kveikja áhuga fleiri öflugra
kvenna á nýsköpun. Þar skipta
sterkar fyrirmyndir án efa mjög
miklu máli. Stuðningsumhverfi
nýsköpunar á Íslandi er að miklu
leyti stýrt af konum og við eigum
nýsköpunarráðherra sem er kona.
Svo gott sem jafnmargar konur
og karlar stýra fjárfestingum vísi-
sjóða á Íslandi, og það er einstakt
í þeim geira. En eflaust má gera
enn betur til að auka hlut kvenna
í nýsköpun á Íslandi,“ segir Ásta
Sóllilja.
Landsbyggðin stendur sig vel
Brýnt er að átta sig á að nýsköpun
af landsbyggðinni er mikilvæg.
Mörg sterk fyrirtæki úti á landi
standa framarlega á sínum markaði
á heimsvísu eins og Primex, Kerec-
is, Genís og Skaginn/3X. Sem dæmi
hefur Primex verið brautryðjandi
í verðmætasköpun í fullnýtingu
sjávarafurða á síðastliðnum árum
og lagt áherslu á kynjasjónarmið,
þar sem yfir helmingur stjórn-
enda félagsins eru konur. Þar starfa
tvær konur með doktorsgráðu og
sumarnemar hafa verið ríkjandi
kvenkyns á undanförnum árum.
Þorbjörg hjá IceMedico hefur
orðið: „Kynjahlutföll hafa lengi
verið viðkvæmt mál. Ég hefði sjálf
viljað sjá f leiri konur í forsvari
fyrir stórum styrkumsóknum
hjá meðal annars Tækniþróunar-
sjóði. Ég hjó eftir því í nýafstaðinni
úthlutun, að ég var eini kvenkyns
verkefnastjórinn í styrktarflokkn-
um Vöxtur sem hlaut styrk og mér
fannst það furðulegt í fyrstu, þar
sem ég veit að við eigum flotta
kvenkyns framkvæmdastjóra hjá
öflugum nýsköpunarfyrirtækjum
hér á landi og sem ættu fullt
erindi að sækja í sjóðinn. En þegar
tölurnar eru skoðaðar virðist vera
samhengi milli hlutfalls kvenkyns
verkefnastjóra sem fá veitingu og
hlutfalls innsendra umsókna heilt
yfir hjá sjóðnum. Af hverju eru
ekki f leiri konur að sækja um?“
veltir Þorbjörg fyrir sér.
„Mín skoðun er einfaldlega sú að
vandamálið byrjar annars staðar.
Konur veigra sér gjarnan við að
sækja um út af alls konar ástæðum
og mögulega eru verkefni kvenna
þannig skrúfuð saman að þau
henta ekki viðmiðum sjóðsins.
Ástæðan getur verið margþætt, en
hér mætti leggja vinnu í að greina
betur hvað verður til þess að
konur nái ekki almennilegu flugi í
styrkumhverfinu á Íslandi og hvað
sé hægt að gera til að bæta það.“
Klara, framkvæmdastjóri fram-
leiðslu -og gæðasviðs Kerecis.
Í íslensku sam-
hengi er nýsköpun
einfaldlega nauðsynleg
til að auka fjölbreytni
atvinnu- og efnahagslífs-
ins.
Hjálmar Gíslason
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 11 L AU G A R DAG U R 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 NÝSKÖPUN Á ÍSLANDI