Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 100

Fréttablaðið - 29.08.2020, Side 100
Lífið í vikunni 23.08.20- 29.08.20 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Hverri Everley og Oakley heilsudýnu fylgir vandað Aspen fjallahjól að verðmæti 59.000 kr.* OAKLEY heilsudýnan frá Primo er með vönduð u poka gormakerfi sem veitir mikinn og góðan stuðning. Yfirdýnan er gerð úr mismunandi svamp lögum sem og visco lagi sem aðlagast að líkama þínum og heldur honum í réttri stellingu út nóttina. Oakley heilsudýnan er með kantstyrkingum sem eykur svefnsvæði hennar og end ingu. Oakley er millistíf/ stíf og hentar því breiðum hópi. Ótrúlegt ... en satt! Ti lv al in fe rm in ga rg jö f Oakley og Everley heilsu dýnur (með Aspen fjalla hjóli). Fáanlegar 120, 140, 160 og 180 x 200 cm. Verðdæmi: OAKLEY (30 cm þykk) 120x200 cm Stök dýna 139.900 kr. Verð m/ Classic botni 175.900 kr. Verðdæmi: EVERLEY (35 cm þykk) 120x200 cm Stök dýna 149.900 kr. Verð m/ Classic botni 185.900 kr. EVERLEY heilsudýnan frá Primo er gerð úr 13 gr. pokagormum sem veita hinn fullkomna stuðning. Stífir kantar auka svefnsvæði dýnunnar. Yfirdýnan er þykk og þægileg og gerð úr nokkrum mismunandi svamplögum. Viscolag gefur líkamanum þann stuðn ing sem hann þarf. Dýnan er mýkri á axlar- og mjaðmasvæði til að líkami þinn fái eins náttúru lega sveigju og mögulegt er. Everley er millistíf/ mjúk og ein vinsælasta dýna Primo. 59.000 kr. fylgir með Oakley & Everley heilsu- dýnum ASPEN fjallahjól að verðmæti * á meðan birgðir endast – athugið skilaskilmála. ASPEN 26" FJALLAHJÓL • 26" • 21 gír • demparar á framöxli • diskabremsur að framan og aftan • standari • glitaugu www.dorma.is SENDUM FRÍTT OPNAR IMPROV SKÓLANN Improv skólinn hefur nú opnað fyrir umsóknir á námskeið, en á þeim verður sóttvarnareglum fylli- lega fylgt eftir. Nú þegar er uppselt á helstu námskeiðin, að sögn skóla- stjórans, Dóru Jóhannsdóttur. ALLT ÚR ENGU Þættirnir Allt úr engu hófu göngu sína á Stöð 2 í vikunni. Davíð Örn Hákonarson þáttastjórnandi stefnir á að kenna rétta nýtingu á mat og að opna augu fólks fyrir hráefnum úr umhverfi þess. AFTUR TIL ENGLABORGAR Tónlistarmaðurinn Eðvarð Egilsson var valinn sem fulltrúi í alþjóðlegar lagahöfundabúðir í Los Angeles. Hann segist spenntur fyrir verk- efninu þótt þær fari fram á netinu vegna kófsins. NÝTT NÁMSKEIÐ Kristín Maríella hefur vakið mikla athygli fyrir umfjöllun sína um RIE-uppeldisnálgunina. Hún ákvað að bregðast við breyttum aðstæðum í ljósi COVID-19 og býður nú námskeið sín á netinu. Ég hef alla tíð elskað bíó­myndir og sjónvarps­efni, það er eitthvað svo magnað að geta sest fyrir framan tækið og flogið yfir í annan heim til að heyra nýjar sögur og kynnast nýjum karakterum,“ segir leikstjór­ inn Haukur Björgvinsson. „Sem barn hékk ég á vídeóleigum og gleymdi mér klukkustundum saman við það lesa aftan á vídeó­ spólur. Ég sakna þess enn að geta leigt eina nýja og tvær gamlar á fimm hundruð kall. Einn af vinum mínum á Seltjarnarnesi átti upp­ tökuvél. Þegar við vorum þrettán ára byrjuðum við að gera alls konar stuttmyndir og viðtalsþætti með misgóðum árangri,“ segir hann og hlær. Getur alltaf bætt sig Haukur var sextán ára þegar hann síðan ákvað að hann vildi gerast leikstjóri og handritshöfundur. „Þegar ég var átján ára flutti ég svo til Montreal til að læra leikstjórn og handritagerð og var þar í sex ár með stoppi í Toronto. Síðan flutti ég aftur til Íslands og fór að vinna við kvikmyndagerð. Leikstjórnin og handritsskrifin henta mér vel því það er alltaf hægt að læra meira, sjá eitthvað nýtt og bæta sig. Þess vegna leiðist manni aldrei,“ segir Haukur. Stuttmynd Hauks, Wilma, hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur víðs vegar um heiminn. „Wilma fjallar um trans strák sem skilgreinir sig sem stelpu og er að hitta föður sinn í fyrsta skiptið. Mér þótti hugmyndin um að fæðast í „röngum“ líkama áhugaverð út af fyrir sig. Þegar ég fór svo að rann­ saka málið og kynna mér málefni trans fólks sá ég strax að það er rosaleg barátta að fæðast inn í heim sem gerir allt sem hann getur til að segja þér að vera öðruvísi en þú ert. Við tókum myndina upp á tveimur löngum dögum með frábæru og efnilegu kvikmyndagerðarfólki sem lagði allt í sölurnar til að gera þetta vel. Hinn ungi og efnilegi Snævar Valdimarsson Steffensen lék svo Wilmu. Hann stóð sig með prýði og ég held að hann eigi framtíðina fyrir sér í kvikmyndagerð.“ Á erindi við áhorfendur Myndin hefur nú þegar tekið þátt í hátíðum víða um heim, en stærstu verðlaunin voru Special Jury Prize á Oscar og Bafta qualifying Flicker fest í Ástralíu, auk þess að vinna bestu myndina á Giffoni á Ítalíu núna á dögunum. Þá er myndin einnig til­ nefnd til Edduverðlaunanna í flokki stuttmynda. „Giffoni er ein stærsta kvik­ my ndahátíð heims tileink uð börnum og unglingum og á hverju ári flykkjast mörg þúsund manns til að horfa á kvikmyndir á hátíðinni. Wilma tók þátt í aðalkeppninni og hlaut verðlaun sem besta stutt­ myndin, í f lokki sem ætlaður er börnum 16 ára og eldri. Það hefur gífurlega mikla þýðingu að fá verð­ laun á jafnstórri hátíð og Giffoni er. Þetta sýnir og sannar að málefni trans fólks og þá sérstaklega ungs trans fólks, eiga erindi við áhorf­ endur víða um heim, jafnt unga sem aldna.“ Wilma í fullri lengd Núna vinnur Haukur að heimilda­ sjónvarpsseríunni Hver drap Friðrik Dór? „Þar er ég í teymi af frábærum leikstjórum og framleiðendum. Þetta er dramatískur heimilda­ þáttur framleiddur af SNARK, um eitt alvarlegasta og skrýtnasta mál Íslandssögunnar. Þetta er ótrúlegt mál sem teygir anga sína út fyrir landsteinana, en það er best að segja ekki of mikið,“ segir hann. Haukur og Helgi Jóhannsson fengu á dögunum veglegan hand­ ritastyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, til að skrifa sjónvarpsserí­ una Hálendið sem er framleidd af Sagafilm. „Svo maður situr sveittur við skrif á kaffihúsum alla daga,“ segir Haukur brosandi. „Síðan er ég að skrifa handrit um Wilmu í fullri lengd, en ég tel að karakterarnir og málefni trans fólks eigi fullt erindi í lengra efni.“ steingerdur@frettabladid.is Haukur hlýtur enn ein verðlaunin Leikstjórinn Haukur Björgvinsson hlaut enn ein verðlaunin fyrir stuttmynd sína Wilmu sem hefur hlotið góðar viðtökur víðs vegar um heim. Hann sökkti sér í málefni trans fólks við gerð hennar. Haukur vinnur nú að gerð þáttanna Hver drap Friðrik Dór? FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.