Fréttablaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 100
Lífið í
vikunni
23.08.20-
29.08.20
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Hverri Everley og Oakley heilsudýnu
fylgir vandað Aspen fjallahjól
að verðmæti 59.000 kr.*
OAKLEY
heilsudýnan frá Primo er með vönduð u
poka gormakerfi sem veitir mikinn og
góðan stuðning. Yfirdýnan er gerð úr
mismunandi svamp lögum sem og visco
lagi sem aðlagast að líkama þínum
og heldur honum í réttri stellingu út
nóttina. Oakley heilsudýnan er með
kantstyrkingum sem eykur svefnsvæði
hennar og end ingu. Oakley er millistíf/ stíf
og hentar því breiðum hópi.
Ótrúlegt ... en satt!
Ti
lv
al
in
fe
rm
in
ga
rg
jö
f
Oakley og Everley heilsu dýnur (með Aspen fjalla hjóli).
Fáanlegar 120, 140, 160 og 180 x 200 cm.
Verðdæmi: OAKLEY (30 cm þykk) 120x200 cm
Stök dýna 139.900 kr. Verð m/ Classic botni 175.900 kr.
Verðdæmi: EVERLEY (35 cm þykk) 120x200 cm
Stök dýna 149.900 kr. Verð m/ Classic botni 185.900 kr.
EVERLEY
heilsudýnan frá Primo er gerð úr
13 gr. pokagormum sem veita hinn
fullkomna stuðning. Stífir kantar auka
svefnsvæði dýnunnar. Yfirdýnan er
þykk og þægileg og gerð úr nokkrum
mismunandi svamplögum. Viscolag
gefur líkamanum þann stuðn ing sem
hann þarf. Dýnan er mýkri á axlar- og
mjaðmasvæði til að líkami þinn fái
eins náttúru lega sveigju og mögulegt
er. Everley er millistíf/ mjúk og ein
vinsælasta dýna Primo.
59.000 kr.
fylgir með Oakley &
Everley heilsu-
dýnum
ASPEN
fjallahjól að verðmæti
* á meðan birgðir endast – athugið skilaskilmála.
ASPEN 26" FJALLAHJÓL
• 26"
• 21 gír
• demparar
á framöxli
• diskabremsur að
framan og aftan
• standari
• glitaugu
www.dorma.is
SENDUM
FRÍTT
OPNAR IMPROV SKÓLANN
Improv skólinn hefur nú opnað
fyrir umsóknir á námskeið, en á
þeim verður sóttvarnareglum fylli-
lega fylgt eftir. Nú þegar er uppselt
á helstu námskeiðin, að sögn skóla-
stjórans, Dóru Jóhannsdóttur.
ALLT ÚR ENGU
Þættirnir Allt úr engu hófu göngu
sína á Stöð 2 í vikunni. Davíð Örn
Hákonarson þáttastjórnandi
stefnir á að kenna rétta nýtingu
á mat og að opna augu fólks fyrir
hráefnum úr umhverfi þess.
AFTUR TIL ENGLABORGAR
Tónlistarmaðurinn Eðvarð Egilsson
var valinn sem fulltrúi í alþjóðlegar
lagahöfundabúðir í Los Angeles.
Hann segist spenntur fyrir verk-
efninu þótt þær fari fram á netinu
vegna kófsins.
NÝTT NÁMSKEIÐ
Kristín Maríella hefur vakið mikla
athygli fyrir umfjöllun sína um
RIE-uppeldisnálgunina. Hún
ákvað að bregðast við breyttum
aðstæðum í ljósi COVID-19 og
býður nú námskeið sín á netinu.
Ég hef alla tíð elskað bíómyndir og sjónvarpsefni, það er eitthvað svo magnað að geta sest fyrir framan tækið og flogið yfir í annan heim
til að heyra nýjar sögur og kynnast
nýjum karakterum,“ segir leikstjór
inn Haukur Björgvinsson.
„Sem barn hékk ég á vídeóleigum
og gleymdi mér klukkustundum
saman við það lesa aftan á vídeó
spólur. Ég sakna þess enn að geta
leigt eina nýja og tvær gamlar á
fimm hundruð kall. Einn af vinum
mínum á Seltjarnarnesi átti upp
tökuvél. Þegar við vorum þrettán
ára byrjuðum við að gera alls konar
stuttmyndir og viðtalsþætti með
misgóðum árangri,“ segir hann og
hlær.
Getur alltaf bætt sig
Haukur var sextán ára þegar hann
síðan ákvað að hann vildi gerast
leikstjóri og handritshöfundur.
„Þegar ég var átján ára flutti ég svo
til Montreal til að læra leikstjórn
og handritagerð og var þar í sex ár
með stoppi í Toronto. Síðan flutti ég
aftur til Íslands og fór að vinna við
kvikmyndagerð. Leikstjórnin og
handritsskrifin henta mér vel því
það er alltaf hægt að læra meira, sjá
eitthvað nýtt og bæta sig. Þess vegna
leiðist manni aldrei,“ segir Haukur.
Stuttmynd Hauks, Wilma, hefur
hlotið gríðarlega góðar viðtökur
víðs vegar um heiminn.
„Wilma fjallar um trans strák
sem skilgreinir sig sem stelpu og er
að hitta föður sinn í fyrsta skiptið.
Mér þótti hugmyndin um að fæðast
í „röngum“ líkama áhugaverð út af
fyrir sig. Þegar ég fór svo að rann
saka málið og kynna mér málefni
trans fólks sá ég strax að það er
rosaleg barátta að fæðast inn í heim
sem gerir allt sem hann getur til að
segja þér að vera öðruvísi en þú ert.
Við tókum myndina upp á tveimur
löngum dögum með frábæru og
efnilegu kvikmyndagerðarfólki sem
lagði allt í sölurnar til að gera þetta
vel. Hinn ungi og efnilegi Snævar
Valdimarsson Steffensen lék svo
Wilmu. Hann stóð sig með prýði og
ég held að hann eigi framtíðina fyrir
sér í kvikmyndagerð.“
Á erindi við áhorfendur
Myndin hefur nú þegar tekið þátt í
hátíðum víða um heim, en stærstu
verðlaunin voru Special Jury Prize á
Oscar og Bafta qualifying Flicker fest
í Ástralíu, auk þess að vinna bestu
myndina á Giffoni á Ítalíu núna á
dögunum. Þá er myndin einnig til
nefnd til Edduverðlaunanna í flokki
stuttmynda.
„Giffoni er ein stærsta kvik
my ndahátíð heims tileink uð
börnum og unglingum og á hverju
ári flykkjast mörg þúsund manns til
að horfa á kvikmyndir á hátíðinni.
Wilma tók þátt í aðalkeppninni
og hlaut verðlaun sem besta stutt
myndin, í f lokki sem ætlaður er
börnum 16 ára og eldri. Það hefur
gífurlega mikla þýðingu að fá verð
laun á jafnstórri hátíð og Giffoni er.
Þetta sýnir og sannar að málefni
trans fólks og þá sérstaklega ungs
trans fólks, eiga erindi við áhorf
endur víða um heim, jafnt unga sem
aldna.“
Wilma í fullri lengd
Núna vinnur Haukur að heimilda
sjónvarpsseríunni Hver drap Friðrik
Dór?
„Þar er ég í teymi af frábærum
leikstjórum og framleiðendum.
Þetta er dramatískur heimilda
þáttur framleiddur af SNARK, um
eitt alvarlegasta og skrýtnasta mál
Íslandssögunnar. Þetta er ótrúlegt
mál sem teygir anga sína út fyrir
landsteinana, en það er best að segja
ekki of mikið,“ segir hann.
Haukur og Helgi Jóhannsson
fengu á dögunum veglegan hand
ritastyrk frá Kvikmyndamiðstöð
Íslands, til að skrifa sjónvarpsserí
una Hálendið sem er framleidd af
Sagafilm.
„Svo maður situr sveittur við
skrif á kaffihúsum alla daga,“ segir
Haukur brosandi. „Síðan er ég að
skrifa handrit um Wilmu í fullri
lengd, en ég tel að karakterarnir og
málefni trans fólks eigi fullt erindi í
lengra efni.“
steingerdur@frettabladid.is
Haukur hlýtur
enn ein verðlaunin
Leikstjórinn Haukur Björgvinsson hlaut enn ein verðlaunin fyrir
stuttmynd sína Wilmu sem hefur hlotið góðar viðtökur víðs vegar
um heim. Hann sökkti sér í málefni trans fólks við gerð hennar.
Haukur vinnur nú að gerð þáttanna Hver drap Friðrik Dór? FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 9 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð