Fjölrit RALA - 20.03.1980, Síða 73
- 69
SENDIÐ, MOSARÍKT GRASLENDI.
(Finnbogastaóir í Trékyllisvík, Strand.)
Tilraunin stóð frá 1968 til 1975 eóa í átta ár. Uppskera var mæld
öll árin nema 1972. Gróðurfar var metið þrjú fyrstu árin og svo 1972 og
1975. Tilraunaskipulag var samkvæmt flokki I (sjá bls. 12).
JTilraunin var á þurru, sendnu valllendi í um 10 m hæð. Gróðurfar
einkennist af mosa (56%)., stinnastör (JL4%)_, grösum (12%), þursaskeggi og
móasefi (sjá nánar bls. 10).
Uppskera á óáborna landinu var að meðaltali 2.2 hestburðir á hektara,
mest 4.3, minnsb 1.2.
Uppskera jókst um 7 hestburði við áburðinn (85N-29P) fyrsta árið.
Eftir að gróðurfarsbreytingar vegna áburðarins eru um garð gengnar, virðist
að jafnaði mega reikna með um 10-11 hestburða uppskeruauka á hektara, sé
borið á annað hvert ár (85N-29P). Um miklar sveiflur var þó að ræða í upp-
skeru milli ára.
Nokkur uppskeruauki, 4 hestburðir, fékkst fyrir aukið köfnunarefni (70N-
100N, 3lP), en enginn fyrir aukinn fosfór (22P-31P) né heldur kalí (58K).
Hlutdeild grasa jókst úr 7% í 50% fyrsba ár áburðargjafar og var
síðan yfirleitt á bilinu 50-60%.
Áburðardreifing í tvö ár (85N-29P). gaf af sér 4-5 hestburði í uppskeru-
auka fyrstu árin, en á sjötta ári voru áburðaráhrifin að mestu horfin, bæði
hvað varðar hlutdeild grasa og uppskeru.
Áhrif mismunandi áburðarliða á uppskeru ítilrauninni eru sýnd í töflu
5 bls. 20.
Á næstu síðum eru línurit, sem sýna uppskeru og gróðurfar.
Línurnar, sem sýna áhrif áburðargjafar annað hvert ár og eftirverkun tveggja
ára áburaðrgjafar, eru byggðar á meðaltali allra áburðarliða. Meðaláburðar-
skammtur var 85N-29P á hektara.