Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 92

Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 92
88 FRAMRÆST GRASGEFIN MÝRI. (Syðri-Hamrar í Holtum, Rang.) Tilraunin stóð árin 1969 - 1973 eða í fimm ár. Uppskera og gróður- far var mælt öll árin. Tilraunaskipulag var samkvæmt flokki III. (sjá bls. 14). Tilraunin var á framræstu mýrlendi í um 40 m hæð. Landið er heldur deigara en í tilrauninni á Gerðubergi. Gróðurfar einkennist af grösiam (57%), mýrastör (25%) og öðrum hálfgrösum (sjá nánar bls. 11). Uppskera á óáborna landinu var að meðaltali 13 hestburðir á hektara mest 20, minnst 8. Uppskera jókst eftir því, sem leið á tilraunatímann, en það gæti bent til friðunaráhrifa og að áhrif framræslunnar hafi verið að aukast á tilraunatímanum. Uppskera jókst lítið við áburðinn fyrsta árið eða aðeins um rúmlega einn hestburð fyrir meðaláburðarskammtinn 50N-36P. Á öðru ári virtist gróðurfarsbreytingin vegna áburðarins lokið, og var uppskeruaukinn raunar mestur það ár eða um 18 hestburðir miðað við áburðarskammtinn 50N-36P. Uppskeruaukinn varð eftir það ekki nema um 7 hestburðir á hektara, ef borið var á annað hvert áir (50N-36P) . Hins vegar virðist mega reikna með um 14 hestburða uppskeruauka, sé borið á árlega (80N-44P). Fosfór einn sér hafði í för með sér talsverðan uppskeruauka eða í meðaltal fyrir öll ár 5 hestburði fyrir minni skammtinn (26P), en 6 fyrir þann stærri (44P). 40 kg N á hektara gaf 2 hestburði miðað við minni fosfórskammtinn (26P) og 6 hestburði miðað við þann stærri (44P). Þessi uppskeruauki vegna köfnunarefnis og vaxandi skammta af því er að verulegu leyti tilkominn vegna mikill áhrifa á öðru áburðarári, en önnur ár gætti áhrifa köfnunarefnisins minna. Svörun fyrir kalíáburð var ekki mælanleg. Hlutdeild grasa jókst tiltölulega lítið við áburðinn, enda um gras- gefna mýri að ræða. Hlutdeild þeirra var þó 80-90%, þar sem borið var á árlega. Eftirverkunaráhrif tveggja ára áburðargjafar (50N-36P) voru lítil og engin á öðru ári eftirverkunar. Áhrif mismunandi áburðarliða á uppskeru i tilrauninni eru sýnd í töflu 5 bls. 22. Á næstu síðum eru línurit, sem sýna uppskeru og gróðurfar. LÍnur- nar, sem sýna áhrif áburðargjafar annað hvert ár og eftirverkun tveggja ára áburðargjafar, eru byggðar á meðaltali allra áburðarliða. Meðaláburð arskammtur var 50N-36P á hektara. LÍnan, sem sýnir áhrif árlegar áburðar gjafar, byggir á sama meðaltali fyrstu tvö árin, en síðan á áburðarliðnum 80N-44P á hektara.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.