Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 122

Fjölrit RALA - 20.03.1980, Page 122
118 - 3. BLÓMJURTIR. Þessi flokkur var mjög misstór þáttur í gróðurfari einstakra tilrauna. Við upphaf var hlutur þeirra í gróðurþekju óábornu reitanna 2-42%. Sú friðun, sem tilraunirnar létu í té, nægði til þess, að hlutur blómjurta óx heldur í áburðarlausu reitunum. Við áburðargjöf annað hvert ár virtust blómjurtir halda hlut sínum að mestu, en viku fyrir grösum við árlega áburðargjöf. Hvergi lá þó nærri, að þær hyrfu. Þessi flokkur gengur því næst grösum að getu til að nýta áburð og standast samkeppni í þéttum sverði og mikilli grósku. Ekki eru þó allar tegundir blómjurta þar á sama báti, eins og kemur fram hér á eftir. Flestar blómjurtir virtust breiðast út í eftirverk- unarreitunum, en þó voru frá því veigamiklar undantekningar; þar er helst að nefna blóðberg og rjúpnalauf. Hér á eftir verður fjallað um þær tegundir hverja fyrir sig, sem náðu meira en 1% þekju að meðaltali í áburðarlausum rei.tum í að minnsta kosti einni tilraun. Þær eru 12 talsins. Auk þeirra fundist um 40 tegundir blóm- jurta í tilraununum. Margar þeirra fundust mjög sjaldan og engin þeirra svo oft, að tilefni gefi til ályktana um viðbrögð við áburðargjöf. Þeirra verður því ekki getið sérstaklega. a. Ljónslappi (Alchemilla alpina), var fremur fátíður í tilraunum þessum. Hann náði 1% þekju eða meira á 7 stöðum af 28, öllum norðanlands. Þar af skáru 3 staðir sig úr með 8-29% þekju. Þessir staðir voru Skáldsstað- ir, Gil og Kirkjuból. Vænta má, að svo mikil tíðni ljónslappa sé merki um snjóþyngsli. Þekja minnkaði við áburðargjöf, einkum væri borið á árlega. Við friðun jókst hlutfallsþekja ljónslappa, en hann var í of fáum tilraunum að finna til þess að draga megi af því víðtækar ályktanir. b. Hrafnaklukka (Cardamine pratensis) fannst í öllum mýratilraununum og allvíða í þurrlendistilraununum. Hlutur hennar 1 gróðurþekju var þó hvarvetna mjög lítill eða mestur um 1%. Áburðargjöf virtist litlu breyta um þekjp tegundarinnar. c. MÚsareyra og vegarfi (Cerastium alpinum; C. caespitosum). fundust víðast hvar, en yfirleitt bar litið á þeim í áburðarlausu reitunum. Þar náðu tegundir þessar samanlegt 1% af gróðurþekju eða meira á sjö stöðum af 28; mest 3% í Skálholtsvík og í Melgerði. Friðunin ein sér breytti litlu. Sumsstaðar breiddust tegundir þessar verulega út fyrsta ár áburðargjafar, en þoka síðan um set fyrir grösum. Þetta átti einkum við á lítt grónum stöðum á þurrlendi. í lok fyrst sumars áburðargjafar náðu tegundirnar 1% þekju eða meira a 20 stöðum; mest 8% í Kýrholti, 7% í Skálholtsvík og 6% .
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.