Fréttablaðið - 25.11.2020, Side 22
Þegar [...] útlit er
fyrir að ávöxtun
verði lægri en verðbólga er
takmarkaður áhugi á að
festa peninga hvort sem er í
innlánum eða
skuldabréfum.
Gunnar Bald
vinsson, fram
kvæmdastjóri
Almenna lífeyris
sjóðsins
70%
65%
60%
✿ Hlutfall óbundinna innlána
(innlendir aðilar)
60% 60%
61% 61% 61%
62%
64%
65% 65%
66% 66%
65% 65%
31
.1
0.
19
30
.1
1.
19
31
.1
2.
19
31
.1
.2
0
29
.2
.2
0
31
.3
.2
0
30
.4
.2
0
31
.5
.2
0
30
.6
.2
0
31
.7
.2
0
31
.8
.2
0
30
.9
.2
0
31
.1
0.
20
HEIMILD: SEÐLABANKI ÍSLANDS
200
150
100
✿ Innlán lífeyrissjóða
(milljarðar króna)
HEIMILD: SEÐLABANKI ÍSLANDS
31
.1
0.
19
30
.1
1.
19
31
.1
2.
19
31
.1
.2
0
29
.2
.2
0
31
.3
.2
0
30
.4
.2
0
31
.5
.2
0
30
.6
.2
0
31
.7
.2
0
31
.8
.2
0
30
.9
.2
0
31
.1
0.
20
Lífeyrissjóðir hafa ekki fjár-fest í ríkisskuldabréfum, sértryggðum skuldabréf-um og bundnum innlán-um í miklum mæli, vegna þess að ávöxtunin er ekki
viðunandi. Auk þess vilja sjóðirnir
hafa svigrúm til að grípa tækifæri
sem bjóðast á markaðinum. Þetta
segja framkvæmdastjórar lífeyris-
sjóða sem Markaðurinn ræddi við.
„Sögulega hefur þörf ríkisins fyrir
langtímafjármögnun verið fyrst og
fremst mætt af lífeyrissjóðum. Í vor
var eins og lífeyrissjóðum væri ætlað
fremur lítið hlutverk í fjármögnun
ríkissjóðs. Annað hefur komið á
daginn og þróun útboða og ávöxt-
unarkröfu ríkisbréfa sýnir að lang-
tímavextir í landinu fara þangað
sem lífeyrissjóðir vilja hafa þá,“ segir
Stefán Broddi Guðjónsson, sérfræð-
ingur í skuldabréfum hjá markaðs-
viðskiptum Arion banka.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
sagðist hafa áhyggjur af því að líf-
eyrissjóðirnir væru að mestu fjar-
verandi þegar kemur að því að fjár-
magna bankakerfið og eins ríkissjóð,
með kaupum á ríkisskuldabréfum á
markaði.
„Ég hefði viljað sjá lífeyrissjóðina,
sem eiga um 200 milljarða á inn-
lánsreikningum, binda þá fjármuni
í meira mæli í bankakerfinu. Þeir eru
eðlilega með mikið af innlánum en
þau eru mikið til óbundin og því er
ekki grundvöllur fyrir bankana til að
miðla þeim áfram í útlán, til dæmis
til fyrirtækja. Þetta er áhyggjuefni
sérstaklega þegar fram í sækir,“ sagði
seðlabankastjóri í viðtali við Frétta-
blaðið í síðustu viku.
Gunnar Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Almenna lífeyris-
sjóðsins, segir að sjóðurinn hlusti
þegar seðlabankastjóri eða aðrir á
markaði tjá sig. Verkefni stjórnenda
sjóðsins sé hins vegar að fylgja fjár-
festingastefnunni og gæta hagsmuna
sjóðfélaga.
„Þegar vextir eru orðnir það lágir
að útlit er fyrir að ávöxtun verði
lægri en verðbólga á sama tíma, er
takmarkaður áhugi á að festa pen-
inga hvort sem er í innlánum eða
skuldabréfum. Þetta á sérstaklega
við þegar útlit er fyrir að fjárfest-
ingarkostum kunni að fara fjölgandi
eins og nú er,“ segir Gunnar.
Harpa Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins (LSR), segir að sjóðurinn sé
með hluta af sínum innlánum bund-
inn til lengri tíma. „Kjör bankanna
hafa lækkað töluvert á síðustu miss-
erum og því hefur sjóðurinn dregið
úr bundnum innlánum og fjárfest
í öðrum sambærilegum afurðum,“
bætir hún við.
Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður
eignastýringar Gildis lífeyrissjóðs,
segir að hátt hlutfall óbundinna
innlána geti meðal annars gefið til
kynna að fjárfestar sjái tækifæri til
fjárfestinga til skemmri tíma og kjósi
þar af leiðandi ekki að binda innlán
sín í miklum mæli hjá bönkunum til
lengri tíma.
„Annars má almennt gera ráð
fyrir að mikil óvissa og f lökt á
markaði sé líklegt til að draga úr
áhuga fjárfesta á að binda innlán sín,
þeir kjósi frekar að hafa nægt laust fé
til reiðu þegar og ef tækifæri gefast
við slíkar aðstæður,“ bætir hann við.
Horfa til annarra kosta
Eignarhald lífeyrissjóða á ríkis-
skuldabréfum sem hlutfall af
heildarmagni, hefur lækkað úr 40
prósentum niður í 37 prósent frá
áramótum. Eign sjóða á ríkisbréfum
Vilja síður binda fé á of lágum vöxtum
Lífeyrissjóðir hafa sýnt lítinn áhuga á ríkisbréfum, óverðtryggðum bankabréfum og bundnum innlánum. Ávöxtunin ekki í sam-
ræmi við lögfest viðmið og þurfa að geta gripið tækifæri á markaði. Langtímavextir fara þangað sem lífeyrissjóðirnir vilja hafa þá.
Eignarhald lífeyrissjóða á ríkisbréfum hefur minnkað hlutfallslega frá áramótum og lækkað úr 40 prósentum í 37 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
hefur aukist um 10 milljarða á sama
tíma og útgefin bréf hafa aukist um
66 milljarða.
„Í ljósi þeirrar ávöxtunarkröfu
sem gerð er til lífeyrissjóða og þess
lágvaxtaumhverfis sem við búum
við í dag, hefur sjóðurinn horft
meira til annarra fjárfestingarkosta,“
segir Harpa, en LSR er stór eigandi
ríkis- og sértryggðra skuldabréfa.
Lífeyrissjóðir núvirða skuld-
bindingar sínar miðað við 3,5 pró-
senta vexti umfram verðbólgu, en sú
ákvörðun tók mið af útlánsvöxtum
Íbúðalánasjóðs á tíunda áratugnum.
Síðan þá hafa vextir lækkað töluvert.
Fer í hlutafé og fyrirtækjabréf
Innlán lífeyrissjóða í bankakerfinu
jukust töluvert á fyrstu mánuðum
ársins. Frá áramótum og til loka apríl
jukust innlán sjóðanna um 40 millj-
arða króna, eða úr 142 milljörðum og
upp í 182 milljarða. Eftir það komst á
jafnvægi. Staðan fór hæst í 192 millj-
arða í lok september en lækkaði svo
um 10 milljarða í október.
„Þetta gefur til kynna að lífeyris-
sjóðirnir séu að finna fjármagni
farveg í kosti sem skila hærri arð-
semi en ríkisbréf, til að mynda fyrir-
tækjaskuldabréf og hlutabréf,“ segir
Stefán Broddi. Það sé jákvætt að því
leyti að fjármagnið fari í að styðja við
atvinnufyrirtæki.
Seðlabankastjóri nefndi einnig
að hann vildi fara varlega í peninga-
prentun með veðlánaviðskiptum,
sem felst í því að fjármagna banka-
kerfið með því að taka við sér-
tryggðum bréfum frá þeim, heldur
væri „eðlilegra að lífeyrissjóðirnir
kæmu að slíkri fjármögnun“.
Lífeyrissjóðir keypt 18 prósent
af sértryggðri útgáfu Landsbankans
Mikil ásókn í óverðtryggð íbúða
lán hjá bönkunum hefur aukið
fjármögnunarþörf þeirra fyrir
óverðtryggð skuldabréf. Um
þetta var fjallað í síðustu tveimur
ritum Fjármálastöðugleika, sem
er gefið út af Seðlabankanum.
„Erfiðlega hefur gengið fyrir
bankana að auka við aðra inn
lenda markaðsfjármögnun en
sértryggð skuldabréf. Kaupendur
að sértryggðu bréfunum hafa
einkum verið Íbúðalánasjóður og
lífeyrissjóðir,“ segir í ritinu. Með
breytingu á starfsemi Íbúðalána
sjóðs er aukin óvissa um mögu
lega kaupendur að bréfunum.
„Auk þess hefur aukin ásókn í
óverðtryggð lán hjá bönkunum
aukið fjármögnunarþörf þeirra
með óverðtryggðum skuldabréf
um. Eftirspurn lífeyrissjóða hefur
þó fremur verið í verðtryggð
skuldabréf og hefur það áhrif á
fjármögnunarkjör bankanna.“
Landsbankinn staðfestir í
svari við fyrirspurn Markaðarins
að eftirspurn lífeyrissjóða hafi
fremur verið í verðtryggð skulda
bréf bankans. „Á þessu ári hafa
lífeyrissjóðir keypt um 18% af
þeim sértryggðu skuldabréfum
sem Landsbankinn hefur gefið
út.“
Ólafur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Birtu lífeyrissjóðs, brást við
ummælum seðlabankastjóra í
færslu á Facebook í síðustu viku. Þar
sagðist hann vera „hugsi yfir nær-
veru Seðlabankans og þeim grímu-
lausu eignastýringarskilaboðum til
lífeyrissjóða sem nálgast orðið brot
á 2 metra reglunni“.
Engar opinberar tölur varpa ljósi
á eignarhald lífeyrissjóða á sér-
tryggðum skuldabréfum bankanna,
sem nema alls 520 milljörðum króna,
en Ólafur gat sér þess til að sjóðirnir
ættu um 55 prósent af útgefnum, sér-
tryggðum bréfum og Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun, áður Íbúða-
lánasjóður, ætti mikið magn. „Af
þessum tölum skynja ég nú ekki
beint fjarveru lífeyrissjóða, frekar en
of mikla nærveru þeirra á markaði.
Hann er klárlega vandrataður þessi
gullni meðalvegur,“ sagði Ólafur.
Þrjár leiðir í boði
Stefán Broddi segir að þrjár leiðir séu
í boði, miðað við stöðuna á markað-
inum í dag. Langtímavextir geta
hækkað þangað til lífeyrissjóðirnir
og kannski erlendir fjárfestar sjá hag
sinn í að kaupa ríkisbréfin á ný.
„Önnur leið er að Seðlabankinn
komi inn og fjármagni halla ríkis-
sjóðs að mestu leyti á lægri ávöxt-
unarkröfu, jafnvel neikvæðri raun-
ávöxtunarkröfu,“ segir hann. Þriðja
leiðin er síðan að ríkissjóður gefi út
skuldabréf erlendis og skipti þeim
fyrir krónur í Seðlabankanum. Það
eykur krónur í umferð.
Ef krónur aukast aftur í umferð
skapast aftur svigrúm fyrir bankana
til að fjármagna skammtímaskuldir
ríkissjóðs. „Það gerðist í upphafi
krísunnar, en nú eru merki um að
þetta lausafé sé ekki lengur til staðar.
Hægt hefur á vexti peningamagns og
það dróst saman í síðasta mánuði.
Nú eru ekki lengur hæg heimatökin
fyrir ríkið að fjármagna sig stutt í
gegnum bankakerfið.“
800
700
600
500
400
300
200
100
0
✿ Eignarhald lífeyrissjóða
á ríkisbréfum
(milljarðar króna)
Lífeyrissjóðir Ríkisbréf alls
31.12.
2019
31.12.
2019
31.10.
2020
31.10.
2020
HEIMILD: LÁNAMÁL RÍKISINS
Í ljósi þeirrar
ávöxtunarkröfu
sem gerð er til lífeyrissjóða
og þess lágvaxtaumhverfis
sem við búum við í dag,
hefur sjóðurinn horft meira
til annarra fjár-
festingar-
kosta.
Harpa Jónsdóttir,
framkvæmda
stjóri LSR
2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN