Fjölrit RALA - 15.02.1995, Blaðsíða 11
Vöxtur og uppskera
9
Vöxtur og uppskera alaskalúpínu
Growth and yield ofNootka lupine
Borgþór Magnússon, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Sigurður H. Magnússon og
Snorri Baldursson
Inngangur
Þær rannsóknir sem gerðar voru hér á landi á alaskalúpínunni á árunum 1976-1979
beindust aðallega að smitun hennar og sáningu, landnámi og nýtingu til beitar (Andrés
Arnalds 1980). Við upphaf þeirra rannsókna sem hér eru kynntar þótti rík ástæða til
að beina athyglinni einnig að almennri líffræði plöntunnar, þar á meðal vaxtar- og
þroskaferli hennar. Slíkar upplýsingar um alaskalúpínuna lágu ekki fyrir en þær eru
mikilvægur grunnur varðandi alla nýtingu hennar og meðferð hér á landi. Tegundin
hefur ekki verið rannsökuð mikið í heimkynnum sínum í Alaska og Kanada og eru því
takmarkaðar upplýsingar þaðan að hafa.
Markmið þessara rannsókna var að afla þekkingar á vexti og þroska alaska-
lúpínu, bæði yfir sumarið og á æviskeiði plöntunnar. Gerðar voru uppskerumælingar í
lúpínubreiðu frá vori fram á haust, fylgst var með vexti og þroska stakra plantna og
athugað var hlutfall blaða, stöngla, blómhluta og róta í uppskeru.
Uppskera í reitum á Korpu
Aðferðir
Gamall lúpínuakur á tilraunastöðinni á Korpu við Reykjavík var valinn til
uppskerumælinga. Lúpínu var sáð þar fyrst árið 1980 í moldarblandinn malarjarðveg
sem var umbylt fyrir sáninguna (Jónatan Hermannsson, munnlegar upplýsingar).
Þarna höfðu fyrrum farið fram beitartilraunir og hafði landið því eitthvað verið ræktað
áður (Þóroddur Sveinsson, munnlegar upplýsingar). Þegar uppskerumælingamar voru
gerðar var lúpínubreiðan gamalgróin og samfelld að sjá.
Uppskerumælingar 1987. Afmarkað var samfellt tilraunasvæði með 20 reitum,
sem hver var 10 m2 (2x5 m). Endurtekningar voru 4 og var sumrinu skipt í fimm
sláttutíma, með um þriggja vikna bili: 1. júní, 22. júní, 13. júlí, 6. ágúst og 26. ágúst.
Á hverjum sláttutíma var slegin 1 m breið rönd eftir hverjum reit endilöngum með
greiðusláttuvél. Uppskerunni var safnað saman og gras og sina flokkuð frá lúpínu-
plöntunum áður en votvigt var fundin. Þurrvigt var síðan reiknuð út eftir