Fjölrit RALA - 15.02.1995, Síða 65

Fjölrit RALA - 15.02.1995, Síða 65
Efnasamsetning 63 Rót alaskalúpínu var meðal þess sem sumir frumbyggjar á Kyrrahafsströnd Kanada og Alaska nýttu af villtum plöntum til matar (Heller 1953; Turner 1973; Kuhnlein 1990). Heller (1953) getur þess að íbúar Aleutin-eyjanna hafi safnað rótum í október. Af rótunum flettu þeir hýðinu og átu þær síðan hráar eða soðnar. Voru þær sagðar aðeins beiskar á bragðið. Greint er frá að mönnum hafi orðið misdægurt af óhóflegu áti á rótum sem geti jafnvel orsakað banvænar bólgur í maga og þörmum. Turner (1973) lýsir stuttlega nýtingu frumbyggja á rótum alaskalúpínunnar sem fyrrum hafi verið glóðaðar á kolum og étnar. Getið er um að fólk hafi fundið til ölvunartilfinningar og svefnhöfgi af átinu. Kuhnlein (1990) hefur rannsakað næringargildi margra villtra plantna sem nýttar voru fyrrum af frumbyggjum í Bella Coola í Bresku-Kólumbíu, Kanada. Var rót alaskalúpínu þar á meðal. Rótum ýmissa plantna var safnað bæði að hausti og snemma vors og voru þær geymdar í gryfjum sem gerðar voru í gólf "rótakjallara". Söfnun róta lagðist að mestu af eftir 1960. Lúpínurætur voru matreiddar þannig að þær voru soðnar þar til þær voru orðnar mjúkar undir tönn. í grein Kuhnlein eru upplýsingar um mörg efni (prótein, fitu, kolvetni, trefjar, Ca, P, Na, Mg, Fe, Zn, Cu, Mn, Sr og vítamín) í lúpínurót og í hlutum margra annarra plantna sem nýttar voru til matar. Kuhlein getur ekki um að lúpínurótin skeri sig úr hvað efnasamsetningu eða næringargildi varðar. Almennt eru rætur tegundanna sem rannsakaðar voru sagðar svipaðar kartöflum að prótein-, fitu-, ösku- og orkuinnihaldi en ríkari af kalsíum. Innihald vítamína var hins vegar fremur lágt (Kuhnlein 1990). Alaskalúpína sem beitar- og fóðurplanta Eðlilegt er að kannaðir séu möguleikar á nýtingu alaskalúpínunnar sem fóður fyrir búfé. Lúpínur geta gefið prýðis fóður, þær eru mjög próteinríkar, hafa háan meltanleika og eru fremur auðugar af steinefnum. Þá gefa þær oft mikla uppskeru og sjá sér sjálfar fyrir köfnunarefni eins og aðrar belgjurtir. Við ræktun þeirra sparast því útgjöld við áburðarkaup. Vandamál geta þó fylgt fóðrun búfjár með lúpínu. Annars vegar er hátt beiskjuefnainnihald sem getur valdið lúpínueitrun (lupin toxicity) en hins vegar er lúpínuveiki (lupinosis) sem orsakast af svepp sem finnst í blöðum og stönglum plantnanna. í Evrópu og víðar hafa beiskjuefnalitlar (sætar) fóðurlúpínur verið ræktaðar til síðsumar- og haustbeitar fyrir sauðfé og einnig hefur verið verkað úr þeim vothey (Gladstones 1970; Williams 1984; Jóhann Þórsson & Ólafur Guðmundsson 1993). Ólafur Guðmundsson & Sveinn Runólfsson (1988) gerðu tilraun hér á landi með að beita lömbum á sæta fóðurlúpínu (Lupinus angustifolius) að hausti og þrifust lömbin mjög vel af henni. Vandkvæði eru á ræktun einærra fóðurlúpína við íslenskar aðstæður. Alaskalúpínan þrífst hins vegar vel hér á landi og gefur af sér viðlíka Uppskeru og bestu túngrös þar sem skilyrði eru góð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fjölrit RALA

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.