Fjölrit RALA - 15.02.1995, Page 62

Fjölrit RALA - 15.02.1995, Page 62
60 4. kafli sellulósi, hemisellulósi og lignín sem hryggdýr eiga í erfiðleikum með að melta, þar sem þau mynda ekki ensím til þess. Jórturdýr geta þó nýtt sér sellulósa og hemi- sellulósa í fóðri að tilstuðlan örvera í vömbinni sem brjóta þessi efni niður (Van Soest 1967). Trénisinnihald plantna ræður miklu um meltanleika þeirra. Trénisþættir eru að jafnaði í minni mæli í belgjurtum en grösum og meltanleiki belgjurta helst hærri er líður á sumarið (Ólafur Guðmundsson 1986). Hlutfall trénisþátta eykst yfirleitt í plöntum er líður á vaxtartímann og kom það fram í mælingunum á alaskalúpínunni þegar litið er á sprotana óskipta (15. mynd). Mikill munur kom hins vegar fram milli plöntuhluta einkanlega fyrir NDF- og ADF-gildin sem héldust mjög lág í laufblöðum lúpínunnar yfir allan vaxtartímann en hækkuðu hins vegar mjög í stönglum og blómhlutum, sem innihalda miklu meira af þessum efnum en blöðin. Fáar sambærilegar mælingar á trénisþáttum hafa verið gerðar á lúpínum. í Russel-lúpínu hefur verið mælt NDF á mismunandi tímum sumars (Kitessa 1992). Reyndist inni- haldið vera lágt og svolítið minna en hér kemur fram fyrir alaskalúpínuna. Svipaður munur kom fram í NDF-innihaldi blaða og stöngla í Russel-lúpínunni og alaskalúpínunni. Beiskjuefni Beiskjuefni (alkalóíðar) í lúpínum teljast til svokallaðra kínólín (quinolizidine) og píperdín (piperidine) beiskjuefna (Wink 1983; Majak & Ogilvie 1992). Talið er að þau séu mynduð til varnar gegn beit. Þessi efni eru öll eitruð en mismikið þó. Dýrum getur því orðið meint af lúpínuáti og eru áhrifin allt frá því að vera mjög væg og án eftirkasta til þess að leiða til dauða (Jóhann Þórsson og Ólafur Guðmundsson 1993). Talið er að lúpanín og spartein séu helstu eiturefnin í lúpínum, en þau teljast bæði til kínólín beiskjuefnanna (Davies & Stout, 1986). Vitað er að spartein og lúpanín hafa eiginleika sem trufla starfsemi taugaboðefnisins acetilkólins (Majak & Ogilvie 1992). í efnamælingunum á Rala kom fram að lúpínan og spartein eru algengustu beiskjuefnin í alaskalúpínunni (23. og 24. mynd). Styrkur þessara og annarra beiskjuefna í lúpínum ræður því hversu eitraðar og varasamar þær eru sem fæða fyrir dýr eða jafnvel menn. En hvað segja niðurstöðurnar um alaskalúpínuna, hvert er beiskjuefnainnihald hennar miðað við aðrar villtar eða ræktaðar lúpínutegundir? Eins og fram hefur komið bar ekki vel saman þeim mælingum sem gerðar voru á magni beiskjuefna í alaskalúpínunni í þessari rannsókn. Mælingar á sprotum með gasgreiningaraðferð á Rala gáfu gildi á bilinu 2,3-69,3 mg/g, samkvæmt NIR- aðferð frá "Poisonous Plant Research Laboratory" í Utah 1,7-31,6 mg/g og samkvæmt gasgreiningaraðferð á sama stað 1,9-9,4 mg/g. Áreiðanlegastar af þessum mælingum teljum við þær síðasttöldu eins og getið var um í aðferðalýsingu hér að ofan. Sterkt samband þeirra niðurstaðna og NIR-mælinga á sömu sýnum gefa ástæðu til að ætla að styrkur beiskjuefna í alaskalúpínunni sé um helmingi lægri en niðurstöður NIR-

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.