Fjölrit RALA - 15.09.2001, Síða 64
Korn 2000
56
Kornræktartækni (150-9391)
Árið 2000 var verkefnið á öðru ári. Árin 1999 og 2000 voru könnuð áhrif þess að fella áburð
og fræ niður með sömu vélinni í mismunandi dýpt hvort um sig. Gerðar voru 5 tilraunir í
þessu skyni árið 1999 og 6 árið 2000. Síðara árið var ein tilraun sunnanlands, þijár
vestanlands og tvær norðanlands. Þessum þætti verkefnisins er þar með lokið. Niðurstöður
ársins 2000 birtast hér.
Tilraunastaður Skamm- stöfun Land Áburður tegund kg N/ha Sáð Upp- skorið
Korpu í Mosfellsveit Ko Mýri Græðir 5 60 2.5. 20.9.
Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum Þo Sandmýri Græðir 5 75 26.4. 6.9.
Ósi á Akranesi Os Sandur Græðir 5 90 11.5. 23.9.
Hvanneyri í Borgarfirði Hv Mýri Græðir 1A 60 17.5. 25.9.
Vindheimum í Skagafirði Vi Sandur Græðir 5 90 3.5. 5.9.
Miðgerði í Eyjafirði Mi Mólendi Græðir 5 75 4.5. 31.8.
Sáð var með sáðvél af gerðinni Váderstad Rapid 30C. Hún fellir sáðkom og áburð niður í
einni ferð úr aðskildum stútum. Áburðurinn lendir þannig í röðum milli sáðrandanna.
Sáðdýpt var fems konar og áburðardýpt þrenns konar, alls 4x3=12 liðir. Tilraunin á Korpu
var þó minni en þetta, eða 3x2=6 liðir. Sáð var í reiti sem vom 10 m að lengd og 3,6 m á
breidd. Uppskerureitur var 1,5 m á breidd. Komyrki vom Arve, sexraða, og Gunilla, tvíraða.
Sáð var sem svaraði 200 kg sáðkoms á hektara. Ekki var valtað eftir sáningu.
Árið 1999 var áætlað að sáðdýptin hefði verið 1; 2,5; 4 og 5,5 sm. í ár var sáð ívið grynnra.
Mæld dýpt var 0,25; 1,5; 2,75 og 4,0 sm. Áburður var líka settur grynnra en árið áður. Árið
1999 var hann felldur niður í 1, 5 og 9 sm dýpt en í 1,4 og 7 sm í ár.
Á öllum stöðunum nema Þorvaldseyri var mónóammoníumfosfat (11%N-23%P) fellt niður í
sömu rásir og sáðkomið í helmingi tilraunarinnar. Dregið var úr öðrum áburði þessu til
samræmis svo að nituráburður varð jafnmikill á alla liðu.
Samreitir vom tveir nema þrír á Þorvaldseyri. Þar sem tilraunimar vom í fullri stærð vom
reitir alls 96 2 yrki x 4 liðir sáðdýptar x 3 liðir áburðardýptar x 2 liðir mónóammoníum-fosfat
x 2 samreitir , á Þorvaldseyri 72 og 48 á Korpu. Tilraunum var svo fyrir komið að sáð var í
12 reita lengjur og í hverri tilraun vom 8 slíkar lengjur hlið við hlið. Liðimir með
mónóammoníumfosfati vom í 4 heilum lengjum. Oft var breytileiki í landi frá tilraunar-
jöðmm og inn úr. Þess vegna reyndist ekki gott að bera saman heilar raðir. Fyrirvara verður
því að hafa á niðurstöðu úr mónóammoníumfosfatsliðunum. Breytileiki í landi var líka sums
staðar fullmikill fyrir tilraunir svo stórar að flatarmáli.
Niðurstöður birtast hér í tveimur töflum. í fyrri töflunni em sýnd áhrif sáðdýptar og
áburðardýptar og þá tekið meðaltal liða með og án mónóammoníumfosfats. I síðari töflunni
em sýnd áhrif niðurfellds mónóammoníumfosfats. I fyrri töflunni teljast samreitir því 4, nema
3 á Þorvaldseyri.
Birtar era tölur um uppskem og þroska. Uppskera er mæld í hkg hreins koms með 100%
þurrefni á hektara. Þroskaeinkunn er summa þriggja mælinga, þúsundkomaþunga í
grömmum, rúmþyngdar í g/100 ml og þurrefnishlut koms í % við skurð.