Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 14

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 14
14 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 R A N N S Ó K N Tíðni þessara greininga hefur tekið tölfræðilega marktækum breytingum á tímabilinu. Kvíða- og þunglyndisgreiningarnar fara oft saman og ef samanlögð tíðni þeirra er skoðuð (mynd 1) er breytingin óverulegri, þó hún sé tölfræðilega marktæk. Ekki fund- ust faraldsfræðilegar rannsóknir á tíðni kvíða- og þunglyndis- greininga á hjúkrunarheimilum, en fjölþjóðleg evrópsk rannsókn bendir til þess að rúmur fjórðungur (27,8%) aldraðra (+65) mæti greiningarviðmiðunum þunglyndis.1 Búast má við að geðheilsa eldri Íslendinga sé ekki stórlega verri en í öðrum Evrópulönd- um. Því má draga þá ályktun að há tíðni geðraskana á íslenskum hjúkrunarheimilum stafi annaðhvort af versnandi geðheilsu við flutning á öldrunarheimili og þeirri skerðingu lífsgæða sem er að- dragandi þess, eða af ofgreiningu geðraskana, eða hvoru tveggja. Fáar faraldsfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar á geðklofa meðal aldraðra, en nokkrar á tíðni geðrofseinkenna. Samkvæmt safngreiningu frá 201311 var tíðni geðrofseinkenna meðal aldraðra (+50) utan stofnana 1,7%, en allt að 4,6% á hjúkrunarheimilum vegna geðrofseinkenna sem fylgja heilabilun. Ef geðrofseinkenni fólks með heilabilun eru greind sem geðklofi af lækni íbúans, sem er umdeilanlegt, er tíðni geðklofagreininga á íslenskum hjúkr- unarheimilum í samræmi við þessar niðurstöður, en hún sveifl- aðist á milli 1,8% og 4,1% – náði hámarki 2018. Tíðni geðhvarfa var að meðaltali 4,4% á tímabilinu og tók ekki tölfræðilega marktæk- um breytingum, en samkvæmt nýlegri safngreiningu, sem náði til Evrópubúa á aldrinum 65 til 84 utan stofnana, var hún 2,5%.12 Á tímabilinu fékk tæpur fimmtungur íbúanna geðlyf að staðaldri án þess að fyrir lægi geðsjúkdómagreining og 8,6% var ekki ávísað geðlyfjum þrátt fyrir að hafa greiningu. Jafnframt fengu að meðaltali 17,3% kvíða- og/eða geðdeyfðarlyf án þess að fyrir lægi kvíða- eða þunglyndisgreining. Þessi hlutföll tóku töl- fræðilega marktækum breytingum á tímabilinu, en voru nær þau sömu í upphafi og við lok þess. Þetta bendir til að greiningar geð- raskana séu ónákvæmar, hvort sem þær eru ofgreindar eða ekki. Í þessu samhengi ber einnig að hafa í huga að rannsóknargögnin veita ekki upplýsingar um greiningarskilmerkin að baki geðsjúk- dómagreiningunum. Fræðafólk á sviði öldrunargeðlækninga hef- ur bent á að vegna hugrænna breytinga sem fylgja öldrun dugi hin hefðbundnu greiningarkerfi, svo sem Greiningarhandbók bandarísku geðlæknasamtakanna (DSM) og stöðluð greiningar- viðtöl Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (CIDI), ekki til að greina af nákvæmni geðraskanir á meðal aldraðra og hafa aðlagað CIDI að þörfum þeirra.13 Ónákvæmar greiningar hafa ekki einar og sér bein áhrif á heilsufar, en geta komið í veg fyrir viðeigandi meðferð. Öðru gegnir um geðlyf og áhyggjur fara vaxandi af óþarfri og skaðlegri notkun þeirra meðal aldraðra.6 Að meðaltali á tímabilinu tóku 69,6% íbúanna einhvers konar geðlyf og neyslan jókst úr 66,3% í 72,5%. Þá eru hvorki meðtalin svefnlyf né heldur þegar geðlyfjum var ávísað sjaldnar en alla daga vikunnar. Heldur dró úr neyslu róandi lyfja og kvíðalyfja en notkun þunglyndislyfja jókst töluvert. Hlutfall þeirra sem tóku lyf úr tveimur geðlyfjaflokkum breyttist nær ekkert og það sama á við um notkun geðrofslyfja. Samkvæmt kerfisbundinni samantekt á geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum í 12 Evrópulöndum,5 er notkun geðrofslyf- ja á íslenskum hjúkrunar heimilum svipuð og annars staðar í Evrópu. Aftur á móti er notkun þunglyndislyfja töluvert meiri á Íslandi, eða 52,3% samanborið við 40% í Evrópulöndunum 12.5 Geðlyfja notkunin var mismikil eftir löndum. Notkun geðrofslyfja er minnst á norskum og frönskum hjúkrunarheimilum (25%), en mest á austurrískum heimilum (45%). Notkun þunglyndislyfja var minnst á Ítalíu og í Þýskalandi (21%) en mest í Belgíu (48%), sem er minna en hér á landi (52,3%). Munurinn á geðlyfjanotkuninni var enn meiri á milli einstakra hjúkrunarheimila en á milli landanna. Þannig var lægst tíðni notkunar geðrofslyfja 12%, en sú hæsta 59% og tíðni notkunar þunglyndislyfja var frá 19% til 68%. Höfundar telja að hugsanlegra skýringa á þessum mun sé ekki að leita í mis- munandi samsetningu heimilisfólks heldur mismunandi nálgun við umönnun, fjárhagslegum þáttum og mismunandi afstöðu til ávísunar geðlyfja. Samkvæmt gögnum sem aflað var með RAI- mælitækinu notuðu 14,4% íbúa bandarískra hjúkrunarheimila geðrofslyf og 19,9% róandi lyf og kvíðalyf.14 Þetta er mun minna en á íslenskum hjúkrunarheimilum. Notkun geðlyfja á íslenskum hjúkrunarheimilum er í hærri kantinum á heimsvísu og jókst á tímabilinu sem rannsóknin náði til. Þetta þarf að laga því óvíst er um árangur af geðlyfjanotkun aldraðra og aukaverkanir geta verið þeim skaðlegar. Eins eru sterkar vísbendingar um að þunglyndislyf vinni ekki gegn þung- lyndiseinkennum fólks með heilabilun,15 en 70% íbúa íslenskra hjúkrunarheimila hafa heilabilun á einhverju stigi.10 Framan- greindar rannsóknir náðu til almenns þýðis, en fáar áreiðanlegar rannsóknir hafa verið gerðar á árangri þunglyndislyfja meðal íbúa á hjúkrunarheimilum. Helstu skaðlegu áhrif þunglyndis- lyfja á aldraða eru föll, beinbrot og dauðsföll, en SNRI-lyf eru lík- legri til að valda slíkum áhrifum en SSRI-lyf.16 Gögnin sem unnið var með í þessari rannsókn veita ekki upplýsingar um hverrar tegundar þunglyndislyfin voru sem ávísað var til íbúa íslensku hjúkrunarheimilanna. Erfitt er að greina orsakasamband á milli þunglyndislyfja og minnkandi hugrænnar færni og þróunar heilabilunar því þunglyndið sem lyfjunum er ætlað að vinna gegn getur einnig verið orsakaþáttur. Þó eru vísbendingar um að þung- lyndislyf auki þá hættu í stað þess að draga úr henni.17 Mismunandi lyfjaflokkar tilheyra yfirflokknum róandi lyf og kvíðalyf, en rannsóknargögnin veita ekki upplýsingar um hvaða róandi lyf og kvíðalyf eru mest notuð á íslenskum hjúkrunarheim- ilum. Ef marka má evrópskar rannsóknir18 má búast við að töluvert sé notað af Benzodiazepine-lyfjum. Slíkum lyfjum er oftast ávísað við kvíða og svefnleysi og rannsóknir sýna jákvæða virkni,19 en flestar rannsóknir hafa verið gerðar á fólki yngra en 65 ára. Einnig skortir rannsóknir á langtímaáhrifum Benzodiazepine lyfja, en vegna þolmyndunar, hættu á ávanabindingu og alvarlegum auka- verkunum er sterklega mælt gegn langtímanotkun aldraðra á þess- um lyfjum.20 Bæði Benzodiazepine-lyf og róandi lyf sem ekki inni- halda Benzodiazepine (Z-lyf) auka hættu á föllum og beinbrotum meðal aldraðra og draga úr vitrænni færni6 og vísbendingar er um að neysla þeirra geti verið einn af áhættuþáttum heilabilunar.20 Að meðaltali tóku 26,0% íbúa hjúkrunarheimilanna geðrofslyf, en hlutfall þeirra sem tók slík lyf án þess að mæta skilyrðunum sem sett eru í gæðavísinum Algengi notkunar sterkra geðrofslyfja í öðrum tilfellum en mælt er með var að meðaltali 22,3%. Þetta þýðir að eingöngu 14,2% þeirra sem tóku geðrofslyf mættu skilyrðunum, sem eru að hafa geðklofagreiningu eða ofskynjanir. Samkvæmt evrópskum rannsóknum gæti skýringanna verið að leita í þeirri tilhneigingu að ávísa geðrofslyfjum á íbúa hjúkrunarheimila sem sýna óróleika og hegðunarvanda af völdum heilabilunar.21 Íslensk rannsókn frá 199922 bendir til að það sama eigi sér stað á íslensk- um hjúkrunarheimilum, en hún sýndi að 62% íbúa á heilabilun- ardeildum fengu geðrofslyf, samanborið við 15% íbúa í þjón- usturými. Vísbendingar eru um að sumar gerðir geðrofslyfja geti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.