Læknablaðið - jan 2021, Qupperneq 19
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 19
R A N N S Ó K N
Spurningar í samanburðarrannsókninni sem lögð var fyrir
báða hópana má sjá í töflu I. Eftirfarandi texti birtist svarendum
á undan spurningunum: „Næst eru spurningar sem beinast að
óvæntum atvikum sem geta átt sér stað þegar heilbrigðisþjónusta
er veitt. Í Lögum um landlækni og lýðheilsu númer 41 frá árinu
2007, segir meðal annars í 9. grein: Með óvæntu atviki er átt við
óhappatilvik, mistök, vanrækslu eða önnur atvik sem valdið hafa
sjúklingi tjóni eða hefðu getað valdið sjúklingi tjóni.“
Niðurstöður
Úr hópi hjúkrunarfræðinga svöruðu 1958 könnuninni og var
svarhlutfall 67,9%. Svarendur úr hópi Þjóðgáttar voru 771 og voru
gögnin vigtuð með tilliti til aldurs, kyns og búsetu. Við vigtun
gagna birtist misræmi í fjöldatölum og hlutföllum sem orsakast
af námundun.
Meginniðurstöður úr könnuninni sýna að fleiri úr hópi Þjóð-
gáttar (26%) en hjúkrunarfræðinga (9%) eru mjög eða frekar sam-
mála því að ákæra heilbrigðisstarfsmann sem veldur alvarlegum
skaða eða andláti vegna mannlegra mistaka (p<0,00001). Aftur á
móti voru fleiri hjúkrunarfræðingar (64%) en svarendur Þjóðgátt-
ar (43%) mjög eða frekar ósammála að ákæra ætti vegna alvar-
legs skaða eða andláts af völdum mannlegra mistaka (p<0,00001).
Munurinn er marktækur í báðum tilfellum (mynd 1). Þá má sjá að
um 54% úr hópi Þjóðgáttar voru mjög eða frekar ósammála því að
ákæra fyrir alvarlegan skaða eða andlát af völdum slysni, á móti
um 72% hjúkrunarfræðinga (mynd 2) (p<0,00001).
Við nánari skoðun á því hvernig svarendur úr hópi Þjóðgáttar
Mynd 1. Það á að ákæra heilbrigðisstarfsmann
sem veldur alvarlegum skaða eða andláti vegna
mannlegra mistaka. (Almenningur: meðaltal:
2,73; 95% vikmörk: +/-0,09; staðalfrávik: 1,21.
Hjúkrunarfræðingar: meðaltal: 2,12; 95% vik-
mörk: +/-0,05; staðalfrávik:1,04).
Mynd 2. Það á að ákæra heilbrigðisstarfsmann
sem veldur alvarlegum skaða eða andláti af slysni.
(Almenningur: meðaltal: 2,42; 95% vikmörk:
+/-0,08; staðalfrávik:1,10. Hjúkrunarfræðingar:
meðaltal: 1,95; 95% vikmörk: +/-0,04, staðalfrá-
vik: 0,95).
Tafla I. Það á að ákæra heilbrigðisstarfsmann
sem veldur alvarlegum skaða eða andláti:
vegna mannlegra
mistaka í starfi af slysni
vegna
vanrækslu af ásetningi
fjöldi % fjöldi % fjöldi % fjöldi %
Hjúkrunarfræðingar Mjög sammála 36 2,0 22 1,3 459 26,2 1597 90,2
Frekar sammála 123 6,9 73 4,2 762 43,5 112 6,3
Hvorki sammála né ósammála 485 27,3 397 22,7 357 20,4 33 1,9
Frekar ósammála 505 28,5 553 31,7 106 6,1 11 0,6
Mjög ósammála 625 35,2 702 40,2 68 3,9 18 1
Almenningur Mjög sammála 70 9,2 37 4,9 298 39,4 675 89,7
Frekar sammála 129 16,8 78 10,4 281 37,2 42 5,6
Hvorki sammála né ósammála 235 30,8 234 31 123 16,3 27 3,6
Frekar ósammála 183 23,9 222 29,5 35 4,7 3 0,4
Mjög ósammála 147 19,3 184 24,3 19 2,5 5 0,7