Læknablaðið - Jan 2021, Page 25
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 25
(thoracic endometriosis syndrome, TES).2 Greiningin getur verið erfið,
bæði klínískt og með myndgreiningu.2,3
Legslíman berst líklega oftast í lungnavefinn og inn undir
fleiðru út frá endómetríósu í grindarholi kvenna. Um helmingur
kvenna með lungnaendómetríósu hefur líka fengið sjúkdóminn í
kviðarholið, þegar loftbrjóstið greinist,2 en oft vantar að leitað sé
að sjúkdómnum með nákvæmum hætti í kviðarholinu um leið og
orsaka loftbrjóstsins er leitað. Legslímu-líku frumurnar eru taldar
berast með kviðarholsvökva upp hægri hlið kviðarholsins og það-
an á þindina. Þar myndast vefjaskemmdir sem ná gegnum þindina
og upp í fleiðru og lunga. Aðrir möguleikar eru að frumurnar séu
blóðbornar, fluttar með sogæðakerfinu eða tilkomnar út frá um-
breytingu (metaplasia) á stofnfrumum í lungnavefnum.2,3,7
Hér er lýst nýlegu tilfelli á Landspítala og rætt hvernig standa
mætti betur að greiningu.
Tilfelli
Á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi leitaði 39 ára gömul kona
með fyrri sögu um endómetríósu í grindarholi. Hún kom vegna
verkja við hægra herðablað, andþyngsla og hjartsláttarónota. Hún
hafði verið með svipuð einkenni síðastliðnar þrjár vikur og leitaði
tvisvar á heilsugæsluna á þeim tíma. Fékk þar greininguna bráð
skúta- og berkjubólga og hafði sýklalyfjameðferð verið gefin við
því í bæði skiptin.
Röntgenmynd af lungum sýndi 2 cm loftbrjóst efst í hægra
fleiðruholið. Hún var í eftirliti með síritun yfir nótt og útskrifaðist
heim með endurkomutíma á göngudeild brjóstholsskurðlækninga.
Röntgenmynd í endurkomu sýndi að loftbrjóstið var nær horfið og
var henni sagt að hún gæti farið í fyrirhugaða flugferð erlendis
eftir tvær vikur vegna starfa sinna við innkaup sem fólu í sér flug
annan hvern mánuð.
Konan flaug til Danmerkur og daginn eftir komu fékk hún þar
aftur álíka einkenni. Hún greindist þá með 5,5 cm loftbrjóst við
hægra lunga. Brjóstholskeri (dren) var settur og hún var í tvo daga
á spítala. Í viðtali á göngudeild lungnalækninga fáum dögum eftir
heimkomu lýsti hún ennþá óþægindum í brjóstkassa, svitaköstum
og þrengslatilfinningu við öndun. Hún hafði lést vegna lystarleys-
is sem hún tengdi við hamlandi kvíða í kjölfar veikinda sinna og
hafði áhyggjur af framhaldinu. Tölvusneiðmynd sýndi eðlilega
lungnamynd fyrir utan litla hástæðu á hægri hluta þindar.
Rúmum mánuði seinna leitaði hún aftur á bráðamóttöku vegna
skyndilegs takverks, andþyngsla og mæði. Röntgenmynd sýndi
nú 17 mm loftbrjóst við hægra lunga. Við þetta þriðja loftbrjóst
með stuttu millibili nefndi hún sjálf við bráðalækni að loftbrjóstið
hafi í hvert skipti myndast þegar hún var á öðrum degi tíðablæð-
inga. Konan hafði sjálf leitað á netinu og grunaði að hún væri með
endómetríósutengt lungnavandamál. Henni var þá vísað á göngu-
deild brjóstholsskurðlækna og þar var ákveðið að spegla brjóst-
holið daginn eftir.
Í aðgerðinni sáust dreifðar hvítar skellur í lungnatoppi, í efra
blaði hægra lunga (lobus superior) og á þind. Ekki sást neinn blæð-
ingarstaður, en brúnar litabreytingar voru á aftari kanti neðra
lungnablaðs sem líktust endómetríósublettum sem eru einkenni
sjúkdómsins í grindarholi (mynd 1). Tekin voru tvö sýni í að-
gerðinni úr hvítu og brúnu blettunum og send til vefjagreiningar.
Gerð var fleiðruerting í lok aðgerðar en þá er sprautað efnum í
Mynd 1. A. Örvar benda á brúnleita endómetríósubletti á yfirborði hægra lunga.
B. Örvar benda á bláleita endómetríósu undir fleiðru með nýæðamyndun.
C. Örvar benda á hvítt örvefssvæði eftir endómetríósu á hægri þind.
Myndir/Gunnar Mýrdal
A.
B.
C.
S J Ú K R A T I L F E L L I