Læknablaðið - Jan 2021, Page 29
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 29
F R É T T I R
„Rannsóknir benda til þess að ef einstak-
lingur er lágur í D-vítamíni aukist líkur
á öndunarfærasýkingum, sem er hægt
að fækka með því að gefa reglulega
D-vítamín,“ segir Hannes Hrafnkelsson,
heimilislæknir á Seltjarnarnesi.
„Nýleg rannsókn í Nature sýnir að
fólk sem lagðist inn á sjúkrahús vegna
COVID-19 og hafði lágt D-vítamín-gildi
fór verr út úr veikindum sínum en það
sem mældist með eðlilegt D-vítamín,“
segir hann og hvetur til árvekni og inn-
töku vítamínsins, sérstaklega nú í faraldr-
inum þegar margir séu enn meira inni
við en áður. Sólarljós er helsta uppspretta
D-vítamíns að sumri til.
Rætt verður um mikilvægi D-vítamíns
á Læknadögum 21. janúar. Hannes opnar
málþingið. „Það er löngu komið í ljós að
vítamínið er mjög mikilvægt en það þarf
að minna á það,“ segir hann og nefnir
þekktar afleiðingar D-vítamínskorts eins
og beinkröm og beinmeyru. Nú sé vitað
að D-vítamín hefur áhrif á margvíslega
starfsemi líkamans.
Meiri líkur á
öndunarfærasýkingum
ef D-vítamín skortir
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Hannes Hrafnkelsson heimilislæknir bendir á að fólk með nægt
D-vítamín standi betur í COVID
Hann vísar í fræðigrein sem birtist í
Læknablaðinu í maí á þessu ári og Berg-
lind Gunnarsdóttir heimilislæknir leiddi,
sem sýnir að þéttni D-vítamíns í blóði
hjá meirihluta barna og ungmenna hér á
landi, eða um 60% þeirra, sé undir ráð-
lögðum gildum Embættis landlæknis.
„Í endurteknum mælingum voru 40%
krakka undir því sem landlæknir ráðlegg-
ur. Bara 13% voru með endurtekið gildi
sem landlæknir metur nægjanlegt,“ segir
hann.
Rannsóknin var gerð á sömu krökkum
aftur með nokkurra ára millibili og segir
Hannes ljóst að þegar ungbarnaeftirliti
sleppir hætti margir foreldrar að gefa
krökkunum D-vítamín. „Við sáum að
mjög lítill hluti 7 ára krakka var að taka
lýsi eða D-vítamín.“
Hann hvetur til átaks í öllum aldurs-
hópum og þá sérstaklega hjá þeim í
áhættuhópi eins og gert er í fræðigrein-
inni í Nature. Ekki hafi skort á umræðu
um mikilvægi þess, sem þó virðist litlu
skila. „Við foreldrarnir berum þessa
ábyrgð,“ segir hann. Embætti landlæknis
mælir með að hver taki um 800 einingar
daglega og tekur Hannes undir þær
ábendingar. Ekki hafi þó verið hægt að
sýna fram á skaðleg áhrif D-vítamíns þótt
fólk taki allt að 4000 einingum á dag.
Nefnir hann að einstaklingar með skert
frásog, eins og til dæmis þeir sem hafi
undirgengist aðgerðir vegna offitu, gætu
þurft stærri skammta en þá sem Embætti
landlæknis ráðleggur.
„Hópurinn fer stækkandi,“ segir hann.
„Þeir sem hafa látið taka hluta þarmanna
eru sumir með þann fylgikvilla að frásoga
ekki vítamínin eins vel og áður. Þeir geta
því þurft meira.“
Hannes Hrafnkelsson heimilislæknir hvetur til inntöku
D-vítamíns og bendir á að það hjálpi þeim sem veikist af
COVID-19. Mynd/gag
„Sveigjanleikinn verður í fyrirrúmi.
Langar vaktir eða búseta utan höfuð-
borgarsvæðisins þurfa ekki að hindra
þátttöku á Læknadögum, allir geta notið
dagskrárinnar,“ segir Margrét Aðalsteins-
dóttir, starfsmaður Fræðslustofnunar
lækna og Læknafélagsins. Hún heldur
utan um Læknadaga í ár sem fyrri ár.
„Já, það er eins með Læknadaga og aðrar
ráðstefnur um þessar mundir. Rafrænir,“
segir hún. Ráðstefnunni verður streymt
frá Hörpu dagana 18. til 22. janúar. Gæðin
verða því mikil. Sérstök heimasíða heldur
Læknar geta notið Læknadaga
í heilan mánuð
utan um dagskrána og sér Advania um
hana en tæknimenn Hörpu sjá um út-
sendinguna.
„Ekkert Teams, engir tækniörðugleik-
ar,“ lofar Margrét. „Hægt verður að horfa
á málþingin í beinni en einnig nálgast þau
í mánuð eftir útsendinguna. Enginn þarf
því að missa af málþingunum þótt fleiri en
eitt séu í gangi á hverjum tíma.“
Málþingin eru mæld í tugum, eða yfir
30 auk hádegisfyrirlestra. Vel yfir 130
manns taka þátt í umræðum og halda fyr-
irlestra. Aðgangseyrir er 30.000 krónur.
Fyrsta læknaþingið sem Margrét Aðalsteinsdóttir hafði
yfirumsjón með var þriggja daga endurmenntunarþing
lækna haldið á Hótel Loftleiðum árið 1994. Á Læknadög-
um 2021 er Margrét enn skipperinn í brúnni og með alla
(rafmagns-)þræði í hendi sér. Mynd/gag