Læknablaðið - jan. 2021, Síða 31
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 31
Læknadagar 2021 gleðidagar
Læknadagar 2021 verða með nýju sniði
þetta árið í samræmi við breyttar aðstæð-
ur og samkomutakmarkanir. Ekki þarf
að fjölyrða um mikilvægi símenntunar
lækna, sem hefur legið í láginni allt árið
sem var að líða. Vegleg fræðsludagskrá
verður í boði eins og sjá má annars staðar
í blaðinu. Læknadagar eru ekki hagnaðar-
drifinn viðburður og til að hægt sé að
bjóða upp á jafn metnaðarfullan viðburð
þarf að kosta ýmsu til. Aðeins er hægt
að halda slíkri fræðsludagskrá uppi með
sameiginlegu átaki allra félagsmanna.
Þátttökugjöldum nú eins og áður er stillt í
hóf til að standa undir kostnaði við upp-
setningu og útsendingu dagskrárinnar.
Allir sem vilja fylgjast með Læknadögum
verða að vera með skráningu í sínu nafni.
Nú geta læknar nálgast fyrirlestrana og
annað efni í mánuð, sem skapar sveigjan-
leika fyrir þá og vinnustaðina. Úrvalið
er fjölbreytt og með þessu fyrirkomulagi
þarf enginn að missa af áhugaverðum
málþingum. Auk fjölbreyttrar fræðslu- og
símenntunardagskrár verða félagslega
hlutanum einnig gerð skil á innri síðu ráð-
stefnunnar með sýningum á ýmsu gleði-
efni úr fórum lækna.
Kjaramál – skref í áttina
Þann 7. desember síðastliðinn var skrifað
undir nýtt samkomulag um breytingar
og framlengingu á kjarasamningi LÍ og
ríkisins eftir 22 mánaða samningaþóf.
Samkomulagið felur fyrst og fremst í sér
breytingar á grunnlaunum og að stigið var
skref til samræmingar við kjarasamning
Skurðlæknafélags Íslands ásamt breyting-
um á orlofskaflanum sem fela meðal
annars í sér lengingu orlofs hjá yngri
læknum í 30 daga. Á móti koma ákvæði
um breytingar á frestun og fyrningu or-
lofs. Helsti ávinningur samkomulagsins
var að sérstaklega var stigið skref hvað
varðar launasetningu sérnámslækna og er
vonast til að það styrki uppbyggingu og
áhuga á framhaldsnámi á Íslandi og bæti
hag þeirra lækna. Er það líka í samræmi
við stefnu „lífskjarasamkomulagsins“ um
áherslu á lægri launaflokkana. Ekki náðist
samkomulag um styttingu vinnuvikunn-
ar né ýmis ákvæði sem þarf að laga fyrir
ákveðna hópa fremur en heildina. Það
skal ekkert dregið úr því að margt þarf að
leiðrétta sem ekki hefur náðst fram í fyrri
samningum. Grunnlaunahækkun skilar
sér til allra og hefur áhrif til hækkunar
annarra launaliða samningsins. Áhersla
á grunnlaunahækkun var í samræmi við
niðurstöður skoðanakönnunar LÍ á meðal
félagsmanna en 80% settu það í fyrsta sæti
sem forgangsatriði í kjaramálum. Næst
komu aðgerðir til þess að draga úr álagi,
47%, stytting vinnuvikunnar, 37%, hærra
vaktakaup, 30%, og endurskoðun frítöku-
réttar, 23%. Bókanir sem fylgja samn-
ingnum eru 14 og taka til ýmissa mála.
Sumar sem varða alla lækna, svo sem um
veikinda- og slysarétt, og aðrar sem lúta
að hagsmunum ákveðinna hópa. Má þar
nefna læknisþjónustu og mönnun lækna í
dreifbýli, skoðun á framkvæmd ákvæðis
3.2.4 um helgunarálag, sem fjallað er um í
lögfræðipistli blaðsins, og um fræðslumál
lækna og skráningu símenntunar, sem
aðalfundur LÍ hefur lagt áherslu á í álykt-
un sinni. Lengi vel var tekist á um þessi
atriði í samningaviðræðunum en að lokum
fallist á að setja bókanir sem kveða á um
sameiginlega vinnuhópa sem skoða málin.
Til að styðja lækna sem taka þátt í þessum
vinnuhópum til undirbúnings hefur verið
ráðinn verkefnastjóri og er það nýjung í
starfsemi og eftirfylgni kjarasamninga LÍ.
Kandídatsárið – tími á endurskoðun
Hafin er endurskoðun á reglugerð um
menntun, réttindi og skyldur lækna og
skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi
og sérfræðileyfi. Mikilvægt er að skilyrð-
um um veitingu almenns lækningaleyfis
sé komið í sama farveg og á Norðurlönd-
um. Þar hefur verið afnumin krafa um
viðbótarstarfsnám að afloknu háskólaprófi
í læknisfræði til að hljóta almennt lækn-
ingaleyfi. Þetta misræmi er nú þegar farið
að valda þeim sem fara í framhaldsnám
vandræðum. Félag læknanema hefur
vakið athygli heilbrigðis- og háskólayfir-
valda á þessu misræmi og kallað eftir við-
brögðum. Eyða verður þeirri óvissu sem
mismunandi reglur milli landanna geta
valdið. Taka ber undir áhyggjur Félags
læknanema um ójafnræði sem þetta getur
skapað fyrir þá sem útskrifast hérlendis
og hyggja á framhaldsnám erlendis en líka
fyrir þá sem ljúka grunnnámi erlendis
með almennu lækningaleyfi og flytjast
heim. Hyggilegast sýnist að með embætt-
isprófi frá læknadeild HÍ hljóti nemendur
jafnframt almennt lækningaleyfi í stað
tímabundins lækningaleyfis að fyrirmynd
til dæmis Noregs og Svíþjóðar. Fyrsta ár
eftir útskrift sé hluti af framhaldsnámi eða
undirbúningi framhaldsnáms læknis með
almennt lækningaleyfi. Því fyrr sem óviss-
unni er eytt, því betra.
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A
FAL
Berglind Bergmann
Indriði Einar Reynisson
FÍH
Salóme Ásta Arnardóttir
Jörundur Kristinsson
FSL
María I. Gunnbjörnsdóttir
Guðrún Dóra Bjarnadóttir
LR
Þórarinn Guðnason
Alma Gunnarsdóttir
Stjórn Læknafélags Íslands
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO
Læknafélagið um áramót
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta
þeir eigin skoðanir en ekki félagsins.
Reynir Arngrímsson formaður
semaglútíð töflur
NÝR MÖGULEIKI
RYBELSUS®: FYRSTA OG EINA
GLP-1-HLIÐSTÆÐAN Í TÖFLUFORMI
Á MARKAÐNUM1
GLP-1: Glúkagón-líkt peptíð-1.
IS
20
RY
B0
00
32
·
D
es
em
be
r 2
02
0
Marktækt meiri lækkun HbA1c með Rybelsus 14 mg
samanborið við Jardiance®, Januvia® og Victoza®2-5*
Meðal þyngdartap allt að 4,3 kg3#
Allt að 7 af 10 náðu HbA1c-markmiði <53 mmól/mól
6¤
Fyrir fullorðna með sykursýki af tegund 2
* Í PIONEER 2–4 rannsóknunum leiddi Rybelsus® 14 mg til marktækt meiri lækkunar HbA1c en Jardiance
® (empagliflozin),
Januvia® (sitagliptín) og Victoza® (liraglútið) við rannsóknarlok burtséð frá því hvort meðferð var hætt eða
meðferð með neyðarlyfi gefin.2
Í PIONEER 2 rannsókninni leiddi meðferð með Rybelsus® 14 mg til yfirburðalækkunar HbA1c samanborið við
Jardiance® 25 mg, bæði eftir 26 vikur (aðalendapunktur) (áætlaður meðferðarmunur: –4 mmól/mól§;
95% öryggisbil: –7 til –3, p<0,001) og við rannsóknarlok (52 vikur) (áætlaður meðferðarmunur: –4 mmól/mól§;
95% öryggisbil: –6 til –3, p<0,001), burtséð frá því hvort meðferð var hætt eða neyðarlyf gefið.2
Í PIONEER 3 rannsókninni leiddi meðferð með Rybelsus® 14 mg til yfirburðalækkunar HbA1c samanborið við
Januvia® 100 mg, bæði eftir 26 vikur (aðalendapunktur) (áætlaður meðferðarmunur: –6 mmól/mól§;
95% öryggisbil: –7 til –4, p<0,001) og við rannsóknarlok (78 vikur) (áætlaður meðferðarmunur: –4 mmól/mól§;
95% öryggisbil: –7 til –3, p<0,001) burtséð frá því hvort meðferð var hætt eða neyðarlyf gefið.2
Í beinum samanburði milli Rybelsus® 14 mg og Victoza® 1,8 mg var munurinn á HbA1c-lækkun ekki mismunandi
í 26 viku (aðalendapunktur) (áætlaður meðferðarmunur: –1 mmól/mól§; 95% öryggisbil: –3 til 0, p=0,0645).
Við rannsóknarlok (52 vikur) var HbA1c-lækkun með Rybelsus
® 14 mg marktækt meiri en með Victoza® 1,8 mg
(áætlaður meðferðarmunur: –3 mmól/mól§; 95% öryggisbil: –5 til –1, p=0,00023).3
# Í PIONEER 4 rannsókninni leiddi meðferð með Rybelsus® 14 mg til þyngdartaps að meðaltali 4,4 kg eftir
26 vikur (aukaendapunktur til staðfestingar) og 4,3 kg eftir 52 vikur, samanborið við grunnlínu, burtséð frá
því hvort meðferð var hætt eða neyðarlyf gefið. Heilt yfir PIONEER 1–5 og 7–8 rannsóknirnar náðist áætlað
meðalþyngdartap við meðferð með Rybelsus® 14 mg, þ.e. 3,1 til 4,4 kg eftir 26 vikur og 3,2 til 4,3 kg við lok
rannsóknanna, samanborið við grunnlínu (allar p<0,05).2
¤ Í PIONEER 1 náðu 76,9% sjúklinganna HbA1c <53 mmól/mól
§ með Rybelsus® 14 mg (líkindahlutfall samanborið
við lyfleysu: 8,36; öryggisbil: 4,86 til 14,41), p<0,001).6 Heilt yfir PIONEER 1–5 og 7–8 rannsóknirnar náðist
áætlað meðferðarmarkmið með Rybelsus® 14 mg, þ.e. 55 til 77% eftir 26 vikur og 45 til 77% í rannsóknarlok.2
§ Gildin eru umreiknuð frá % yfir í mmól/mól.
Vistor/Novo Nordisk
Hörgatún 2, · 210 Garðabæ
vistor@vistor.is · sími: 535 7000
Rybelsus 3 mg, 7 mg og 14 mg töflur
Heiti virkra efna
Semaglútíð
Ábendingar
Rybelsus er ætlað til meðferðar á fullorðnum með ófullnægjandi stjórn á sykursýki af tegund 2
til að bæta blóðsykursstjórnun sem viðbót við mataræði og hreyfingu sem meðferð með einu lyfi
þegar ekki er hægt að nota metformín vegna óþols eða frábendinga, eða samhliða notkun með
öðrum sykursýkislyfjum. Rannsóknaniðurstöður er varða samsetningar, áhrif á stjórn á blóðsykri
og hjarta og æðakvilla og upplýsingar um þau þýði sem voru rannsökuð, má sjá í samantekt á
eiginleikum lyfsins.
Frábendingar
Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
Markaðsleyfishafi
Novo Nordisk A/S, Novo Allé, DK-2880 Bagsværd, Danmörk
Nálgast má upplýsingar um lyfið, fylgiseðil þess og gildandi samantekt á eiginleikum Rybelsus,
Jardiance®, Januvia® og Victoza® á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is.
Heimildir
1. Bucheit J et al. Diabetes Technol Ther 2020 Jan;22(1).
2. Samantekt á eiginleikum Rybelsus, www.serlyfjaskra.is.
3. Pratley R et al. Lancet 2019;394(10192):39-50.
4. Rosenstock J et al. JAMA 2019;321(15):1466-1480.
5. Rodbard HW et al. Diabetes Care 2019;42(12):2272-2281.
6. Aroda VR et al. Diabetes Care 2019;42:1724–1732.
Hádegisfyrirlestur á Læknadögum fimmtudaginn 21 janúar 2020 á vegum Novo Nordisk
DIABETES, A MULTIFACTORIAL DISEASE DEMANDING EARLY INTENSIVE TREATMENT
Prof. Tina Vilsbøll, innkirtlasérfræðingur, prófessor við Stenos Diabetes Center Copenhagen (SDCC)
formaður LÍ
reynir@lis.is
Reynir Arngrímsson