Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 32
32 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
„Sjúkrahús er öryggiskrafa fólks sem
ætlar að búa á Vestfjörðum,“ segir Sús-
anna Björg Ástvaldsdóttir, yfirlækn-
ir heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar
Vestfjarða. Hún hefur verið búsett á Ísa-
firði í 7 ár nú í janúar.
Hvert áfallið af öðru hefur dunið yfir
á Vestfjörðum á þessu ári. Snjóflóð féll
á Flateyri í janúar. Hópsmit kom upp á
hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík
í byrjun apríl og liðsauki sendur vestur.
Smit kom upp á hjúkrunarheimilinu Hlíf
á Ísafirði í ágúst og hópsmit um borð í
skuttogaranum Júlíusi Geirmundssyni þar
sem meginþorri 25 skipverja var smitaður.
Súsanna er umdæmislæknir sóttvarna á
Vestfjörðum.
„Við fengum ekki lækna senda til að
hjálpa heldur lagðist álagið ofan á alla aðra
vinnu sem við sinnum. Við höfum keyrt á
yfirsnúningi frá því í febrúar,“ segir Sús-
anna. „Við unnum hér mjög langa vinnu-
daga margar vikur í röð. Við röktum smit
með hausinn á kafi í annarri vinnu.“
Súsanna segir læknana þrjá sem sinni
fastri vinnu á stofnuninni alltaf við-
búna. „Hér getur blossað upp allt annar
veruleiki en á höfuðborgarsvæðinu og við
staðið frammi fyrir sambærilegum vanda
og á Ítalíu. Það er okkar sóttvarna- og um-
dæmislæknanna að passa samfélagið okk-
ar, passa að smit dreifist ekki.“ Það hafa
þau gert með Súsönnu í fararbroddi.
Afdráttarlaus í svörum
Mál togarans Júlíusar Geirmundssonar var
á allra vörum og í tengslum við það var
því fleygt fram að Súsanna hefði ekki kall-
að togarann afdráttarlaust í land. „Ég hef
alltaf verið skýr í tilmælum mínum,“ segir
hún. „Þeir sem þekkja mig vita að það
hefði verið ómögulegt fyrir mig að segja
annað en það sem ég hef sagt í marga,
marga mánuði: Komið í sýnatöku,“ leggur
hún áherslu á.
„En útgerðin Gunnvör er stórt fyrirtæki
á litlum stað. Rígur skapaðist í samfé-
laginu um hvað væri rétt og rangt. Þess
vegna er gott að málið sé afgreitt í sjópróf-
um og að lögreglan skoði málið,“ segir
hún um þá ákvörðun að túrinn skyldi
kláraður þrátt fyrir smitin.
Hún segir Læknablaðinu frá því að
tveimur dögum fyrir viðtalið nú hafi hún
svo fengið símtal þar sem óskað var eftir
að 35 sjómenn færu í sýnatöku. Hún hafi
ekki getað tekið á móti því skipi vegna
veðurs. Sýnin hefðu setið föst fyrir vestan.
„Ég vísaði skipinu til Reykjavíkur,“
segir hún ákveðin. Ekki sé hægt að stóla
á flugsamgöngur. „Við getum aðeins
skipulagt sýnatökur hér fyrir vestan í takti
við samgöngurnar,“ segir hún og gagn-
rýnir að flugið hafi oft legið niðri í heims-
faraldrinum.
„Þess vegna beittum við þeim ráðum
að setja fólk í sóttkví og einangrun áður
en ljóst var um niðurstöður úr sýnatöku
hér í vor. Við vissum að það tæki á annan
sólarhring að fá niðurstöðuna og gátum
með þessum aðgerðum verið skrefi á und-
an COVID í samfélaginu,“ segir hún.
Röktu smitin flest til tveggja
Súsanna segir að um 100 manns hafi smit-
ast í heildina í fyrstu bylgjunni en rekja
hafi mátt 80 smitanna til tveggja. „Þau
fengu að malla í samfélaginu í um þrjár
vikur þar sem leiðbeiningarnar voru að
ekki mætti fara í sýnatöku nema fólk hefði
yfir 38 gráðu hita, kvef og beinverki.“
Þau hafi fljótt séð hve vandinn var
útbreiddur. Rekja hafi mátt veikindi eins
fjölskyldumeðlims af öðrum til ferðar til
Reykjavíkur þremur vikum áður. „Þessi
rakning varð til þess að við fórum í 5
manna samkomubann.“ Það hafi hjálpað
þeim mikið.
„Hér á Ísafirði þekkja allir alla og fólk
kemst ekkert upp með að segja að það hafi
ekki verið einhvers staðar, því maður veit
betur.“ Það sýni mikilvægi þess að virkja
umdæmi sóttvarna á hverjum stað. „Rakn-
ingin verður svo miklu öflugri og við höf-
um átt gott samstarf við rakningarteymi
og þríeykið. Allt gekk eins og smurð vél.“
En myndi hún vilja sjá frekari sérsniðn-
ar lausnir fyrir hvert landsvæði? „Nei.
Vestfirðingar fara mikið suður. Þetta er
V I Ð T A L
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir umdæmislæknir sóttvarna á
Vestfjörðum segir krefjandi að flug vestur hafið legið mikið niðri nú
í COVID-19. Hún segist alltaf hafa verið skýr við útgerð Júlíusar
Geirmundssonar og skipuleggur starfið út frá samgöngum
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ver Vestfirði fyrir smitum
Hlustið á viðtalið
á hlaðvarpi
Læknablaðsins