Læknablaðið - Jan 2021, Page 41
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 41
En hafa sjúklingar verið spurðir um
þessa þróun? Guðrún segir sjúklinga
einnig þurfa að stýra því hvað henti þeim.
„Ýmsar lausnir geta valdeflt þá og aukið
þekkingu þeirra og sjálfstæði til að takast
á við heilsubresti sína.“ Fyrstu lausnirnar
hafi ekki tekið nægt tillit til þeirra. „Fólki
var sagt hvað það ætti að gera en núna
endurspegla lausnirnar frekar samtalið og
að þeir taki þátt í ákvarðanatökunum.“
Ísland í kjörstöðu
En hvar stöndum við Íslendingar þegar
kemur að tækninni að mati þeirra tveggja?
Berglind nefnir að í ljósi smæðarinnar sé
auðvelt að prófa nýjar lausnir. „Það hefur
til dæmis verið magnað að fylgjast með
þróuninni í COVID.“ Lausnir sem hafi
verið hugmynd degi fyrr hafi komið til
framkvæmda daginn eftir.
„Við unnum öll saman. Það var frá-
bært og auðveldaði allt utanumhald og
gagnasöfnun,“ segir hún. Tæknin hafi
leitt til fjölda fræðigreina hér um COVID.
„Ég held því að á mörgum sviðum séum
við framarlega en oft er það ill nauðsyn
sem rekur lausnirnar áfram. Það vantar
því kannski heildarstefnu innan heil-
brigðiskerfisins. Það er að gerast,“ segir
Berglind.
Guðrún segir að gefa þurfi í. „Við höf-
um kosti. Við erum lítil þjóð með stuttar
boðleiðir. Við erum með frekar samræmt
sjúkraskrárkerfi, þó gera megi betur þar,
öflugt fólk og greiðan aðgang að tækni.
Við ættum því að vera leiðandi í stafrænni
læknisfræði,“ segir hún.
Berglind nefnir aftur gervigreind.
„Hún hentar læknisfræði mjög vel.“ Guð-
rún grípur boltann. „Ef gervigreind þróast
í rétta átt er hún drifkraftur fjórðu iðn-
byltingarinnar. Gervigreindin hefur náð
árangri á þröngum sviðum en hefur ekki
almennt náð framúr ákvörðunum læknis-
ins. En það gerist kannski.“
Berglind leggur þó áherslu á að tækni
eigi að einfalda læknum lífið. „Hún á
ekki að taka ákvörðun fyrir mann heldur
hjálpa við ákvarðanatökuna.“
Tæknin styðji og hjálpi
Guðrún segir lækna átta sig á því að þeir
lifi á tölvuöld. „Sjúklingarnir verða eldri,
það eru meiri fjölveikindi, fjöllyfjan, rann-
sóknir springa út. Enginn læknir getur
fylgst með öllu sem er að gerast. Það er
ómögulegt,“ segir hún. Spurð segir hún
það ekki grafa undan sjálfstrausti lækna
heldur breyta vinnulaginu.
„Læknar muna kannski ekki allt en
Guðrún Ása Björnsdóttir og Berglind Bergmann stýra
málþingi FAL á Læknadögum þar sem læknum er
hjálpað að sigta það mikilvæga frá öðru þegar kemur að
tækniþróun. Mynd/gag
kunna að leita að svörunum og þeir nota
tæknina sér til stuðnings og sem öryggis-
net.“
En hvernig er svo að vera læknir á
gervihnattaöld? „Ótrúlega spennandi,“
segir Berglind. „Frábært.“ Guðrún er sam-
mála. „Það er ótrúlega gaman að taka þátt
í svona uppbyggingu, þar sem drastískar
breytingar verða á vinnulagi. Vonandi til
hins betra. Allt fer í hringi og við erum
í raun að kalla eftir gömlum tíma. Við
erum að kalla eftir því að nýta tæknina til
þess að fá tækifæri til að verja tíma með
sjúklingnum en ekki framan við tölvu.“