Morgunblaðið - 28.05.2020, Page 2

Morgunblaðið - 28.05.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020 510 7900 Hlíðasmári 6 / 201 Kópavogur www.FASTLIND.is OPIÐ HÚS 28. MAÍ KL. 16:30-17:00 Urriðaholtsstræti 28 210 GARÐABÆR STÆRÐ: 150,3 fm FJÖLBÝLI HERB: 5 Heyrumst Magnús Már Lúðvíksson Löggiltur fasteignasali 699 2010 magnus@fastlind.is Glæsileg og ný íbúð á 3. hæð í lyftu- húsi ásamt stæði í lokuðu bílastæða- húsi, tengill fyrir hleðslustöð. Íbúðin er fullbúin með gólfefnum, ísskáp og uppþvottavél. Innréttingar eru af vandaðri gerð frá GKS innréttingum. Glæsilegt útsýni. 70.900.000 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Á fyrstu þremur dögum forseta- kosninga utan kjörfundar hafa safn- ast nokkru fleiri atkvæði en á jafn- löngum tíma í síðustu kosningum sumarið 2016. Síðdegis í gær höfðu 903 greitt atkvæði á öllu landinu, en á sama tíma síðast voru atkvæðin orðin um 370 á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Bergþóru Sigmundsdóttur, sviðsstjóra hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Atkvæða- greiðsla stendur yfir hjá sýslumönn- um víða um land og í Smáralind. Bergþóra telur sennilegt að mikill hluti atkvæðanna sem hafi safnast nú hafi verið greiddur í Smáralind, þar sem hafi verið „stöðug traffík“. Hún segir að meðal þess sem geti haft áhrif sé að kjörstaðurinn sé í al- faraleið. Fólk sé í Smáralind og fari í leiðinni að kjósa, ólíkt því sem var síðast, þegar atkvæðagreiðslan hófst hjá sýslumönnunum en síðan var kjörfundur í Perlunni um tíma. Í gær var gengið frá skráningu meðmæla, sem samtals voru ná- kvæmlega 10.000 fyrir þessar kosn- ingar. Sex framboð skiluðu inn með- mælum en aðeins tvö framboð standa eftir, Guðmundar Franklíns Jónssonar og sitjandi forseta, Guðna Th. Jóhannessonar. Í fyrsta sinn var boðið upp á rafræna söfnun með- mæla, nýmæli sem mæltist ekki verr fyrir en svo að 87,5% meðmæla var skilað inn með þeim hætti. Fleiri atkvæði utan kjör- fundar en á sama tíma í fyrra  903 komin  Fólk nýtir ferðina í Smáralind til að kjósa Morgunblaðið/Eggert Kosningar „Stöðug traffík“ í Smáralind, þar sem kosið er utan kjörfundar. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Flutningsmiðlunin DB Schenker er að hefja beint flug með lax og aðrar sjávarafurðir frá Íslandi til Kína. Fyrsta ferðin verður farin á morgun, föstudag, og er uppselt í hana, að sögn Valdimars Óskarssonar framkvæmda- stjóra. Flutning- ur á ferskum af- urðum er hagkvæmari með þessum hætti en flugi í gegnum Evrópu en mikil- vægast er þó að afurðirnar komast á skemmri tíma til viðskiptavina. DB Schenker hefur verið með þrjár 767-300 farþegaþotur Ice- landair á leigu frá því í byrjun apríl. Þær voru meðal annars notaðar til að sækja vörur fyrir íslenska heil- brigðiskerfið til Kína, bæði hlífðar- fatnað og sýnatökusett, til að berjast við kórónuveirufaraldurinn. Vélarn- ar hafa einnig verið í samskonar flutningum fyrir heilbrigðisstofnanir annars staðar í Evrópu. Valdimar segir að þörfin þar sé að minnka. Á móti sé vaxandi þörf í Bandaríkjun- um, Suður-Ameríku og Afríku og ef önnur bylgja faraldursins ríði yfir þurfi að flytja þessar vörur áfram. Ísland er með fríverslunarsamn- ing við Kína og er eina landið í Evr- ópu sem getur selt lax, regnbogasil- ung og bleikju inn á þennan stóra og vaxandi markað án þess að tollar séu lagðir á afurðaverðið. Lax og aðrar sjávarafurðir sem fluttar hafa verið til Kína hafa farið í gegnum Evrópu. Tekur það augljóslega lengri tíma, sérstaklega ef varan þarf að bíða yfir nótt, heldur en 12-13 klukkustunda beint flug frá Íslandi. 25 tonn í ferð Fram kom á vef SalmonBusiness í fyrradag að DB Schenker væri að hefja beint flug með lax til borganna Nanjing í Jiangsu-héraði og Shanghai. Valdimar staðfestir þetta og upplýsir að uppselt sé í fyrstu ferðina sem verður á föstudag með 25 tonn af sjávarafurðum. Þar verði fragtin lax og hvítfiskur til helminga. Valdimar segir að vélin komi full til baka með vörur fyrir heilbrigð- isstofnanir í Evrópu. Næsta ferð verður síðan á laugardag. Valdimar segir að þessir flutning- ar verði í boði eitthvað fram eftir júnímánuði og alls verði farnar um 50 ferðir til Kína á samningstíma- bilinu. Ánægðir með Icelandair DB Schenker hefur verið að vinna að þessu fiskflutningaverkefni um tíma og beðið hefur verið eftir leyfi frá stjórnvöldum í Kína. Leyfið fékkst síðdegis á mánudag og þá var allt sett í gang. Valdimar segir að yfirmenn DB Schenker í Evrópu séu ánægðir með samstarfið við Icelandair. Þeir séu ekki vanir því að sjá flugmenn taka jafn virkan þátt í hleðslu og vinnu um borð og hjá flugmönnum Ice- landair. Út frá reynslu DB Schenker af þessu samstarfi sé Icelandair nú einn af fyrstu kostum þeirra. Beint flug með lax og fisk til Kína  DB Schenker er með þrjár farþegaþotur Icelandair á leigu og notar þær til vöruflutninga  Fyrsta beina flugið til Kína er á morgun og er uppselt báðar leiðir  Fjöldi ferða áætlaður í júní Ljósmynd/Aðsend Vöruflutningar Leiguþotur DB Schenker eru merktar báðum félögunum. Valdimar Óskarsson Geitungar eru vaknaðir af vetr- ardvala og komn- ir á ferðina hér á landi. Voru þeir jafnframt eilítið fyrr á ferðinni í ár en síðustu ár. Matthías Al- freðsson skor- dýrasérfræð- ingur segir að geitungar láti iðulega sjá sig um miðjan maímánuð. „Þeir eru mögulega eitthvað fyrr á ferðinni í ár, en drottningarnar vakna oftast af dvala vetrarins upp úr miðjum maí. Það kann þó að vera fyrr ef vorar snemma,“ segir Matt- hías og bætir við að tíðarfar skipti máli. „Tíðarfar getur vissulega haft áhrif á geitungastofna en það koma góð ár og slæm ár þannig að á end- anum jafnast þetta nokkurn veginn út,“ segir Matthías. Geitungar vaknaðir  Vetrardvala lauk fyrr en síðustu ár Geitungabú. Íbúar og starfsfólk hjúkrunarheim- ilisins Seljahlíðar gengu saman í kringum húsið í gær og slógu þannig skjaldborg um heimilið. Skjaldborg- in var táknræn fyrir þann árangur sem náðist í kórónuveiru- faraldrinum, en enginn íbúi smitaðist af veirunni. Einn af starfsmönnunum greindist með veiruna en þökk sé sóttvarnaráðstöfunum og aðgát rat- aði veiran aldrei til íbúanna. Þessu var fagnað í gær, um leið og skjaldborginni var slegið upp til heiðurs þríeyki landlæknis, sótt- varnalæknis og yfirlögregluþjóns. Íbúar og starfsfólk höfðu þá keypt stuttermaboli frá Von, hjálpar- samtökum fyrir gjörgæsluna, og var skjaldborgin þannig einnig virðing- arvottur við störf gjörgæslustarfs- fólks. Fólk skellti sér því í bolina, söng kórónuveirulagið um góðar ferðir inni á heimilum og að lokum var grillað. Veirulaust í gegnum veiruna Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.