Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020 Aðalstræti 2 | www.matarkjallarinn.is Miðvikudaginn 10. júní 2020 kl. 16.30 Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík 1. Fundur settur 2. Skýrsla stjórnar 3. Gerð grein fyrir ársreikningi 4. Tryggingafræðileg úttekt 5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt 6. Önnur mál Ársfundur SL lífeyrissjóðs 2020 Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. DAGSKRÁ Reykjavík 20.05.2020 Stjórn SL lífeyrissjóðs Við mannfólkið skynjum lík-ama okkar og heilsu semsjálfsagðan hlut. Við veltum sjaldnast fyrir okkur hve stórkost- legur og hæfileikaríkur líkami okk- ar er fyrr en við glímum við van- heilsu af einhverju tagi og förum að leita svara og reyna að skilja veikindin sem við er að fást. Ný- lega sögðu ungir karlmenn, sem höfðu verið í neyslu á lyfseðils- skyldum lyfjum, frá upplifun sinni að það væru skilaboð samfélagsins að lyf myndu bjarga ef eitthvað væri að heilsu. Fyrir stuttu sat ég með manni sem sagðist ekki skilja í að það væri ekki búið að finna upp pillu sem gæti tekið burt kvíða. Þegar við tölum um grunnþætti heilbrigðis erum við að tala um allt sem við getum gert sjálf til að auka heilbrigði, bæta líðan og fyrir- byggja sjúkdóma. Svefn endurnærir Góður svefn er eitt það mikil- vægasta fyrir heilsuna. Í svefn- inum fær heilinn tækifæri til að endurnæra sig, vinna úr áreiti dagsins og hreinsa sig. Rannsóknir hafa sýnt að ónógur svefn eykur streitu, kvíða og hættu á þung- lyndi, minnkar einbeitingu og hefur neikvæð áhrif á ónæmiskerfið. Rannsóknir hafa tengt ónógan svefn við sykursýki og of háan blóðþrýsting. Svefninn bætir einnig sköpunargleði og alla heila- starfsemi. Stundum er erfitt að ná góðum svefni en með því að kortleggja hann, stilla sig inn á réttan svefn- tíma og finna ráð sem hjálpa t.d. á heilsuvera.is eða leita aðstoðar hjá heilsugæslunni er hægt að bæta svefn. Mataræði skiptir máli Heilsusamleg fæða saman- stendur af mat sem er ríkur af næringarefnum frá náttúrunnar hendi og er mikilvægt að borða fjölbreyttan mat í hæfilegu magni. Það tekur tíma að breyta um mataræði og mörgum reynist oft betra að breyta smám saman yfir í hollari kost. Hollur matur og venj- ur stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan sem gefur orku til að tak- ast á við dagleg verkefni. Meltingin er stundum nefnd heili númer tvö, enda stöðugt samspil milli meltingar og heila. Rann- sóknir sýna að heilbrigð þarma- flóra skiptir miklu máli fyrir heils- una. Hreyfing hefur jákvæð áhrif Regluleg, dagleg hreyfing og minni kyrrseta er mikilvægur hluti af heilbrigðum lífsstíl. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á vöðvastyrk, beinþéttni og blóðflæði. Hún eykur vellíðan m.a. með því að minnka streitu og kvíða, bæta svefn og draga úr einkennum þunglyndis. Hreyfing minnkar hættu á ýmsum sjúkdómum og eykur jákvæð boð- efni. Tilfinningastjórn, einbeiting og minnið verður betra. Félagsleg virkni Maðurinn hefur þörf fyrir félags- lega þátttöku og virkni. Það er mikilvægt að vera í heilbrigðu sam- neyti við aðra sem gefur góðar já- kvæðar tilfinningar og vera sjálfur gefandi í samfélaginu. Verum þátt- takendur með vinum, fjölskyldu, vinnufélögum, félagasamtökum og í tómstundaiðkun. Jákvæð viðhorf, að vera í núinu og gera ráðstafanir til að minnka streitu skipta máli. Það er ómetan- legt að finna þá tilfinningu að hafa stjórn á lífinu, við höfum öll frelsi til að nálgast verkefnin á okkar eigin forsendum. Á heilsuvera.is eru upplýsingar um hvað þú getur gert til að bæta líðan og fyrirbyggja sjúkdóma og alltaf er hægt að leita til heilsu- gæslunnar til að fá ráðgjöf og að- stoð. Grunnþættir heilbrigðis Morgunblaðið/Eggert Blóm Mikilvægt er að vera í heilbrigðu samneyti við aðra sem gefur góðar jákvæðar tilfinningar og vera sjálfur gefandi í samfélagi með öðru fólki. Heilsuráð Guðrún Gyða Ölvisdóttir, geðhjúkrunar- og lýðheilsufræð- ingur, geðheilsuteymi HH. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæsðins Á föstudagskvöld er á dagskrá sjón- varpsstöðvarinnar N4 þátturinn Tón- leikar á Græna. Þar flytja söngv- ararnir Óskar Pétursson og Ívar Helgason óskalög sem áhorfendur hafa valið. Þetta er 10. þátturinn í seríu þátta sem teknir eru upp á tón- leikastaðnum Græna hattinum á Ak- ureyri og hafa verið sýndir að und- anförnu, á tímum veiru og samkomubanns. Hafa þættirnir mælst vel fyrir meðal fólks og mæl- ingar sýna að margir horfa á. „Þetta hefur reynst alveg skothelt sjónvarpsefni og við erum ánægð með viðtökurnar. Þetta er síðasti þátturinn í bili en mér finnst ekki ósennilegt að við tökum aftur upp þráðinn síðar,“ segir María Björk Ingvadóttir sjónvarpsstjóri. Mörg ágæt lög hafa samkvæmt óskum áhofenda verið flutt í þátt- unum að undanförnu. Vinsælust þar eru Ég er kominn heim og Rósin, lag Friðriks Jónssonar við texta Guð- mundar Halldórssonar. Óskalögin eru flutt á N4 Lögin góðu sungin í sjónvarpinu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Söngvarar Óskar Pétursson til vinstri og Ívar Helgason á Græna hattinum. Þórdís Linda Þórðardóttir úr félags- miðstöðinni Garðalundi í Garðabæ sigraði í Söngkeppni Samfés sem fór fram á vef UngRÚV með innsendum atriðum ungmenna af öllu landinu. Úrslit voru kynnt nú fyrr í vikunni. Samtals 30 keppendur sem tóku þátt í úrslitakeppninni komust áfram í gegn- um undan- og landshlutakeppnir. Í 2. sæti lenti Alexandra Magnús- dóttir úr félagsmiðstöðinni Tíunni í Reykjavík með lagið Thunderclouds. Í þriðja sæti var Emilía Hugrún Lárus- dóttir frá félagsmiðstöðinni Svítunni í Þorlákshöfn með lagið At Last. Í ár tóku allir keppendur upp atriðin sín í heimabyggð og sendu inn í keppnina. Dómnefnd valdi 1.-3. sæti og var Rödd fólksins 2020 valin í net- kosningu þar sem 6.000 atkvæði bár- ust. Ninja Sigmundsdóttir úr félags- miðstöðinni Arnardal á Akranesi sigr- aði í netkosningunni og hlaut titilinn Rödd fólksins 2020. Hægt er jafn- framt að sjá öll atriði keppenda og úr- slit á www.ungruv.is Söngkeppni Samfés Ljósmynd/Aðsend Söngstjarna Þórdís Linda Þórðar- dóttir er komin á beina braut. Þórdís sigraði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.