Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is Mánudaga - Sunnudaga 12-18 - 31. maí - LOKAÐ frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu í maí ef verslað er fyrir 5.000 eða meira Petri PETRI 3ja sæta sófi. Gult eða grátt velúr áklæði. L242 cm. 269.900 kr. MaíTILBOÐ WWW.ILVA.IS/TILBOD 25% CADIZ borðstofustóll. Gult, svart eða grátt flauel. 27.900 kr. Nú 20.900 kr. HENDERSON 3ja sæta sumarsófi. L218 cm. 99.900 kr. Henderson3JA SÆTA KOMINN AFTUR Fræðslustutt- myndin Fáðu já – stuttmynd um kynlíf og ofbeldi, sem sýnd var í öllum grunn- skólum landsins og mörgum framhalds- skólum árið 2013 og vakti umræður um mikilvægi samþykkis í sam- skiptum og þá ekki síst kynferðislegum, hefur verið sýnd víða um heim, meðal annars í Slóveníu. Myndin var þar notuð til að mennta unglingsdrengi um kynlíf, samþykki og klám og sáu hana 806 drengir í sjö skól- um. Í upphafi voru þeir spurðir um viðhorf sín og sögðu 49% að það væri skylda stúlkna og kvenna að standa undir væntingum karla, óháð því hvað þær vildu sjálfar. Eftir að hafa horft á myndina og tekið þátt í umræðum um efni hennar urðu umskipti á viðhorfi drengjanna og sögðust 96% ósammála því að konur og stúlkur þyrftu að standa undir væntingum karla. Gjörbreytti viðhorfi drengja FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 149. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfuknatt- leik, hefur að undanförnu fundað með fimm NBA-liðum sem hafa sýnt honum áhuga og mun ræða við fulltrúa frá fleiri liðum á næstunni. Rætt er við Jón Axel í blaðinu í dag en hann gefur kost á sér í nýliðavali NBA eins og fram kom í vetur. Óljóst er hins vegar hvenær NBA-liðin velja sér leik- menn þar sem hlé var gert á tímabilinu 2019-2020. Ekki liggur enn fyrir hvort reynt verði að hefja leik á ný eða tímabilinu aflýst. »58 Grindvíkingurinn virðist vera á rad- arnum hjá mörgum NBA-liðum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Frá því að Snorri Már Snorrason greindist með Parkinsonsjúkdóminn 2004 hefur hann verið óþreytandi við að vekja athygli á mikilvægi hreyf- ingar, ekki síst fyrir fólk með Parkinson. Nú undirbýr hann sig af kappi fyrir að róa með Hall- dóri Svein- björnssyni á tveggja manna kajak frá Ísa- firði inn í Reykjanes eða öfugt, rúmlega 42 km leið, um miðjan júlí og æfðu Ísfirðingarnir sig daglega á Pollinum í liðinni viku. Þar sem Snorri, sem er nær 56 ára, getur ekki setið í bátnum nema 30 til 45 mínútur í einu gerir Halldór ráð fyrir að róðurinn með stoppi taki tíu til tólf klukkutíma. „Við ætlum að hafa vindinn í bakið og förum reglu- lega í land svo hann geti hreyft sig, teygt og togað. Maraþonróðurinn verður mikil áskorun fyrir mig og ekki síður fyrir Snorra. Áhorfendur geta líka skemmt sér við að fylgjast með okkur úr landi og tekið á móti okkur með kakói og kökum í hverju stoppi ef þeir vilja.“ Frá 2012 hefur Snorri farið í langar hjólaferðir á sumrin, hjólað hringveginn og um afmörkuð svæði landsins. „Ég vil sýna fólki að þetta er hægt, ef ég get það getur þú það,“ segir hann um átaksverk- efnin. „Ég safna áheitum í formi hreyfingar og þinn styrkur er þín hreyfing.“ Snorri bendir á að hann og fólk í svipaðri stöðu sé eins og vatnið, reyni að fara auðveldustu leiðina, en þau megi og geti gert ýmislegt. „Við erum engar postu- línsdúkkur.“ Hreyfing í stað verkjalyfja Áður en Snorri greindist með sjúkdóminn stundaði hann kajak- róður en segir að hann hafi orðið að hætta vegna þess að hann hafi ekki komist í og úr bátnum hjálparlaust. „Með Dóra með mér er ég með góða aðalvél. Hann er skipperinn og því er þetta ekkert brjálæði heldur er hann með skynsemina að leiðar- ljósi. En þetta verður erfitt.“ Hann leggur áherslu á að hann treysti Halldóri alfarið. „Ef mér líður illa bið ég um hjálp og fæ hana.“ Félagarnir ætla að haga sigling- unni eftir vindi og fara í ferðina 11., 12. eða 13. júlí. Snorri, sem er fyrr- verandi formaður Parkinsonsamtak- anna, var hönnuður í Odda en hætti að vinna fyrir þremur árum og ákvað þá líka að hætta að keyra bíl. „Dagurinn var orðinn of þungur og með þennan sjúkdóm er full vinna að hreyfa sig og halda sér í formi.“ Hann fer allra sinna ferða á hjóli og segist jafnvel hjóla 30-40 km daglega auk þess sem hann fari í ræktina nokkrum sinnum í viku. „Ég sæki í hreyfinguna vegna vellíðunarinnar, hreyfi mig og teygi til að taka úr mér verkina frekar en að taka verkjalyf. Þetta eiga allir að gera, ekki bara Parkinsonsjúklingar, því enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Allir geta veikst og þá er eins gott að vera í góðu formi. Líka þeir sem eru orðnir 70 ára.“ Hann bendir á að fyrir greiningu hafi hann verið mjög virkur, meðal annars gengið á fjöll, stundað klifur, verið á skíðum og starfað í björgunarsveitum. „Svo hef ég alltaf hjólað mikið og er í góðu formi, held í við eiginkonuna.“ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Á Ísafirði Halldór Sveinbjörnsson og Snorri Már Snorrason á æfingu fyrir maraþonróðurinn, sem verður í sumar. Hreyfing er styrkur þinn  Snorri Már er með Parkinson og ætlar í maraþonróður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.