Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
TORMEK Brýnsluvélar
▲ Tormek T-4
Verð 57.900
▲ DF-250 Demantshjól fyrir T-8
Verð 39.980
▲ Tormek T-2
Atvinnu eldhúsbrýnni
Verð 108.730
▲ HTK 806
Aukahlutasett fyrir hnífa skæri o.fl.
Verð 34.120
▲ Tormek T-8
Verð 96.700
Allar stýringar fyrirliggjandi
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
SVX-150:
Skærastýring
Verð 8.930
TNT-708:
Aukahlutasett fyrir rennismiðinn
Verð 46.690
SVD-186:
Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn
Verð 14.890
SVM-140:
Hnífastýring
Verð 9.230
SVA-170:
Axarstýring
Verð 2.750
SVM-00:
Stýring fyrir tálguhnífa
Verð 5.770
SE-77:
Stýring fyrir hefiltennur og sporjárn
Verð 9.530
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Frí heimsending út maí
Fjöldi kvensund-
gesta hefur tjáð
óánægju sína með
fyrirkomulag bún-
ingsklefa í Sundhöll
Reykjavíkur eftir
endurgerð hennar.
Við endurgerðina var
nýr kvennaklefi
byggður vegna þess
að sá eldri þótti ekki
viðunandi. Mörgum
kvengestum Sundhallarinnar finnst
staðsetning nýrra búningsklefa baga-
leg þar sem ganga þarf frá klefum þó
nokkurn spöl utandyra til að komast
inn í sjálfa Sundhöllina. Karlar hafa
nú fengið gömlu klefana sína aftur
endurgerða. Endurgerð gömlu
kvennaklefanna hefur tafist en þeim
átti að ljúka á síðasta ári. Þegar end-
urgerð lýkur verða þeir aðeins notaðir
til vara t.d. þegar aðsókn er mikil. Það
eru ekki allir sáttir við þessa ákvörðun
borgaryfirvalda. Kvenfólki er ætlað
að ganga drjúgan spöl á blautum
sundfötum til að komast frá klefa í
innilaug. Hér er um lýðheilsumál að
ræða enda oft slæmt veður. Kvartanir
eru einnig vegna þrengsla á nýju
sturtusvæði kvenna og að sturtur séu
allt of fáar miðað við skápafjölda.
Sjá má tugi ábendinga og kvartana
í þjónustukönnun Maskínu á tíma-
bilinu nóvember 2018 til janúar 2019.
Hér er brot af þeim, sem er m.a.
ástæða þess að fulltrúi Flokks fólksins
óskaði eftir að mannréttinda-, lýðræð-
is- og nýsköpunarráð skoðaði málið út
frá jafnréttis- og aðgengisreglum
borgarinnar:
Er óánægð með aðstöð-
una í kvennaklefanum,
allt of fáar sturtur og
vantar meira eftirlit og
aðhald við erlenda
ferðamenn sem nota
sundlaugarnar þ.e. að
sjá til þess að þeir fari í
sturtu fyrir sundferð-
ina.
Aðgengi að innilaug
sundhallarinnar fyrir
kvenfólk er fáránlegt og
búningsklefar/skápar
mættu vera fleiri. Vona að þetta
verði lagað.
Fjölga sturtum í nýrri aðstöðu
kvenna í Sundhöllinni. Sjö sturtur
fyrir 100 skápa er mjög lítið.
Nú þarf að fara frá innilaug, yfir
útisvæði og inn í kvennaklefann,
þetta er allt of löng leið fyrir litlar
stelpur og margar fullorðnar konur.
Fleiri sturtur í kvennaklefann í
Sundhöllinni.
Kvennabúningsklefinn í Sundhöll-
inni er of lítill.
Glötuð tenging með ömurlegum
stiga milli gömlu og nýju.
Opna gömlu búningsklefana fyrir
konur.
Of fáir klefar.
Búningsaðstaða kvenna mjög léleg.
Allt of fáar sturtur.
Opna gamla kvennaklefann í Sund-
höllinni aftur. Það er allt of þröngt
niðri og veitir ekki af meira rými,
eins er allt of langt að fara með lítil
börn úr nýja klefanum og inn í litlu
innilaugina. Hálföfugsnúið að mað-
ur þurfi að ganga langa leið úti til að
komast í innilaug.
Sakna gömlu kvennaklefanna,
lendi mjög iðulega í biðröð í sturt-
unni … og svo er bara sjarminn við
gömlu klefana svo mikill og gerir
upplifunina skemmtilegri fyrir vik-
ið. Líka slæmt að geta ekki farið
með börn beint í innilaugina úr
kvk-klefanum (þ.e. þurfa alltaf að
labba út fyrst).
Glímt við meirihlutann
Á fundi mannréttinda-, nýsköp-
unar- og lýðræðisráðs 12. mars 2020
var tillaga Flokks fólksins lögð fram
um að láta fara fram skoðun á því
hvort endurgerð á Sundhöll Reykja-
víkur sé í samræmi við stefnu borg-
arinnar í jafnréttis- og aðgeng-
ismálum.
Á fundi 14. maí var tillagan lögð
fram að nýju og var samþykkt sam-
hljóma að láta fara fram slíka skoðun.
Á sama fundi var umsögn mannrétt-
indastjóra lögð fram eins og þá þegar
væri búið að gera þá skoðun sem ver-
ið var, á þessum fundi, að ákveða að
gera.
Í umsögn mannréttindastjóra er
birt eftirfarandi niðurstaða:
„Fyrir breytingarnar nutu konur
ekki sömu þjónustu og karlar í Sund-
höll Reykjavíkur og fatlaðir ekki
sömu þjónustu og ófatlaðir. Aðstaða
fyrir konur var lélegri en fyrir karla
og líkamlega fatlað fólk átti þess ekki
kost að fara í laugina. Til að færa
þetta til betra horfs þurfti endurbæt-
ur og í þær var ráðist samhliða bygg-
ingu útisundlaugar. Það er ekki hægt
að sjá annað en að Sundhöll Reykja-
víkur uppfylli, eftir breytingar,
mannréttindastefnu borgarinnar
bæði með tilliti til kynjajafnréttis og
réttar fatlaðs fólks til þjónustu.“
Lausnin liggur á borðinu
Það er miður að við endurgerð
þessa fallega friðlýsta húss hafi ekki
verið skoðuð nægjanlega vel mögu-
leikar og þarfir allra sundlaugar-
gesta. Innilaug Sundhallarinnar er
aðalsmerki Sundhallar Reykjavíkur
fyrir sérkenni sín og einstaka kosti og
margir sækja Sundhöllina vegna
hennar. Vonbrigði eru með staðsetn-
ingu nýrra búningsklefa, þrengsl í
sturtum kvenna og að sturtur eru of
fáar. Svo virðist sem mörgum þyki
hin nýja aðstaða hálfu verri en sú
eldri, sem vissulega var komin til ára
sinna. Konur vilja fá að koma aftur í
sína gömlu búningsklefa þegar þeir
verða opnaðir að nýju eftir endur-
gerð.
Það er afar mikilvægt að fyrir kon-
ur eins og karla sé innangengt úr
klefum í innilaug til að þær, ungar,
aldnar, fatlaðar og ófatlaðar, þurfi
ekki að ganga utandyra á sundföt-
unum til að komast í innilaugina.
Lausnin er einföld: Bjóða á kvenfólki
að nota búningsklefa Sundhallar-
innar í stað þess að þeir verði ein-
ungis notaðir sem varaklefar þegar
aðsókn er mikil. Það er ekkert sem
hindrar það að konur fái aftur aðgang
að klefunum. Þessi lausn hefur verið
nefnd af sundgestum og einnig
heyrst meðal starfsmanna Sundhall-
arinnar.
Eftir Kolbrúnu
Baldursdóttur »Kvenfólki er ætlað
að ganga drjúgan
spöl á blautum sundföt-
um til að komast frá
klefa í innilaug. Hér er
um lýðheilsumál að ræða
enda oft slæmt veður.
Kolbrún Baldursdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi Flokks
fólksins.
Kvenbúningsklefar Sund-
hallarinnar hönnunarmistök?
Móttaka aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er
auðvelt í notkun og tryggir ör-
yggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerf-
ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.