Morgunblaðið - 28.05.2020, Qupperneq 42
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Að sögn Sigurðar Reynaldssonar,
framkvæmdastjóra Hagkaups, á
framleiðslan sér langan aðdraganda
en íslenskir
bændur hafi unn-
ið að því síðustu
ár að auka gæði
íslensks nauta-
kjöts. Farið var í
kynbætur og
áhersla lögð á
þau afbrigði sem
talin voru henta
best hér á landi.
„Fyrir valinu
urðu Galloway-
og Limousin-kyn sem eru gríð-
arlega flott. Kjötið kemur frá Bessa
í Hofstaðaseli og ég leyfi mér að
fullyrða að útkoman er eitt flottasta
og besta nautakjöt sem komið hefur
í verslanir hér á landi.“ Ferskar
kjötvörur sáu um verkun á kjötinu
en það var látið meyrna í þrjár vik-
ur sem gerir það að verkum að það
er fullfitusprengt og tilbúið beint á
grillið eða pönnuna.
„Gripirnir hafa verið séraldir við
bestu mögulegu aðstæður síðustu
24 mánuði og má segja að það sé að
hefjast nýr kafli í íslenskri naut-
griparækt með þessu. Þetta eru
stórtíðindi fyrir okkur því þetta er í
fyrsta skipti sem við getum boðið
þetta kjöt í einhverju magni og við
reiknum með að eiga þetta kjöt að
minnsta kosti í tvær vikur. Síðan
eigum við von á því aftur síðar í
sumar en stóru fréttirnar eru þær
að það styttist í að við getum verið
með það á boðstólum árið um
kring,“ segir Sigurður.
Afurðir þessara gripa eru tölu-
vert ólíkar því sem neytendur eru
vanir. Nautgripirnir eru næstum
tvöfaldir að stærð miðað við hefð-
bundin íslensk naut og því allar
steikur stærri. Til að mynda vegur
lundin 2,2 kíló.
Að sögn Sigurðar mun kjötið vera
tilbúið í neytendapakkningum í öll-
um verslunum Hagkaups og verður
hægt að velja um ribeye, lundir,
filet og entrecote. Þá verða einnig
sérstakir ribeye-hamborgarar fáan-
legir úr kjötinu. Sigurður staðfestir
að það verði því sannkölluð nauta-
veisla í verslunum Hagkaups um
helgina og hvetur matgæðinga
landsins til að missa ekki af þeirri
veislu.
Þau tíðindi berast úr herbúðum Hagkaups að
væntanlegt sé í verslanir fyrirtækisins íslenskt
ungnautakjöt af séröldum holdagripum af
Galloway- og Limousin-kyni.
Ljósmynd/Aðsend
Alvöru Galloway-
og Limousin-
nautasteikur
í Hagkaup
Sigurður
Reynaldsson Tilbúið á grillið
Kjötið verður selt
tilbúið í neytenda-
pakkningum í öll-
um verslunum Hag-
kaups og verður
hægt að velja um
rib-eye, lundir, file
og entrecote. Sig-
urður Reynaldsson,
framkvæmdastjóri
Hagkaups, segir
þetta marka tíma-
mót í sölu nauta-
kjöts hér á landi.
Timi kokteila rennur upp af aukn-
um krafti með yl og hækkandi sól.
Barir landsins mega nú hafa opið
aftur eftir langt hlé. Afgreiðslutím-
inn er þó skertur og því ekki slæmt
að geta hrist fram úr erminni góm-
sæt hanastél heimavið, enda gleður
hóflega drukkið vín mannsins
hjarta.
„Kaupum íslenskt“ er eitt af slag-
orðum ársins og eftir því fer Þór-
hildur Kristín Lárentsínusdóttir,
margverðlaunaður barþjónn.
„Pælingin er að hafa þetta kok-
teila sem auðvelt er að gera
heima,“ segir Þórhildur, sem hefur
meðal annars verið yfirbarþjónn í
Perlunni og á Tapasbarnum og
meðlimur í Barþjónaklúbbi Íslands.
„Spírinn í Ólafsson-gininu er
mjög mjúkur, ólíkt ýmsu öðru gini
þar sem maður fær smá skell í
fyrsta sopa. Í negroni-uppskriftinni
hef ég því aðeins meira af honum
en í hefðbundinni upskrift, auk smá
viðbótarsnúnings. Þannig fær hann
að blómstra vel.“
Ólafsson með skyri og límónu
Ólafsson-gin 45 ml
límónusafi 30 ml
sykursíróp* 30 ml
hreint skyr 1 tsk.
Ólafsson með límónu og myntu
Ólafsson-gin 45 ml
sykursíróp* 30 ml
límónusafi 30 ml
mynta, 3 laufblöð
Báðir drykkir eru hristir og svo
síaðir tvöfalt þegar þeim er hellt í
glas (sigti með fínofnu neti er þá
sett fyrir stút kokteilhristarans)
*Sykursíróp er 50/50 sykur og
vatn soðið þar til blandan fer að
þykkna.
Negroni með snúningi
Ólafsson-gin 45 ml
ljós og þurr vermouth 30 ml (til dæm-
is Dolin Vermouth Dry)
Campari 30 ml
Aperol 10 ml
Ólafsson
með skyri
og límónu
Ginkokteill með skyri og límónu
Negroni
með
snúningi
Ólafsson
með
límónu
og myntu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
www.danco.is
Heildsöludreifing
Ostakaka Caramel-Brownie Handunnar Falafel bollur Ljúffengar franskar makkarónur Mini Beyglur með fyllingu
Mini Club samlokur Petit Four sælkerabitar
Vegan samósur Canape snittur Vefjur með fyllingu
Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í veisluna,
mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar.
Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira.
Ljúffengt...
...hagkvæmt og fljótlegt
Veisluþjónustur
Veitingahús - Mötuneyti
Kynntu þér málið og pantaðu á vefverslun okkar www.danco.is
Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum