Morgunblaðið - 28.05.2020, Page 56
56 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020
60 ára Snorri ólst upp
í Reykjavík en býr í
Winchburgh í West
Lothian, Skotlandi.
Hann er tölvunarfræð-
ingur frá HÍ og rekur
ferðaþjónustu-
fyrirtækið Skotgöngu
ásamt konu sinni. Auk þess starfar hann
við hugbúnaðarráðgjöf hjá Orbis Tech.
Maki: Inga Geirsdóttir, f. 1961, farar-
stjóri hjá Skotgöngu.
Börn: Margrét, f. 1982, Daði, f. 1985, og
Bjarki, f. 1991. Barnabörnin eru Mikael
Melberg, f. 2012, og Malín Ósk, f. 2019.
Foreldrar: Guðmundur Magnússon, f.
1927, d. 1987, verkfræðingur, og Mar-
grét Tómasdóttir, f. 1927, d. 2017, skrif-
stofumaður. Þau voru búsett í Reykja-
vík.
Snorri
Guðmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vilt ekki vera steypt/ur í sama
mót og aðrir og ferð þínar eigin leiðir í
skoðunum og lífinu sjálfu. Einhver biður
þig um hjálp.
20. apríl - 20. maí
Naut Oft er skammt á milli hláturs og
gráts. Þú elskar að ferðast og kynnast
nýju fólki. Þú skilur hvorki upp né niður í
unglingnum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert með svo margt á þinni
könnu að það er auðvelt að missa af því
sem raunverulega þarfnast athygli.
Treystu innsæi þínu í vissu máli.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er svo auðvelt að taka eigin
skoðanir fram yfir annarra en stundum
hafa nú aðrir eitthvað til síns máls ef vel er
að gáð. Fylgdu hjartanu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur reynst best að láta hlutina
hafa sinn gang um tíma. Þú breytir hvort
sem er engu úr því sem komið er.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vendu þig á að segja færra og gera
meira. Sumir stinga höfðinu í sandinn
þegar vandi steðjar að, en ekki þú.
23. sept. - 22. okt.
Vog Listræn sköpun getur veitt þér
ánægju í dag. Gerðu fjárhagsáætlun og
farðu eftir henni. Mundu að góð vinátta er
gulli betri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vonandi getur þú glaðst á
þessum degi og litið framtíðina björtum
augum. Vertu börnunum þínum góð fyrir-
mynd. Vinur á um sárt að binda.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er hætt við misskilningi í
samskiptum þínum við aðra í dag. Gefðu
þér tíma fyrir þig á hverjum degi.
Flutningar eru í kortunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er erfitt að sættast á það
að maður hafi ekki alltaf rétt fyrir sér. Ein-
hver færir sig upp á skaftið gagnvart þér.
Taktu bara nógu fljótt í taumana.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Notaðu tækifærið og gerðu
áætlanir í tengslum við vinnuna. Dagurinn
í dag hentar sérlega vel til að gera ein-
hvers konar umbætur á heimilinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ákvarðanirnar sem þú tekur í
vinnunni í dag hafa áhrif á framtíð þína. Þú
hittir á snöggan blett á einhverjum sem
bregst ekki vel við.
nafnið Hof. Þangað finnst mér
ótrúlega gott að koma og gleyma
amstri dagsins og hlaða batteríin.
Núna er verið að leggja lokahönd á
sögu ömmu og afa sem bjuggu á
Ytri-Á á Kleifum og 20 barna
þeirra. Amma var konan sem varð
fræg eftir sjónvarpsviðtal við Sig-
rúnu Stefánsdóttur og sagðist aldr-
ei hafa verið mikið fyrir börn en
átti alls 20! Bróðir minn hefur ver-
ið forsprakkinn í því verkefni og
2012, sat í stjórn fulltrúaráðs
Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, í
stjórn Vaðlaheiðarganga 2014-2015
og var stjórnarformaður Kæli-
smiðjunnar Frosts 2007-2017.
Hann hefur setið í sóknarnefnd
Lögmannshlíðarsóknar frá 2005.
Jón Birgir hefur gaman af
gönguferðum og spilar golf þegar
tækifæri gefst. „Kleifar í Ólafsfirði
eru uppáhaldsstaður minn og þar
eigum við systkinin hús sem ber
J
ón Birgir Guðmundsson
fæddist 28. maí 1970 í
Borgarnesi og ólst þar
upp. „Mamma og pabbi
áttu heima á Akureyri til
1967 og þar fæddust fjögur systk-
ini mín. Fjölskyldan fluttist öll til
Borgarness þegar faðir minn tók
við starfi hjá Vegagerðinni og var
þar verkstæðisformaður allt þang-
að til hann lauk starfsferli sínum.
Þau fluttust síðan aftur til Akur-
eyrar og náðu nokkrum árum í
næsta húsi við mig og mína fjöl-
skyldu.“
Jón Birgir var mikið í íþróttum í
Borgarnesi og spilaði badminton og
lék knattspyrnu með Skallagrími.
„Ég á nokkra eftirminnilega leiki
að baki í meistaraflokki t.d. með
æskuvini mínum, Guðlaugi Þór
Þórðarsyni utanríkisráðherra.“
Jón Birgir gekk í Grunnskóla
Borgarness og fór síðan í Verk-
menntaskólann á Akureyri þar sem
hann kynntist eiginkonu sinni. Jón
Birgir varð stúdent 1990, lauk
tveggja ára viðskiptafræðinámi við
Háskólann í Trier í Þýskalandi
1995 og B.Sc.-námi í viðskiptafræði
við Háskólann á Bifröst 1996.
Hann hefur síðan tekið ýmis nám-
skeið eins og í starfsmanna-
stjórnun.
Eftir útskrift frá Bifröst hóf Jón
Birgir störf sem ráðgjafi í ráðn-
ingar- og starfsmannamálum hjá
Ráðgarði hf./Gallup 1996 sem sam-
einaðist síðan IMG. Hann hafði
umsjón með stofnun útibús fyrir
fyrirtækið á Akureyri og veitti því
forstöðu frá ársbyrjun 1998. Hann
var verkefnastjóri bæjarráðs Akur-
eyrar og aðstoðarmaður þáverandi
bæjarstjóra, Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar, 2002-2005, en hóf þá störf
hjá Sjóvá sem útibússtjóri á Akur-
eyri og frá 2008 var hann forstöðu-
maður allra útibúa og umboða Sjó-
vár utan Reykjavíkur. Frá 2016
hefur Jón Birgir verið útibússtjóri
Íslandsbanka á Akureyri og er yfir
Fyrirtækjamiðstöð Norðurlands og
Austurlands hjá Íslandsbanka.
Jón Birgir hefur m.a. verið for-
maður Arctic Open-nefndarinnar
hjá Golfklúbbi Akureyrar 2002-
við nokkur frændsystkinin að-
stoðað hann í þessu skemmtilega
verkefni sem verður gefið út í
haust og er orðið að merkilegri
bók.
Ég er mikill áhugamaður um ís-
lenska matarmenningu og held í
heiðri að borða reglulega svið,
sviðalappir, siginn fisk, svartfugl-
segg og tek slátur svo eitthvað sé
nefnt. Ég var því með víkingaþema
á 40 ára afmælinu en 50 ára af-
mælið verður í anda Covid og hald-
ið aðeins með mínum nánustu.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Birgis er Þórunn
Guðlaugsdóttir, f. 2.11. 1970 á
Akureyri, starfsmaður Samherja.
Þau eru búsett á Akureyri. For-
eldrar Þórunnar eru hjónin Guð-
laugur Arason, f. 14.3. 1947, á
Þórshöfn, fv. húsasmíðameistari, og
Snjólaug Aðalheiður Baldvins-
dóttir, f. 26.2. 1948, í Viðarholti á
Árskógsströnd, fv. verslunarmaður.
Þau eru búsett á Akureyri.
Börn Jóns Birgis og Þórunnar
eru: 1) Guðlaugur Ari, f. 14.9. 1994,
háskólanemi. Maki: Harpa Ósk
Björnsdóttir, f. 12.4. 1994, háskóla-
nemi. Þau eru búsett í Reykjavík;
2) Stefanía Elsa, f. 5.12. 1996, há-
Jón Birgir Guðmundsson, útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri – 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Stefanía Elsa, Elenóra Mist, Jón Birgir, Guðmundur
Ari, Þórunn og Guðlaugur Ari í garðinum heima í Giljahverfi á Akureyri.
Sviðalappir og svartfuglsegg
40 ára afmælið Jón Birgir ásamt eiginkonu, systkinum og mökum þeirra.
Íslensk matarmenning Jón Birgir
að borða svartfuglsegg.
40 ára Steinunn er úr
Kópavogi en býr í
Hafnarfirði. Hún er
með kandídatspróf í
sálfræði frá HÍ og er
sálfræðingur og fram-
kvæmdastjóri hjá Litlu
kvíðameðferðarstöð-
inni og einn af eigendum hennar. Stein-
unn er einnig stundakennari við LHÍ og
HR og athafnastjóri hjá Siðmennt.
Dætur: Halldóra Ísold, f. 2004, og Áróra
Gunnvör, f. 2007, Þórðardætur og stjúp-
sonur er Kári Alexander Þórðarson, f.
1999.
Foreldrar: Sigurjón Pétur Stefánsson, f.
1955, sölustjóri hjá Vélfangi, búsettur í
Grafarvogi, og Halldóra Þorgerður Leifs-
dóttir, f. 1957, ritari á Litlu kvíðameðferð-
arstöðinni, búsett í Kópavogi.
Steinunn Anna
Sigurjónsdóttir
Til hamingju með daginn
Garðabær Benedikt Líndal Einarsson
fæddist 16. mars 2020 kl. 21.51. Hann
vó 4.448 g og var 51 cm langur. For-
eldrar hans eru Dana Björk Erlings-
dóttir og Einar Líndal Aðalsteinsson.
Nýr borgari