Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 28.05.2020, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2020 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Samsýning Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, Yfir Gullinbrú, verður opnuð í Gufunesi á laugardaginn kemur klukkan 15. Er það þriðja ár- lega sumarsýningin í sýningaröðinni Hjólið þar sem verk eftir félaga Myndhöggvarafélagsins eru sett upp nærri hjóla- og göngustígum borg- arinnar og er nú komið að Grafar- vogshverfinu. Sýningarnar verða fimm og eru settar upp í aðdraganda fimmtíu ára afmælis félagsins 2022. Tíu listamenn eiga verk á sýning- unni, átta eru sett upp víða í Grafar- vogi og tvö á netinu, og eru öll gerð sérstaklega fyrir sýninguna. Lista- mennirnir eru Anna Júlía Frið- björnsdóttir, Brynhildur Þorgeirs- dóttir, Elísabet Brynhildardóttir, Eygló Harðardóttir, Hanan Be- nammar, Hulda Rós Guðnadóttir, Klængur Gunnarsson, Rebecca Erin Moran, Vala Sigþrúðar Jónsdóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir. Sýning- arstjóri er Birta Guðjónsdóttir. Boðið upp á samtal í síma Þungamiðja sýningarinnar er sögð liggja í staðsetningu hennar í Grafar- vogi; í landslagi, félagslegum sem sögulegum þáttum, flóru og fánu, fjölbreyttu mannlífi og sérþáttum hverfisins, sem er eitt það grænasta í borginni og liggur að fallegri og víða lítt snortinni strönd. Þá var hug- myndalegur útgangspunktur við val á verkum og listamönnum að vinna með lífræn ferli og upplifun lista- mannanna á hverfinu og náttúru- öflunum. Þegar blaðamaður fer með sýn- ingarstjóranum Birtu á milli verk- anna sem verið er að setja upp segir hún 46 tillögur hafa borist frá félags- mönnum í Myndhöggvarafélaginu um verk á sýninguna. „Ég valdi úr mörgum frábærum tillögum og að auki verk eftir einn erlendan lista- mann sem er ekki í félaginu, eins og hefur verið gert líka á fyrri sýn- ingum síðustu sumur, en það er alltaf áhugavert að eiga líka í samræðu út fyrir eyjuna.“ Það er Hanan Be- nammar, sem er af norðurafrísku bergi brotin en býr í Ósló. „Hún kemst ekki á opnunina vegna Covid- ástandsins en verkið hennar er í eternum; fólki er boðið að hringja í ákveðið símanúmer og þá svarar manneskja sem er reiðubúin að eiga samtal um eitt af sex fyrirfram- gefnum umræðuefnum, meðal ann- ars um þögn, efa og óreiðu,“ segir Birta. Ósómann í baksýnisspeglana Í hvammi við vík eina rétt norðan við garðinn með skúlptúrum eftir Hallstein Sigurðsson, sem þeir sem leið eiga um Grafarvogshverfið þekkja vel, hittum við Þórdísi Öldu Sigurðardóttur sem er ásamt aðstoðarfólki að setja upp stórt verk. Á volduga málmgrind eiga að koma flekar með ljósmyndum en umhverf- is eru tugir stanga með stökum bak- sýnisspeglum af bifreiðum. „Þetta er nýtt verk sem ég vann fyrir þessa sýningu,“ segir Þórdís, „en í því birtast hugmyndir sem ég hef mikið velt fyrir mér á síðustu ár- um. Ég stend nú á tímamótum ald- urslega og fór að hugsa um hvað ég vildi hafa áfram í kringum mig í framtíðinni, heyra af og sjá í fréttum, og kaus að tína út það sem ég vildi hafa í baksýnisspeglinum.“ Þórdís vinnur verkið í samstarfi við tvo erlenda ljósmyndara sem hún hefur lengi þekkt og hafa myndað í ýmsum heimshlutum, þeir eiga flest- ar ljósmyndirnar en sumar koma úr myndabönkum. Myndirnar sýna til að mynda mannréttindabrot og illa meðferð á dýrum. „Þessar myndir eru teknar erlend- is og flest af þessu gerist ekki hér á landi, en þó annað sambærilegt,“ segir Þórdís. „Þessir þrjátíu speglar vísa inn á myndirnar. Sumir þola ekki að sjá hræðilegar myndir en geta þá bara horft á þær í bútum í speglunum. Svo má um leið sjá sjálf- an sig í þeim, sem hluta af þeim veru- leika sem myndirnar birta. Það væri gott að slíkur ósómi yrði ekki lengur til staðar.“ Hvað skúlptúr geti verið Birta segir að við valið á lista- mönnunum tíu hafi hún haft sterk- lega til hliðsjónar að sýningin snerist á vissan hátt um hverfið og kallaðist á við það. „Ég hef sjálf alltaf gaman af því þegar ég skoða sýningar hér og þar í borgum og opinberu rými að kynnast gegnum listupplifunina slóð- um sem ég hef ekki komið á áður. Hér erum við í þessu stóra og fjöl- breytilega hverfi, sem í er allt frá Korputorgi og alls kyns íbúða- kjörnum að þessum víkum hér við hafið í guðsgrænni náttúru, og það er heillandi að geta boðið gestum að kynnast margbreytilegu hverfinu gegnum listina.“ Birta kveðst hafa haft áhuga á að sjá verk sem snerust á einhvern hátt um hreyfingu og breytingu, frekar en að vera niðurnjörvuð. Hún tekur sem dæmi samspil verka Hallsteins, sem lengi hafa staðið í hverfinu, og þeirra eftir Rebeccu Erin Moran sem hafa verið sett upp nærri þeim í góðu samtali við Hallstein. Hún hef- ur fellt í jörðina steypta hringi sem gestir geta staðið á og skannað þrjá QR-kóða sem opna hver sérsniðið hljóðverk sem má dansa við. „Þar verður til eins konar samtal tveggja kynslóða um það hvað skúlptúr getur verið,“ segir Birta. „Verk Rebeccu er lifandi skúlptúr í merkingunni að maður stígur á stall og verði mögu- lega um tíma að skúlptúr, á for- sendum þess að upplifa líkama sinn í tilgreindu rými. Og kannski að upp- lifa hann sem skúlptúrískt form sem hreyfist.“ Náttúran ræður Í vík við hafið neðan við eina braut Korpugolfvallar er Elísabet Bryn- hildardóttir ásamt aðstoðarfólki að fylla vandlega smíðaðan stokk af fjörumöl, lokar honum síðan og stíg- ur upp á enda hans, næst hafinu. Þegar fellur að virkjast verkið, sem heitir Á tólfta tíma – Til minningar um Jesústeininn. „Það byggir á sögu sem pabbi minn sagði mér frá æsku sinni, þegar hann og vinur hans fóru út á stein í flæðarmálinu og á flóði rétt flæddi yfir hann. Þá var eins og þeir gengju á vatni,“ segir Elísabet. Þessi fallega saga sat í henni og varð að þessu verki þar sem gestum mun sem sagt bjóðast að ganga á vatni – ef þeir koma á réttum tíma. „Náttúran ræður og galdrarnir verða ekki alltaf í boði,“ segir hún brosandi. „Bara á um tólf tíma fresti.“ Og hún mælir með gúmmí- skóm eða stígvélum til að upplifa verkið. Birta segir Myndhöggvarafélagið dásamlegan og lifandi félagsskap sem hafi staðið fyrir fjölda útisýn- inga síðan félagið var stofnað kring- um sýningar á Skólavörðuholti árið 1972. „Heiti félagsins kveikir í hug- anum mynd af manneskju með meitil í hendi en raunin er sú að minnihluti félaganna, sem eru rúmlega tvö hundruð talsins, fæst við hefðbundin efni og aðferðir skúlptúrsins eins og við þekkjum hann frá 20. öld. Þessi sýning er vettvangur til að sýna fjöl- breytileikann og gerjunina í starf- semi félagsins á 21. öldinni,“ segir Birta. „Sýna fjölbreytileik- ann og gerjunina“ Morgunblaðið/Einar Falur Jesústeinn Elísabet Brynhildardóttir stígur upp á verk sitt sem er í einni víkinni í Grafarvogi og hverfur á flóði. Þá má reyna að ganga á vatni. Sýningarstjórinn Birta stendur á einu verka Rebeccu Erin Moran, en þau eru í skúlptúrgarði Hallsteins Sigurðssonar og hljóðverk fylgja. Hreinsað til Þórdís Alda Sigurðardóttir við uppsetningu á verki sínu á sýningunni Yfir Gullinbrú, en þar setur hún ósóma í baksýnisspegilinn.  Samsýning Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, Yfir Gullinbrú, verður opnuð í Grafarvogshverfinu á laugardag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.