Skessuhorn - 15.04.2020, Page 3
Í tilefni af því að nú erum við mörg heima og vantar eitthvað gefandi til
að nýta tímann í ætlum við að sameinast í einu liði, landsliðinu í lestri,
og setja heimsmet í lesnum mínútum á einum mánuði.
Reglurnar eru mjög einfaldar. Þú tekur tímann þegar þú lest
og skráir mínúturnar á timitiladlesa.is.
Allir geta verið í landsliðinu. Strákar og stelpur, börn og fullorðnir.
Hver mínúta skiptir máli.
SETJUM HEIMSMET Í LESTRI
VERTU MEÐ Í LANDSLIÐINU
HEIMSMET
2020
timitiladlesa.is
Allur lestur telst með. Líka að hlusta á hljóðbók. Líka að lesa
myndasögu og uppskriftabók. Líka að lesa rafbækur.
Og að sjálfsögðu skiptir tungumálið engu máli.
Á timitiladlesa.is sérðu alltaf hvað landsliðið er búið að lesa mikið,
og hvað þú ert búin(n) að lesa mikið. Og ef þú stendur þig rosalega
vel færðu viðurkenningar á síðunni.
SVO NÚ ER BARA AÐ REIMA Á SIG LESSKÓNA OG
GRÍPA NÆSTU BÓK. VIÐBÚIN — TILBÚIN — LESA!
#timitiladlesa